Síða 1 af 1
HJÁLP
Sent: Fim 18. Sep 2008 21:54
af schaferman
Kannast einhver við Medion MIM2110 eða MD95610 fartölvu???
er búinn að reyna google á þetta en ekkert virkar,
langar að vita hvernig örgjörva hún tekur og minni.
Fæ bara hvítan skjá þegar ég kveiki á henni.
HVAÐ getur verið að???
plís hjálp,
mitt mail er
vest@best.is

Re: HJÁLP
Sent: Fim 18. Sep 2008 23:30
af DoofuZ
Vandamálið með hvíta skjáinn gæti verið að skjákortið sé eitthvað að bila, gæti svosem líka verið eitthvað að móðurborðinu sjálfu. Medion tölvur geta verið mikið vesen þegar eitthvað klikkar

En ég var svo annars ekki lengi að finna upplýsingar um þessa tölvu, þú getur nálgast bæklinginn
hér 
Re: HJÁLP
Sent: Fös 19. Sep 2008 00:28
af schaferman
takk,, en það er örugglega ómögulegt að fá svona skjákort er það ekki ?
Re: HJÁLP
Sent: Fös 19. Sep 2008 01:24
af DoofuZ
Ja, það fer eftir því hvort skjákortið í vélinni er innbyggt eða ekki. Og það eru því miður frekar góðar líkur á því að það sé innbyggt hjá þér eins og er hjá flestum og þá er ekki hægt að skipta um kort. Gætir annars svosem prófað bara að taka tölvuna aðeins í sundur til að skoða það, gætir þá líka séð hvort að það sé eitthvað annað að orsaka þetta eins og t.d. ef kæliviftan er full af ryki. Ég myndi samt ekki veðja á rykið þar sem þú myndir þá líklega heyra í viftunni fara á fullt með látum, nema viftan sé eitthvað biluð

Það allavega sakar ekki að opna hana og skoða ástandið

Re: HJÁLP
Sent: Fös 19. Sep 2008 01:49
af hh2
Tjékkaður hvort kapallinn hafi nokkuð losnað
skéður stundum að kapallinn losnar aftaná skjánum og þá getur fengið hvítan skjá

Re: HJÁLP
Sent: Fös 19. Sep 2008 11:41
af schaferman
úff,,,viftur snúast flott án hávaða,,,kapallinn vel tengdur,,, og þetta er ekki onboard skjákort,,hægt að plögga því úr rauf sem svipar til minnisraufa
Re: HJÁLP
Sent: Fös 19. Sep 2008 13:01
af hh2
Ekki er þetta AMD Turion 64bit vél?
Re: HJÁLP
Sent: Fös 19. Sep 2008 13:04
af TechHead
Tengdu external skjá við vélina til að útiloka bilun í LCD panelinum sjálfum.
Re: HJÁLP
Sent: Fös 19. Sep 2008 13:44
af schaferman
1,6 pentium eða 1,7 búinn að tengja aukaskjá, enn allt eins