Síða 1 af 1

Hvor sjónvarpsflakkarann ætti ég að taka?

Sent: Mið 17. Sep 2008 11:17
af Gogo
Góðan daginn, nú er tími til kominn fyrir mig að fá mér sjónvarpsflakkara og ég er búinn að vera að svipast um og reyna að finna þann besta fyrir peninginn.
Ég ætla að reyna að halda peningnum við svona 25-30 þús fyrir bæði flakkarann+harður diskur. Ég er búinn að finna tvo flakkara sem eru líklegir:

Fyrst er það Media Player sjónvarpsflakkari frá König 17.500 kr :
http://tb.is/?gluggi=vara&vara=6834

Ég hef heyrt góða hluti um hann frá manni sem á hann og er tækjagaur og hefur hann ekkert nema gott um hann að segja.
Eina sem ég er að pæla í með hann er að hann tekur að mér sýnist bara IDE harðadiska, er það mikill ókostur?
Með þessum flakkara myndi ég taka þennan harða disk:
http://www.computer.is/vorur/6674
Og þar sem tæknibær afgreiða diskana frá computer.is þá sagði hann að það væri ekkert mál fyrir þá að láta diskinn í frítt.
Þessi pakki væri - 27.500kr

Hinn flakkarinn sem éger að pæla í er Flakkari Unicorn 3,5" Mvix - 19.990kr : http://ejs.is/Pages/1034/itemno/MV6000R-COMBO
og myndi ég væntanlega taka þennan harða disk: http://www.computer.is/vorur/5867
og láta diskinn í sjálfur (getur varla verið svo mikið mál er það nokkuð?) þessi pakki væri á 27.490kr samtals.

Ég er alveg á báðum áttum með hvorn ég eigi að velja og ég vona að þið getið bent mér á hvorn af þessum þið mynduð velja og afhverju,
eða hvort þið mynduð fara í allt annan pakka á þessu verðbili.
Takk fyrir ef þið nenntuð að lesa í gegnum þennan texta :P

Með von um góða hjálp
Gogo

Re: Hvor sjónvarpsflakkarann ætti ég að taka?

Sent: Mið 17. Sep 2008 11:22
af GuðjónR
Ég tæki hvorugan, ég myndi taka þennan flakkara.

Re: Hvor sjónvarpsflakkarann ætti ég að taka?

Sent: Mið 17. Sep 2008 11:28
af Gogo
Takk fyrir ábendinguna en þetta er aðeins of dýrt fyrir mig, með hörðum diski væri þetta um 40.000, vill helst halda þessu á 25-30 þús verðbilinu,
en takk samt :)

Re: Hvor sjónvarpsflakkarann ætti ég að taka?

Sent: Mið 17. Sep 2008 11:37
af ManiO

Re: Hvor sjónvarpsflakkarann ætti ég að taka?

Sent: Mið 17. Sep 2008 11:43
af Gogo
Já takk fyrir ábendinguna, þessi fellur vel inn í verðhugmyndina og ég hef góða reynslu af tölvutækni þannig að hann kemur vel til greina,
er einhver með reynslu af Sarotech spilurunum? En eru báðir þessir spilarar sem mér var bent á alveg ómögulegir? :D
Takk fyrir hjálpina btw

Re: Hvor sjónvarpsflakkarann ætti ég að taka?

Sent: Mið 17. Sep 2008 12:06
af ManiO
Hef bara ekkert heyrt um þessa sem þú bentir á, en margir hér á vaktinni hafa verið ánægðir með Sarotech (alla vega minnir mig það :oops: ).

Re: Hvor sjónvarpsflakkarann ætti ég að taka?

Sent: Mið 17. Sep 2008 13:28
af Snorrivk

Re: Hvor sjónvarpsflakkarann ætti ég að taka?

Sent: Mið 17. Sep 2008 13:33
af Gogo
Já lítur allt í lagi út, en er enginn með reynslu af neinum þessara flakkara :P og skiptir miklu máli að fyrri flakkarinn er með IDE hörðum disk?

Re: Hvor sjónvarpsflakkarann ætti ég að taka?

Sent: Mið 17. Sep 2008 13:51
af Halli25
Gogo skrifaði:Já lítur allt í lagi út, en er enginn með reynslu af neinum þessara flakkara :P og skiptir miklu máli að fyrri flakkarinn er með IDE hörðum disk?

IDE er að deyja svo ég myndi frekar taka SATA flakkarann :)

Re: Hvor sjónvarpsflakkarann ætti ég að taka?

Sent: Mið 17. Sep 2008 13:59
af Gogo
Er það eina málið? Myndi ég ekki finna mun á hraða spilarans eða eitthvað slíkt? :P

Re: Hvor sjónvarpsflakkarann ætti ég að taka?

Sent: Mið 17. Sep 2008 14:04
af Halli25
Gogo skrifaði:Er það eina málið? Myndi ég ekki finna mun á hraða spilarans eða eitthvað slíkt? :P

Sata er hraðari staðall en IDE en ég efa að þú finnir rosalega fyrir því.

Re: Hvor sjónvarpsflakkarann ætti ég að taka?

Sent: Mið 17. Sep 2008 14:10
af machinehead
GuðjónR skrifaði:Ég tæki hvorugan, ég myndi taka þennan flakkara.


Þessi er MJÖG góður.

Re: Hvor sjónvarpsflakkarann ætti ég að taka?

Sent: Mið 17. Sep 2008 14:14
af Gogo
faraldur skrifaði:
Gogo skrifaði:Er það eina málið? Myndi ég ekki finna mun á hraða spilarans eða eitthvað slíkt? :P

Sata er hraðari staðall en IDE en ég efa að þú finnir rosalega fyrir því.


ok flott, takk fyrir hjálpina :)

Re: Hvor sjónvarpsflakkarann ætti ég að taka?

Sent: Mið 17. Sep 2008 14:59
af Gogo
Enginn annar sem hefur eitthvað um þetta að segja :P, langar að fá allar upplýsingar áður en ég ákveð mig :)

Re: Hvor sjónvarpsflakkarann ætti ég að taka?

Sent: Mið 17. Sep 2008 15:55
af ÓmarSmith
TVIX MSh 4100

Lang lang besti flakkarinn fyrir peninginn... Kostar um 33-34 án disks á flestum stöðum en hann spilar ALLA staðla. MKV líka sem er það besta sem þú færð.

Það er ekki ein mynd sem hefur klikkað hjá mér síðan ég fór úr SArotech yfir í TVIX.


Vertu sniðugur og fáðu þér Tvix..

Re: Hvor sjónvarpsflakkarann ætti ég að taka?

Sent: Mið 17. Sep 2008 15:59
af Halli25
ÓmarSmith skrifaði:TVIX MSh 4100

Lang lang besti flakkarinn fyrir peninginn... Kostar um 33-34 án disks á flestum stöðum en hann spilar ALLA staðla. MKV líka sem er það besta sem þú færð.

Það er ekki ein mynd sem hefur klikkað hjá mér síðan ég fór úr SArotech yfir í TVIX.


Vertu sniðugur og fáðu þér Tvix..

Ef hann er heppinn að finna þannig, skilst að hann sé hættur í framleiðslu :P

M6500 á að taka við en er sjúklega dýr víst: http://www.tvix.co.kr/Eng/products/HDM6500A.aspx

Re: Hvor sjónvarpsflakkarann ætti ég að taka?

Sent: Mið 17. Sep 2008 16:04
af Gogo
faraldur skrifaði:
ÓmarSmith skrifaði:TVIX MSh 4100

Lang lang besti flakkarinn fyrir peninginn... Kostar um 33-34 án disks á flestum stöðum en hann spilar ALLA staðla. MKV líka sem er það besta sem þú færð.

Það er ekki ein mynd sem hefur klikkað hjá mér síðan ég fór úr SArotech yfir í TVIX.


Vertu sniðugur og fáðu þér Tvix..

Ef hann er heppinn að finna þannig, skilst að hann sé hættur í framleiðslu :P


Sýnist þetta vera hann: http://www.tolvuvirkni.is/ip.php?inc=vi ... X_M-4100SH

Þetta er bara svooooo dýrrrrt :(. Sé hvort ég get pluggað þessu einhvernveginn, en svolítið leiðinlegt að hafa fengið lítið input um flakkarana sem ég postaði :/ takk fyrir ábendinguna

Re: Hvor sjónvarpsflakkarann ætti ég að taka?

Sent: Mið 17. Sep 2008 16:26
af Halli25
Lítt þekkt merki hérna á markaðnum þeir sem þú fannst svo mjög fáir sem hafa líklega keypt þá :)

Re: Hvor sjónvarpsflakkarann ætti ég að taka?

Sent: Mið 17. Sep 2008 16:32
af Gogo
Já ok ég skil, en ef þið lítið á tækniupplýsingarnar um þá, virðast þær vera í lagi, þ.e. skráar formöttin sem þau spila og svo framvegis, takk fyrir hjálpina btw :)

Re: Hvor sjónvarpsflakkarann ætti ég að taka?

Sent: Mið 17. Sep 2008 16:46
af Gogo
Vill þakka öllum fyrir hjálpina, lítur allt út fyrir það að ég fari að blæða og kaupi DVICO TVIX. :)

Re: Hvor sjónvarpsflakkarann ætti ég að taka?

Sent: Mið 17. Sep 2008 23:46
af Cikster
Ég á Mvix 760HD og hann er ekki svo slæmur svosem en framleiðandinn hefur ekki veitt nógu gott support finnst mér.

Spilarinn minn er með bæði ethernet og wlan þannig að á ekki að vera erfitt að koma hlutum inn á hann en ... þegar ég keypti hann var ekki komið supportið fyrir það ennþá þótt framleiðandinn hafi lofað að það mundi koma í uppfærslu síðar.

Svo loksins kom uppfærslan þannig að maður gæti sett hluti inn á hann gegnum lan en það endaði á að vera eitthvað bévítans forrit sem átti að rukka fyrir (en var svosem engin vandi að brjótast gegnum og fá til að virka ef maður vissi hvað maður var að gera). Það forrit virkar síðan þannig að ef þú ert með fleiri en eina tölvu á heima netinu þá getur bara ein þeirra verið með skrif réttindin á drifið og ef maður mundi vilja setja hluti frá annari tölvu verður maður fyrst að "unmounta" það á tölvunni sem er með skrif réttindin og "mounta" á hina tölvuna.

Oh well, you live and learn. Reyndar uppfærðu þeir hann aftur og settu inn net útvarpsstöðvar sem var komið í nýrri týpuna ( 780HD heitir hann og er fyrir sata diska en ekki ide eins og 760HD er) en það var ekki fyrr en einhverjir sem áttu 760HD spilara voru búnir að ná að breyta "Firmware" sem er í 780 spilaranum þannig að það mundi virka á 760.

shee, þetta átti bara að vera stutt svar en allavegana þetta er það litla sem ég veit af Mvix.