Síða 1 af 1
Nokkrar Fartölvur
Sent: Sun 31. Ágú 2008 15:00
af Carragher23
Okei, ég gerði þráð hérna um daginn um LG vél sem mér var boðið. Ég hætti að vísu við þá vél og ástæðan er sú að ég hef ekkert gott heyrt um þessa tilteknu vél né merki. Ég veit ekki mikið um fartölvur en er þó búinn að skera þetta dáldið niður, HP og Dell eru bestu vélarnar á íslandi. Heyrði reyndar að þessar nýju HP vélar (
http://tolvutaekni.is/product_info.php? ... ts_id=1134 ) t.d. þessi vél sem að ég hef verið að skoða séu með eh galla í kjarnanum í skjákortinu, hvað em það nú er :S
Alltílæ, hér fyrir neðan ætla ég að koma með lista yfir tölvurnar sem ég hef skoðað:
http://tolvutaekni.is/product_info.php? ... ts_id=1125 ( hversu gott merki er Toshiba í ferðatölvum ?
http://ejs.is/Pages/971/itemno/XPSM1330%252313-BLACK ( sama skjákort og í HP eða hvað ? )
Svo datt ég inná vélar í gær frá Packard Bell (
http://www.tolvuvirkni.is/ip.php?inc=vi ... MT85-T-149 ). Fyrir þetta verð er þetta það langbesta sem ég hef séð so far. Allur vélbúnaður er töluvert góður en mér langar eiginlega að fá álit manna sem vita eittvað. Allar ábendingar væru vel þegnar sérstaklega þar sem ég þarf að drífa mig að kaupa vél fyrir skólann.
*EDIT* Mér var bent á þessa vél líka (
http://www.tolvuvirkni.is/ip.php?inc=vi ... us%20M51SN ) minna minni en betra skjákort sagði kallinn. En enn og aftur þá þekki ég ekkert til þessara merkja. Hvernig er Asus ? Ending, bilanatíðni og þessháttar ?
Fyrirfram þakkir.
Re: Nokkrar Fartölvur
Sent: Sun 31. Ágú 2008 15:33
af ManiO
Fyrir hvað ertu að fara að nota tölvuna?
Re: Nokkrar Fartölvur
Sent: Sun 31. Ágú 2008 16:22
af coldcut
packar bell tölvan er mjög flott...ekki fá þér dellXPS tölvuna því það er bara 2gb vinnsluminni en samt er Windows Vista á henni, af hverju selja tölvubúðir þetta?
eina sem mér finnst pirrandi við Packard Bell tölvuna er að snertimúsin er á leiðinlegum stað =/
Re: Nokkrar Fartölvur
Sent: Sun 31. Ágú 2008 17:34
af Carragher23
Vélin verður sennilega mest notað bara í internet og myndagláp. En málið er bara að mér langar til að hafa möguleikann á því að geta skellt inn góðum leik ef mér dettur það í hug.
Ég sjálfur hef bara orðið mjög lítið var við þessar Packard Bell vélar, reynsla..bilanatíðni og ending. Einhver ?
Re: Nokkrar Fartölvur
Sent: Þri 02. Sep 2008 16:24
af Carragher23
http://www.tolvuvirkni.is/ip.php?inc=vi ... us%20M51SNHvernig er þessi í samanburði við Packard Bell vélina ? minna minni en betra skjákort og 10þús dýrari ?
Re: Nokkrar Fartölvur
Sent: Þri 02. Sep 2008 19:12
af Nariur
coldcut skrifaði:packar bell tölvan er mjög flott...ekki fá þér dellXPS tölvuna því það er bara 2gb vinnsluminni en samt er Windows Vista á henni, af hverju selja tölvubúðir þetta?
eina sem mér finnst pirrandi við Packard Bell tölvuna er að snertimúsin er á leiðinlegum stað =/
2 gíg höndla vista vel
Re: Nokkrar Fartölvur
Sent: Þri 02. Sep 2008 19:54
af Carragher23
Já mér var bara sagt að það væri í lægri kantinum sérstaklega ef þú ert með einhver þung forrit líka :/
Re: Nokkrar Fartölvur
Sent: Þri 02. Sep 2008 20:04
af Nariur
ja... ég er með 3 gíg reyndar og vinnsluminnið er sá partur tölvunnar sem er lengst frá því að vera flöskuháls
Re: Nokkrar Fartölvur
Sent: Þri 02. Sep 2008 20:44
af Pink-Shiznit
myndi nú aldrei fyrir mitt litla líf fá mér packard bell...aldrei nokkurn tímann. Frekar Acer....aldrei klikkað hjá mér og mínum
Re: Nokkrar Fartölvur
Sent: Þri 02. Sep 2008 20:59
af Carragher23
Tja...geturu rökstutt þetta ? Alveg endilega
Hef aldrei heyrt neitt slæmt um PB..:S en ég veit svosem ekki mikið
Re: Nokkrar Fartölvur
Sent: Þri 02. Sep 2008 22:01
af Blasti
Lenovo Thinkpad, ekkert stenst þann samanburð
Re: Nokkrar Fartölvur
Sent: Fim 04. Sep 2008 21:38
af boot.ini
Ef ég væri að fá mér vél í dag þá væri það þessi:
http://www.ok.is/fyrirtaeki/vorur/RQ636AV-71678219/default.aspxHef líka góða reynslu af Dell en ég er á því að HP sé stálið í dag.
Re: Nokkrar Fartölvur
Sent: Fös 05. Sep 2008 06:01
af BeMostWanted
Ég get nú sagt ykkur það að Packard Bell er það versta rusl sem ég hef komist í kynni við, ég hef starfað við sölu og viðgerðir á bæði dell tölvum hjá EJS sem og Lenovo og thinkpad hjá nýherja svo ég veit nokkuð vel um hvað ég tala. Litla systir mín ákvað GEGN mínu ráði að kaupa sér packard bell tölvu þar sem hún fékk tölvu með góða speca á ágætis verði. Ég ákvað að segja ekki orð þegar hún kom með hræið heim ákvað ég að segja ekki orð...en ég þurfti þess ekki, eftir um klukkutíma slökkti tölvan á sér, mig grunaði vegna hita þar sem að vélin var GLÓANDI kringum lyklaborðið (aðalega þar sem skjákortið er). Litla systir lét sér ekki segjast fór ekki með vélina og kveikti aftur...þá kom í ljós að webcamið sem er innbyggt í vélina virkaði ekki. Eftir að hafa farið með þá vél 3x niður í tölvutek ákváðu þeir að skipta um vél fyrir okkur eftir STANSLAUST tuð um að fá nýja vél. Sú vél kom heim með okkur og entist í um það bil viku þá byrjaði hún að hitna og vera með stæla við okkur og webcamið líka. Þeirri vél var skilað og þeir lofuðu að láta okkur fá nýja, þegar sú vél kom heim var uppsettur notandi á hana, persónulegar myndir af einhverjum gæjum sem hafa greinilega skilað þessari vél, tek það fram að hann sagðist ætla að sjá til þess að við fengjum NÝJA vél sem maður býst nú við þegar maður er að skila nýjum hlutum sem hafa verið gallaðir, jæja á endanum fengum við svo nýja vél og hvað haldi þið? HÚN ER MEÐ SAMA VANDAMÁL OG HINAR 2 webcamið virkar ekki, hún of hitnar og hefur systir mín lent í því að þessi elsku maskína slekkur á hana þegar hún er í miðjum klíðum að skrifa ritgerðir(skemmtilegt það
. Og til þess að kóróna allt þá koma grænir blettir í skjáinn hér og þar þegar hún hefur verið í gangi í ca klukkutíma. Tölvutek hefur tekið vélina af okkur 2x og segist alltaf vera búnir að laga hana, en alltaf lendum við í sömu vandamálum með hana.
Ég segi bara eitt við ykkur....EKKI KAUPA ÞETTA RUSL!