Síða 1 af 1
Þráðlaust netkort, óstabílt !
Sent: Sun 10. Ágú 2008 16:56
af pulsar
Er að verða geggjaður í hausnum útaf þessu bölvaða rusli, keypti mér ódýrt og fínt infosmart netkort í kísildal í júní og ég fór eftir leiðbeiningum hvernig á að setja þetta upp og það virtist allt saman virka vel, það kom engin melding um ranga uppsetningu eða neitt. Okei, netið virkar fínt en bara í smá stund.. það má ekki vera neitt álag, s.s youtube, online tölvuleikir, download eða neitt þá dettur það bara út. Það missir samband við routerinn, það er það sem skeður, en ég kemst aftur á netið ef ég disable > enable-a í Network Connections.. ef ég er bara á msn þá hefur það haldist inni í 2 tíma mest, en það má bara ekkert reyna á netið.
Ég er búinn að setja þetta upp oftar en einu sinni en alltaf lendi ég í sama vandamálinu með þetta viðkvæma drasl, enginn virðist vita hvað gæti verið að, sumir segja að þráðlaust sé bara sorp og aðrir segja að þetta sé bara routerinn að stríða mér eitthvað. Einhverjar lausnir?
Re: Þráðlaust netkort, óstabílt !
Sent: Sun 10. Ágú 2008 17:19
af Pandemic
Veit reyndar ekki hvort það skipti neinu máli en, ég á D-link Gigabit netkort og það stendur á rauðum miða með því að setja upp driverana áður en kortið er sett í vélina.
Re: Þráðlaust netkort, óstabílt !
Sent: Sun 10. Ágú 2008 19:00
af pulsar
Það hlýtur að vera fyrst það stendur á rauðum miða
Manualið segir mér að gera það líka, ég gerði það og tölvan fraus þegar ég bootaði henni svo upp eftir að ég setti kortið í.
Kom bara blár error skjár
Re: Þráðlaust netkort, óstabílt !
Sent: Mið 13. Ágú 2008 00:42
af pulsar
to the top
Re: Þráðlaust netkort, óstabílt !
Sent: Mið 13. Ágú 2008 01:08
af Gúrú
Ég gerði þetta allt rétt þegar ég keypti mitt nýtt, og mitt virkar ekki heldur lengur..
Re: Þráðlaust netkort, óstabílt !
Sent: Mið 13. Ágú 2008 01:55
af Gets
Ég fékk mér líka þetta infosmart netkort í kísildal í sumar og er að lenda í þessu sama, það dettur út eftir smá tíma og ef ég slekk á vélinni með netið í lagi þá þarf ég undantekningarlaust að gera repair þegar velin er komin upp aftur til að netkortið virki aftur.
Ég held að ruslafatan sé eina lausnin í þessu máli og prófa bara eitthvað annað netkort.
Re: Þráðlaust netkort, óstabílt !
Sent: Mið 13. Ágú 2008 09:45
af Klemmi
Gets skrifaði:Ég fékk mér líka þetta infosmart netkort í kísildal í sumar og er að lenda í þessu sama, það dettur út eftir smá tíma og ef ég slekk á vélinni með netið í lagi þá þarf ég undantekningarlaust að gera repair þegar velin er komin upp aftur til að netkortið virki aftur.
Ég held að ruslafatan sé eina lausnin í þessu máli og prófa bara eitthvað annað netkort.
Ef kortið er ekki að virka sem skildi þá hlýtur það að falla undir ábyrgð
Býst við að þeir í Kísildal skipti því út með glöðu geði, enda hljóta þeir að fá þetta í ábyrgð.
Re: Þráðlaust netkort, óstabílt !
Sent: Mið 13. Ágú 2008 10:21
af elgringo
Þetta er ekkert flókið.
http://www.infosmart.com.tw/download.htmNærð í driver fyrir netkortið og fyrir viðeigandi stýrikerfi. Ef þetta virkar ekki, þá skaltu fara og skila kortinu þínu og fá þér annað. Mæli með Linksys.
Gangi þér vel.
Re: Þráðlaust netkort, óstabílt !
Sent: Mán 13. Okt 2008 05:39
af pulsar
Jæja, ég uppfærði bara driverinn í gegnum device manager.. allt virkar flott núna.
og já, about time