Síða 1 af 1
Innvið tölvunnar ykkar, þema: "hýsingar harðra diska"
Sent: Sun 22. Jún 2008 01:45
af Harvest
Góðan dag.
Þar sem mér finst hafa verið pínu lægð yfir vaktinni undanfarna klukkutíma

(og sérstaklega þessum skemmtilega umræðuhóp) langar mig til að þið vaktarar sýnið okkur hverning innviði kassanna ykkar er með þemað
"hýsing harðra diska". En þið megið líka sýna okkur hvernig þið hagræðið t.d. eitthverjum hlutum í kössunum ykkar (mini-mods osf).
Ég vil nú sjá alvöru vaktara taka við sér og sýna okkur myndir og skrifa netta lýsingar á dótinu sínu (þeas. kassa-týpa, vélbúnaður, fjöldi harðra diska, kælibúnaður, breytingar frá uppruna ofl.).
Með þessu vona ég að vaktarar vakni upp við blautan draum og sýni á sér punginn.
Þetta þarf ekkert að vera eitthvað hrikalega mikið sem þið eruð að gera eins og áður sagði. Bara eitthvað sem gæti örvað frjósemi annarra.
Ég ætla að starta þessu með mynd sem ég fann á netinu, gott dæmi:
Mættuð gjarnan upplýsa mig um hvaða kassi þetta sé.
(hendi inn myndum af mínu dóti um leið og ég fæ myndavélina mína til baka

)
Re: Innvið tölvunnar ykkar, þema: "hýsingar harðra diska"
Sent: Sun 22. Jún 2008 02:30
af urban
Tjahh þessa mynd sá ég fyrst fyrir mörgum mörgum árum þá var aðili semm að kallaði sig OFI, var op á dci á sínum tíma og hann vildi alltaf meina það að þetta væri sín vél, ég reyndar trúði honum aldrei

hvort að það sé satt veit ég nú ekki.
en ég er semsagt með í vélinni hjá mér
1x74 GB raptor
1x 200 GB dl disk
1x 200 GB flakkara
og síðan á ég 500 GB tv flakkara
bróðir minn er síðan með hjá sér 500 GB í vélinni og 500 GB tv flakkara
síðan er í vélinni hjká múttu 2 160 GB diskar.
þannig að þetta er eitthvað rétt um það bil 2 TB samtals hérna á heimilinu.
1.4 TB laus ca (vá hvað við þurfum að vera duglegari við að dla við bræðurnir)
Re: Innvið tölvunnar ykkar, þema: "hýsingar harðra diska"
Sent: Sun 22. Jún 2008 02:31
af littel-jake
Ég mundi gjarnan vilja fá eitt stikki af þessu móðurborði

Re: Innvið tölvunnar ykkar, þema: "hýsingar harðra diska"
Sent: Sun 22. Jún 2008 15:18
af Gúrú
littel-jake skrifaði:Ég mundi gjarnan vilja fá eitt stikki af þessu móðurborði

http://kisildalur.is/?p=2&id=134" onclick="window.open(this.href);return false;
^^
Re: Innvið tölvunnar ykkar, þema: "hýsingar harðra diska"
Sent: Sun 22. Jún 2008 19:24
af ManiO
Af myndinni að dæma eru þetta flest allt IDE diskar, þeas sýnist mér. Og þessir gulu kaplar eru skuggalega líkir köplunum sem fylgdu DFI LanParty borðinu sem ég á.
Re: Innvið tölvunnar ykkar, þema: "hýsingar harðra diska"
Sent: Mán 23. Jún 2008 01:03
af urban
Þetta eru alveg pottþétt IDE diskar
allavega ef að ég man rétt þá kemur SATA ekki í gagnið fyrr en 2003 eða 2004
ég sá þessa mynd fyrst í kringum 2001
Re: Innvið tölvunnar ykkar, þema: "hýsingar harðra diska"
Sent: Mán 23. Jún 2008 03:24
af DaRKSTaR
mjög líklega scsi diskar.
hver scsi controller tekur gríðarlegt magn af þeim já og tekur lítið sem ekkert cpu að keyra þá.
gæti verið að nýta ide controllerinn á borðinu fyrir nokkra og rest verið scsi.
Re: Innvið tölvunnar ykkar, þema: "hýsingar harðra diska"
Sent: Mán 23. Jún 2008 10:00
af ManiO
Ef þetta eru SCSI diskar þá eru þettar gífurlegir fjármunir sem við erum að horfa á

Re: Innvið tölvunnar ykkar, þema: "hýsingar harðra diska"
Sent: Mán 23. Jún 2008 10:47
af urban
DaRKSTaR skrifaði:mjög líklega scsi diskar.
hver scsi controller tekur gríðarlegt magn af þeim já og tekur lítið sem ekkert cpu að keyra þá.
gæti verið að nýta ide controllerinn á borðinu fyrir nokkra og rest verið scsi.
ég hugsa að þetta séu nú bara IDE
ok þetta eru ca 22 diskar.
gerum ráð fyrir að það séu 2 tengi á móðurborði og þar að leiðandi 4 diskar tengdir þar.
þá eru eftir 18 diskar sem að deilast á 9 rásir.
ekkert mál að koma því fyrir á ide pci tengispjöldum
aftur á móti hugsa ég að það sé svolítið MIKILL hiti í þessum blessaða kassa, þar sem að þetta er jú bara veggur af hddum að framan og víraflækja fyrir aftan þá.
Re: Innvið tölvunnar ykkar, þema: "hýsingar harðra diska"
Sent: Mán 23. Jún 2008 11:04
af ManiO
Eru SCSI diskar líka með svona þykkum snúrum og molex tengjum?
Re: Innvið tölvunnar ykkar, þema: "hýsingar harðra diska"
Sent: Mán 23. Jún 2008 11:44
af TechHead
Þetta eru IDE diskar ekki SCSI.
Það eru engin SCSI terminal tengi á diskunum á þessari mynd.
Re: Innvið tölvunnar ykkar, þema: "hýsingar harðra diska"
Sent: Lau 26. Júl 2008 22:54
af kbg
Svona lítur hýsingin út hjá mér

Re: Innvið tölvunnar ykkar, þema: "hýsingar harðra diska"
Sent: Lau 26. Júl 2008 23:57
af Harvest
kbg skrifaði:Svona lítur hýsingin út hjá mér

Þetta er eitt það magnaðasta ráð sem ég hef séð
Loftar vel um diskinn og hann víbrar ekkert!
Frábærlega útfært og ódýrt.
Re: Innvið tölvunnar ykkar, þema: "hýsingar harðra diska"
Sent: Sun 27. Júl 2008 00:03
af Gúrú
kbg skrifaði:Svona lítur hýsingin út hjá mér

Snilld, snilld.
Re: Innvið tölvunnar ykkar, þema: "hýsingar harðra diska"
Sent: Sun 27. Júl 2008 00:18
af TechHead
kbg skrifaði:Svona lítur hýsingin út hjá mér

Góð lausn, en ég myndi fjárfesta í öðruvísi teygjum þar sem þessar hefðbundnu gúmmíteygjur þorna fljótt upp og slitna auðveldlega.
Re: Innvið tölvunnar ykkar, þema: "hýsingar harðra diska"
Sent: Sun 27. Júl 2008 00:50
af kbg
TechHead skrifaði:
Góð lausn, en ég myndi fjárfesta í öðruvísi teygjum þar sem þessar hefðbundnu gúmmíteygjur þorna fljótt upp og slitna auðveldlega.
Já ég hef stundum skipt um teygjur öðru hverju, ég setti líka afgangs paxmate undir diskinn til að taka við högginu ef hann dettur.
En hann hangir bara 1 millimetra fyrir ofan þannig að það er ekkert stórmál ef það gerist
Spurning hvar maður fær betri teygjur? Er einhver almennileg teygjubúð hérna á klakanum?

Re: Innvið tölvunnar ykkar, þema: "hýsingar harðra diska"
Sent: Sun 27. Júl 2008 01:45
af Blackened
kbg skrifaði:TechHead skrifaði:
Góð lausn, en ég myndi fjárfesta í öðruvísi teygjum þar sem þessar hefðbundnu gúmmíteygjur þorna fljótt upp og slitna auðveldlega.
Já ég hef stundum skipt um teygjur öðru hverju, ég setti líka afgangs paxmate undir diskinn til að taka við högginu ef hann dettur.
En hann hangir bara 1 millimetra fyrir ofan þannig að það er ekkert stórmál ef það gerist
Spurning hvar maður fær betri teygjur? Er einhver almennileg teygjubúð hérna á klakanum?

Væri hægt að nota slöngu úr reiðhjóladekki reikna ég með.. helsterkur andskoti