Síða 1 af 1
Vodafone lélegur hraði til útlanda.
Sent: Sun 08. Jún 2008 18:27
af Windowsman
Ég er með 8mb/s tengingu hjá Vodafone og inni á lokuðum torrent síðum þegar yfir 1800 seaders eru þá fæ ég aðeins 30kb/s.
Af einhverri ástæðu næ ég líka bara að tengjast 118 peers og lélegur hraði.
Ég er að nota Ubuntu og fæ góðan hraða á íslenskum torrent síðum jafnt og huga en lélegan á erlendum síðum.
Þegar ég sótti síðasta Simpsons þáttin fékk ég 500kb/s í hraða stöðugt en síðan þá hef ég bara náð drasl hraða.
Ég nota KTorrent og er með opið port er reyndar að uploada núna í maxi en það ætti ekki að breyta neinu.
Er einhver skýring á þessum lélega hraða hjá mér og er einhver síða sem að ég get athugað hraðan s.s. erlend síða til að athuga hvort að vandamálið væri hjá vodafone?
Re: Vodafone lélegur hraði til útlanda.
Sent: Sun 08. Jún 2008 19:53
af Matti21
http://www.speedtest.net/Vodafone hendir allri torrent umferð í klósettið á deginum til. Það er ekki fyrr en svona 12-1:00 um kvöldið sem að torrent umferðin hoppar eitthvað ofar í forgangsröðinni. Þá sérstaklega utanlandsumferðin.
Hef bókstaflega horft á torrent hjá mér fara úr 50-60kB/s í 600-700kB/s á einni mínútu. Þú gætir svo sem verið að fá meiri hraða en hugnsanlega eru bara allir aðrir peers langt frá þér. Ég er allavega að downloada núna, frá Bit-HDTV, torrenti með um 200 deilendur og er að fá stöðug 100kB/s (8mb tenging hjá vodafone). Dæmigert fyrir tíma dagsins, en á nóttunni fæ ég auðveldlega 600kB/s+ frá sömu síðu.
Samt ef þú spyrð mig finnst mér eiginlega vodafone skárstir í dag. Hive hefur allan tíman verið með skelfilegan utanlandshraða, ótakmarkað erlent niðurhal hjá símanum er orðið = 25GB og ef þú ferð yfir það þá lækka þeir hraðan þinn umtalsvert. Hef voða lítið skoðað Sko en það sem ég hef heyrt hefur ekki verið neitt frábært og nú er það og Hive orðið sama fyrirtækið.
Ég er sáttastur hjá Vodafone en um leið og það kemur bréf um að það eigi loksins að leggja ljósleiðara í götuna mína mun ég bjóðast til þess að leggja hann sjálfur, frítt, ef það þýðir að ég geti fengið hann degi fyrr.
Re: Vodafone lélegur hraði til útlanda.
Sent: Mán 09. Jún 2008 12:53
af Windowsman
Ég hef nú ekkert val með tengingu fæ þessa frítt frá Glitni þannig að ég er ekkert að kvarta.
Finnst þetta bara slappur hraði en af einhverri ástæðu virðist Speedtest.net aldrei virka hjá mér væntanlega vegna þess að ég er að nota Ubuntu en t.d. þegar ég sæki forrit af Filehippo þá fæ ég 40KB/s er til dæmis að sækja torrent núna og fæ aðeins cirka 5kb/s og er með 9 seeders.
Skipti yfir í Xp núna til að sjá Speedtest.
Edit:
Tók speedtest til Færeyja,UK og Rússlands.
Á í KB/s að fá fræ Færeyjum 320 UK 315 ca og Rússlandi á ég að fá 250 tæpar.
Re: Vodafone lélegur hraði til útlanda.
Sent: Þri 10. Jún 2008 07:53
af Sallarólegur
Ég er hjá símanum, fínn hraði hérna megin
Re: Vodafone lélegur hraði til útlanda.
Sent: Þri 10. Jún 2008 11:29
af Darknight
vodafone eru svindlarar, skiptu um ISP
Re: Vodafone lélegur hraði til útlanda.
Sent: Þri 10. Jún 2008 12:13
af Windowsman
Get ekki fyrirtækistenging og hún virkar mjöög vel fyrir utan þetta vesen.