Síða 1 af 1
100 milljónir fyrir 6 vikur.
Sent: Mán 05. Maí 2008 19:04
af machinehead
Nú ertu Frakkar að fara að gæta lofthelgis okkar fyrir óæskilegri loftumferð næstu vikurnar.
Hvað finnst fólki um þetta?
Er það þess virði að borga 100.000.000 kr. fyrir 6 vikur?
Re: 100 milljónir fyrir 6 vikur.
Sent: Mán 05. Maí 2008 19:23
af Gúrú
Borga 100 milljón fyrir einhvað sem ég sé engan tilgang til að gera, og menga andrúmsloftið?
Naa ekki þess virði
Re: 100 milljónir fyrir 6 vikur.
Sent: Mán 05. Maí 2008 19:24
af Dazy crazy
Veit ekki, þeir gætu kannski tekið á hraðakstri. "þarna er einn, eigum við að droppa einni...(geðveiktubersprengjuhljóð)... hann á ekki eftir að verða einhverjum að bana í framtíðinni.... mission accomplished."
Held að þetta sé ekki gáfulegt núna í "KREPPUNNI".
Nei held ekki frekar að borga lögreglunni einhverjar 100.000.000.
Re: 100 milljónir fyrir 6 vikur.
Sent: Mán 05. Maí 2008 19:26
af Gúrú
Dazy crazy skrifaði:Veit ekki, þeir gætu kannski tekið á hraðakstri. "þarna er einn, eigum við að droppa sprengju..... hann á ekki eftir að verða einhverjum að bana í framtíðinni.... mission accomplished."
Held að þetta sé ekki gáfulegt núna í "KREPPUNNI".
Nei held ekki frekar að borga lögreglunni einhverjar 100.000.000.
Þar inní kemur hvort hann hefði bjargað einhverjum í framtíðinni.
Og nei, ekki borga lögreglunni 100 milljónir heldur nota þær í einhvað sem lætur Ísland líta vel út, t.d. rækta svona milljón tré einhversstaðar úti á akranesi eða einhvað.
Re: 100 milljónir fyrir 6 vikur.
Sent: Mán 05. Maí 2008 19:31
af Dazy crazy
Já, ég var nú bara að reyna að vera "stjórnmálamannslegur" að tala um lögregluna.
Persónulega finnst mér að menn ættu að hætta við þetta og gera eitthvað megagáfulegt eins og 20 millur í trjárækt (bændum eru borgaðar 10 krónur fyrir tréð og girðingarnar borgaðar á 10 ára tímabili) og 60 millur í þróun rafmagnsbíla og 19 í þróun fjarskipta úti á landi þar sem fólk hefur einungis aðgang að isdn+ sem er 20000 króna mánaðareikningur.
Og eina handa mér.
