Síða 1 af 2
Bíómiðaverð hækkar
Sent: Mán 07. Apr 2008 11:22
af Oxide
Jæja, nú skellur á okkur enn ein hækkunin á bíómiðaverði. Eftir hækkunina kostar miðinn 1000 kall!
Ég er ekkert smá sáttur við að vera loksins búinn að koma mér upp góðu heimabíói þar sem ég ætla ekki að borga 1000 krónur til þess að fara í bíó.
Ef ég og konan förum kosta miðarnir 2000 kall. Ef við fáum okkur popp og kók er það um 700 kall á mann, eða um 1400 krónur, og ég tala nú ekki um ef eitthvað nammi fær að fljóta með.... þá er heildarkostnaðurinn orðinn 4000 kall.
Nei takk, ég bíð heldur rólegur og kaupi myndina á Blue Ray eða leita á náðir internetsins.
Hérna er fréttin á mbl.is um hækkunina.
Re: Bíómiðaverð hækkar
Sent: Mán 07. Apr 2008 12:04
af GuðjónR
Það kostar orðið slatta að fara í bíó með konuna og þrjú börn. 700kr popp og kók ????? á mann???? fyrir 700kr er hægt að kaupa nægan mais til að poppa fyrir 1000 manns!
Muniði síðast þegar dollarinn hækkaði mikið (fór upp undir 120kr) þá fór bíómiðinn úr 5-600 í ~850kr, þremur-fjórum árum síðar var dollari í sögulegu lágmarki (55-58kr) og þá var hækkað í 900 kr.
Núna kemur smá hækkun dollars eða úr 67 kr í 74 kr og þá nota þeir tækifærið.
Svo eru Smáís og þeir allir undrandi á því að fólk steli "myndum og tónlist". Mér finnst svona verðlagning ekkert annað en rán.
En meðan fólk sættir sig við þetta og er tilbúið að borga þetta þá auðvitað kemur þetta bara til með að hækka áfram.
Ekki gleyma að fara í bíó og kaupa popp og kók er ekki sama og kaupa bensín. Við verðum að kaupa bensín.
Re: Bíómiðaverð hækkar
Sent: Mán 07. Apr 2008 12:38
af TechHead
Skil ekki fúttið í því að fara á mynd í subbulegum sal skipuðum 300 manns með svita og táfýlu og oftar en ekki læti og óskunda sem truflar mann við að njóta myndarinnar.
Svo í ofanálag á að fara að ræna af manni 1000 kr til að njóta fyrrgreindra "forréttinda".
Ástæða hækkunar á miðaverði launahækkarnir
anyone?
Hef ekki stigið fæti í kvikmyndahús síðastliðin 4 ár og mun ekki gera það í framtíðinni.
Enda er ég með fínt HTPC setup sem þjónar öllum mínum kvikmyndagláps þörfum + það að myndirnar eru oftar en ekki í HD gæðum heima fyrir
Fuck the Cinema.
Re: Bíómiðaverð hækkar
Sent: Mán 07. Apr 2008 14:25
af HemmiR
Ég verð samt að segja það að það er gamann að fara í bío með vinum.. Fór seinast í bíó fyrir 2 vikum á myndina Stóra Planið sem var alls ekki nógu góð til að borga fyrir að sjá hana.. og miðinn kostaði 1200kr ef ég man rétt á akureyri svo þurfti ég náttúrlega að kaupa mér stóra kók og popp og það kostaði e-ð smá undir 500krónunum.. svo þetta var bara rándýrt meðað við skemmtun. Frekar hefði maður átt að kaupa bara nóg af svínsfæði og bjóða vinunum heim og horfa á mynd i heimabíóinu og + það að ég er jú utanbæjar pakk og við þurftum að keyra til akureyrar til að fara í bíó þarsem það er ekkert bíó á Húsavík eins og stendur þannig þá var einn vinur minn líka að borga bensín ekki það að við hefðum allveg getað borgað bensínið samann en gerðum það ekki í þetta skipti. En já ekki fara í bíó á stóra planið hún er bara ekki þess virði. Svona gangsta mynd virkar einhvernveginn ekki á islandi finnst mér
Re: Bíómiðaverð hækkar
Sent: Mán 07. Apr 2008 14:29
af GuðjónR
Júbbb....1000kr fyrir miðan er náttlega ein geðveikin en 700kr fyrir hænsamat og kolsýrt vatn er náttlega algjör geggjun.
Ég fór á Matrix í maí 2003 og síðan þá hef ég farið 2x með eldri stelpuna í teiknimynd í þrjúbíó.
Síðara skiptið þá var það í krinlgubíó og hávaðinn var slíkur að fólk flúði salinn umvörpum með börnin sín.
Fór með mína grátandi út á miðri sýningu, hef ekki farið í bíó síðan. Mig grunar að þeir hafi verið með power sýningu daginn áður og gleymt að lækka.
Svo er eitt sem truflaði mig óstjórnlega, það er þegar gelgjurnar eru endalaust að senda og fá SMS á sýningunum og salurinn blikkar eins og jólasería.
Re: Bíómiðaverð hækkar
Sent: Mán 07. Apr 2008 14:35
af appel
Þetta er líka sérstaklega áhugavert miðað við að miðinn í leikhús kostar 1.500-3.000 kr., og þar er um að ræða LIVE sýningu... þ.e. raunverulegt fólk og leikarar sem eru að leika fyrir þig en ekki einhverja endurspilun á vídjómynd.
Annars snertir þetta mig voða lítið, nokkuð sama um verðið í bíó, enda hættur að fara í bíó. Betra að glápa á þetta heima bara
Re: Bíómiðaverð hækkar
Sent: Mán 07. Apr 2008 15:03
af ÓmarSmith
Vá
1997 fór ég í bíó svona 2 x í viku lágmark og þá kostaði miðinn minnir mig 550 kall. Bíó í dag er orðinn bara munaður sem fáir geta leyft sér.
Ef bíóferð er að kosta meðal mann svona lágmark 1500 kall í hvert skipti, og sami aðilli er með þokkalegt heimabíó og stórt TV, uhhh.... u do the m ath.
Svo eru smáís að furða sig á að fólk " steli " bíómynd. Er ekki alveg eins verið að stela af okkur þegar við borgum 1000 kall fyrir bíóferð með "táfýlu"
Er löngu hættur að fara í bíó ... and it stays that way.
Re: Bíómiðaverð hækkar
Sent: Mán 07. Apr 2008 15:20
af hallihg
Ætli ég fari ekki 3x í mánuði í bíó að jafnaði á ársgrundvelli.
Stundum er margt gott að sjá en stundum (eins og stuttu eftir óskarsverðlaunin), þá er bara rusl í bíó.
En það er rétt þetta er orðið drullu dýrt, og maður ætti varla að sætta sig við þetta.
Svo reyndar segja margir að þetta sé bara svipað og í BNA og helstu löndum Evrópu.
Ég hef einu sinni farið í bíó erlendis, það var í Berlín. Fór í bíóið í Sony Centerinu á Potsdamplatz (sjúkt dæmi -
http://www.essential-architecture.com/G ... tNight.jpg ). Það var dýrara en hérna heima en held að það hafi verið útaf einhverju Sony okri.
Re: Bíómiðaverð hækkar
Sent: Mán 07. Apr 2008 15:28
af Oxide
Það að bíóverð sé svipað hér og úti er á sér enga stoð í raunveruleikanum.
Ég bjó í Kanada á síðasta ári og þar kostaði miðinn 500 kall, og það í bíóhúsi sem býður upp á sambærileg gæði og hér heima.
Re: Bíómiðaverð hækkar
Sent: Mán 07. Apr 2008 16:21
af Windowsman
Það er náttúrulega fáránlegt verð hérna.
Ég er löngu hættur að leigja mynd eða fara í bíó.
Reiknum aðeins.
Bíómiði 1000, stórt Coke 250-300, stórt Popp 250-300. Samtals 1500 til 1600 kr.
FYRIR 1.
Og þá er reiknað með að sá aðilil sé aðeins mep Popp og Coke.
leigja mynd 650-700kr, Snakk 350kr, Gos 250. Samtals 1250-1300kr
Í staðinn fyrir að kaupa mynd (gamla) á 800kr, Snakk 150(miðað við Bónus), Gos 100-150. Samtals 1050-1000kr.
Þarna áttu myndina eins lengi og þig lystir þarft ekki að þola einhverja óþroskaða krakka að sparka í sætið þitt né að þurfa að fara í sturtu þegar þú kemur heim vegna allur úti í poppi sem hennt er um salin. Eða þurfa að koma næsta dag og skila myndinni.
Á móti því að kaupa mynd og horfa á hana þegar þú villt.
Bíó vs. Stofan/Herbergið/Tv stofan.
Bíó færð að láta vallta yfir þig með fáránlegu verði og endalausum augnlýsingum.
Dæmi mynd byrjar klukkan 20:00. Mætir klukkan 19:40-19:50 og bíður í röð eftir kræsingum í 10 mínútur.(Fer eftir hvaða mynd er farið á), horfir á augnlýsingar í 20-30 mínútur AMK 10-15 mín.
Í staðin fyrir að vera heima, horfa á myndina á þeim tíma sem að þér hentar. Liggja upp í sófa í staðin fyrir óþæginlegum bíóstólum og ef þú þarft á klósettið í miðri mynd þá stopparu bara með fjarstýringunni og ekkert vesen.
Það sem myndi þurfa að breytast til að ég færi í bíó.
Háskerpu mynd þyrfti að koma þar sem að ég sé ekki tilgangin í að fara og sjá sömu/verri gæði heldur en í flatskjánum heima. Þægilegri sæti, meira bil á milli sætaraða og max 5 mín auglýsingar.
Ef allt þetta myndi koma í Bíó húsin hérlendis þá myndi maður glaður fara í bíó og ekki hugsa svona mikið um kostnaðin.
Re: Bíómiðaverð hækkar
Sent: Mán 07. Apr 2008 16:32
af hagur
Windowsman skrifaði:Það er náttúrulega fáránlegt verð hérna.
Háskerpu mynd þyrfti að koma þar sem að ég sé ekki tilgangin í að fara og sjá sömu/verri gæði heldur en í flatskjánum heima.
Þú gerir þér grein fyrir að upplausn í kvikmyndasal er töluvert hærri en venjuleg "commercial" HD upplausn, þ.m.t 1080P?
Að öðru leyti er ég sammála þér.
Ég er sjálfur með mitt eigið bíó heima með 112" á veggnum og fínt sound-system. Ég hef alveg jafn gaman að því að horfa á kvikmyndir heima hjá mér eins og nokkurntíman í "alvöru" bíósal. Ég hef ekki farið í bíó í nokkur ár og það mun ekkert breytast í bráð.
Re: Bíómiðaverð hækkar
Sent: Mán 07. Apr 2008 17:38
af SolidFeather
Downloadar bara myndinni og stelur snakki og kók.
Annars fer ég sjaldan í bíó og hef ekki leigt mynd í einhver ár.
Re: Bíómiðaverð hækkar
Sent: Mán 07. Apr 2008 18:01
af ÓmarSmith
SolidFeather skrifaði:Downloadar bara myndinni og stelur snakki og kók.
Annars fer ég sjaldan í bíó og hef ekki leigt mynd í einhver ár.
Word !!
Re: Bíómiðaverð hækkar
Sent: Mán 07. Apr 2008 21:37
af zedro
Þau einu skipti sem ég fer í bíó er með tilboði Landsbankans 2 fyrir 1 Mán-Fim. og auðvita fær
minn ástkæri bakpoki hlaðinn Ostapoppi og 1 ltr Kók ásamt öðru gotteríi að fljóta með.
Það er eitthvað með bíóhús sem heillar mig þó að ég þoli ekki að salurinn sé ekki opnaður um
leið og mögulegt er til að leyfa þeim sem mættu snemma að setjast. Mér finnst að bíóhús hér
á landi ættu að taka að sér númeruð sæti og þú kaupir þér góð sæti. Fyrstur kemur fyrstur fær.
Z out
Re: Bíómiðaverð hækkar
Sent: Mán 07. Apr 2008 21:54
af djjason
Ég fer afskaplega sjaldan í bíó....bara einfaldlega get ekki notið þess að horfa á góða mynd í risa sal með 200 einstaklingum sem allir eru að tala, senda sms osfrv. Vil frekar bara horfa á þetta heima í faðmi konunnar.
hallihg skrifaði:Svo reyndar segja margir að þetta sé bara svipað og í BNA og helstu löndum Evrópu.
Ef miðinn er kominn upp í 1000 kr. þá get ég nú ekki sagt að þetta sé í samræmi við það verð sem ég borga í þessi fáu skipti sem ég fer í bíó. Ef ég man rétt þá er venjulegur "adult" miði á ca 600 kr. og "student" miði (sem maður getur yfirleitt keypt alls staðar) er tæplega 500 kr.
Re: Bíómiðaverð hækkar
Sent: Mán 07. Apr 2008 21:55
af GuðjónR
Zedro skrifaði:Það er eitthvað með bíóhús sem heillar mig þó að ég þoli ekki að salurinn sé ekki opnaður um
leið og mögulegt er til að leyfa þeim sem mættu snemma að setjast. Mér finnst að bíóhús hér
á landi ættu að taka að sér númeruð sæti og þú kaupir þér góð sæti. Fyrstur kemur fyrstur fær.
Z out
Já...og líka var þetta orðið þannig mynd sem átti að byrja kl X byrjaði ekki fyrr en 20 mín yfir X af því að það þarf að endalaust að hamra á auglýsingum.
Veit ekki hvort þetta sé eitthvað skárra í dag?
Re: Bíómiðaverð hækkar
Sent: Mán 07. Apr 2008 23:33
af zedro
Nei þetta er enn í helvítis rugli, mar er búinn að sjá 5-7 trailera áður en myndin drullast til að byrja.
Þetta eru ekki venjulegir trailerar, svo langir að það liggur við að mar þurfi ekki að fara á myndina
í bíó því mar er búinn að sjá aðalatriðin úr henni. Bölvað rugl, ef eitthvað þá ætti að sýna 2-3
teasera sem gera mann spenntan en segja ekkert um myndina og taka ekki meira en 5-10mín MAX.
Það liggur við að mar sendi Bíóhúsum landsins vel orðað bréf um verðlag og okurstefnun þeirra svo
og áráttuna við að kaffæra landanum í komandi myndum
Bara með því að lækka verð í bíó td. í 500kall er mjög líklegt að viðkomandi komi talsvert oftar en
ef miðinn kostar 1000kr. Vona að bíóhúsin fari að sjá það
Eg td. fer kannski 1sinni í bíó á mánuði
og þá bara þegar það er á tilboði. Myndi eflaust fara oftar ef ég þyrfti ekki að pæla í hvort það sé
tilboð í gangi eða ekki.
Re: Bíómiðaverð hækkar
Sent: Mið 09. Apr 2008 18:22
af Dári
hagur skrifaði:Windowsman skrifaði:Það er náttúrulega fáránlegt verð hérna.
Háskerpu mynd þyrfti að koma þar sem að ég sé ekki tilgangin í að fara og sjá sömu/verri gæði heldur en í flatskjánum heima.
Þú gerir þér grein fyrir að upplausn í kvikmyndasal er töluvert hærri en venjuleg "commercial" HD upplausn, þ.m.t 1080P?
.
Það er reyndar ekki satt, flestallir stafrænir projectorar í bíóum í dag eru 2k, semsagt 2048 pixlar á breidd, miðað við 1920 í HD, ef myndin er í 1080p það er að segja.
Sama með myndir sem koma á filmu, þær hafa flestallar farið í gegnum Digital Intermediate, þar sem þær eru yfirleitt unnar á 2k.
Re: Bíómiðaverð hækkar
Sent: Fim 10. Apr 2008 11:02
af Khayman
Áður fyrr fór ég frekar oft í bíó en síðustu árin hafa bíóferðunum fækkað talsvert.
Ég fór þó á "There will be blood" nýlega og þá kostaði miðinn 50 kalli meira en venjulega af því að myndin var sýnd í stafrænum gæðum.
Síðan tók ég eftir því að mjög oft var hluti myndarinnar upplýstur og þá er það vegna þess notast er við annan varpa til að varpa textanum á tjaldið. Þetta verður til þess að hluti tjaldsins verður fáránlega ljós og maður tekur alveg sérstaklega vel eftir þessu í dökkum atriðum.
Þetta er maður að borga 50 kalli aukalega fyrir.
Því miður virðast kvikmyndahúsin ekki vera rekin af fólki sem hefur áhuga á kvikmyndum. Miðað við hversu litla og einfalda þjónustu kvikmyndahúsin þurfa að veita þá er alveg ótrúlegt hversu oft ég hef fengið lélega þjónustu frá þeim. Ég man eftir einu skipti þegar ég vann miða á "The Matrix" forsýningu. Ég kom tímanlega til að fá miðana í Álfabakka og þá sá ég að það yrði forsýning í tveimur sölum, sal 2 uppi og sal A niðri. Salur 2 var frekar lítill og glataður en salur A var stærri og nýlegur (á þeim tíma). Ég fékk afhentan miða á sal 2 og þegar ég spurði hvort ég gæti ekki fengið miða á betri salinn var mér sagt að þau ætluðu fyrst að fylla sal 2. Þetta fannst mér frekar glatað og kvartaði undan þessu enda fannst mér fáránlegt að þeir sem kæmu fyrst fengju miða á verri sýninguna. Þá kom einhver gömul herfa sem greinilega var yfir einhverju þarna og fullyrti að salirnir væru jafngóðir. Eins og ég hefði aldrei farið í bíó þarna áður!! Ég skilaði miðunum og kom seinna til að fá miða í betri salinn. Sá ekki eftir því.
Re: Bíómiðaverð hækkar
Sent: Fim 10. Apr 2008 21:02
af Sallarólegur
Khayman skrifaði:Því miður virðast kvikmyndahúsin ekki vera rekin af fólki sem hefur áhuga á kvikmyndum. Miðað við hversu litla og einfalda þjónustu kvikmyndahúsin þurfa að veita þá er alveg ótrúlegt hversu oft ég hef fengið lélega þjónustu frá þeim. Ég man eftir einu skipti þegar ég vann miða á "The Matrix" forsýningu. Ég kom tímanlega til að fá miðana í Álfabakka og þá sá ég að það yrði forsýning í tveimur sölum, sal 2 uppi og sal A niðri. Salur 2 var frekar lítill og glataður en salur A var stærri og nýlegur (á þeim tíma). Ég fékk afhentan miða á sal 2 og þegar ég spurði hvort ég gæti ekki fengið miða á betri salinn var mér sagt að þau ætluðu fyrst að fylla sal 2. Þetta fannst mér frekar glatað og kvartaði undan þessu enda fannst mér fáránlegt að þeir sem kæmu fyrst fengju miða á verri sýninguna. Þá kom einhver gömul herfa sem greinilega var yfir einhverju þarna og fullyrti að salirnir væru jafngóðir. Eins og ég hefði aldrei farið í bíó þarna áður!! Ég skilaði miðunum og kom seinna til að fá miða í betri salinn. Sá ekki eftir því.
Skynja þig... þoli ekki svona rugl
Re: Bíómiðaverð hækkar
Sent: Fim 10. Apr 2008 21:35
af Daz
PaulSmith skrifaði:Vá
1997 fór ég í bíó svona 2 x í viku lágmark og þá kostaði miðinn minnir mig 550 kall. Bíó í dag er orðinn bara munaður sem fáir geta leyft sér.
Ef bíóferð er að kosta meðal mann svona lágmark 1500 kall í hvert skipti, og sami aðilli er með þokkalegt heimabíó og stórt TV, uhhh.... u do the m ath.
Svo eru smáís að furða sig á að fólk " steli " bíómynd. Er ekki alveg eins verið að stela af okkur þegar við borgum 1000 kall fyrir bíóferð með "táfýlu"
Er löngu hættur að fara í bíó ... and it stays that way.
Jah, ef við miðum við 5% meðalverðbólgu á þessu 11 ára tímabili þá ætti bíómiðinni að kosta núna 940 kr.
Ekki að ég sé neitt hrikalega hrifinn af þessu verði, fer kannski 2x á ári í bíó.
Re: Bíómiðaverð hækkar
Sent: Fim 10. Apr 2008 22:12
af GuðjónR
Látum það vera að miðinn kosti 1k, en 700kr fyrir popp og kók úr vél...
Re: Bíómiðaverð hækkar
Sent: Fim 10. Apr 2008 23:05
af gumol
Meðalverðbólga á ári síðustu 10 ár er nú búin að vera vel undir 5%
Re: Bíómiðaverð hækkar
Sent: Fös 11. Apr 2008 09:26
af Daz
gumol skrifaði:Meðalverðbólga á ári síðustu 10 ár er nú búin að vera vel undir 5%
Fyrst við sláum um okkur með staðreyndum
Vísitala neysluverðs í mars:
1997 178,4
2008 290,4
Hækkunin er uþb. 62% , sem mér reiknast til að sé ansi nálægt 4,5%
Meðaltal ársins (Vísitala neysluverðs)
1997 180,3
1998 183,3 1,66%
1999 189,6 3,44%
2000 199,1 5,01%
2001 212,4 6,68%
2002 222,6 4,80%
2003 227,3 2,11%
2004 234,6 3,21%
2005 244,1 4,05%
2006 260,6 6,76%
2007 273,7 5,03%
HeimildNúna getum við rætt það hvort meðalverðbólgan hafi verið VEL undir 5%.
Re: Bíómiðaverð hækkar
Sent: Fös 11. Apr 2008 12:10
af Demon
Daz skrifaði:gumol skrifaði:Meðalverðbólga á ári síðustu 10 ár er nú búin að vera vel undir 5%
Fyrst við sláum um okkur með staðreyndum
Vísitala neysluverðs í mars:
1997 178,4
2008 290,4
Hækkunin er uþb. 62% , sem mér reiknast til að sé ansi nálægt 4,5%
Meðaltal ársins (Vísitala neysluverðs)
1997 180,3
1998 183,3 1,66%
1999 189,6 3,44%
2000 199,1 5,01%
2001 212,4 6,68%
2002 222,6 4,80%
2003 227,3 2,11%
2004 234,6 3,21%
2005 244,1 4,05%
2006 260,6 6,76%
2007 273,7 5,03%
HeimildNúna getum við rætt það hvort meðalverðbólgan hafi verið VEL undir 5%.
Ég var einmitt að pæla að setja saman svona póst sjálfur...hætti samt við.
Ég fór að hugsa útí það að bensínverðið sem jú allir eru nokkuð sammála um að sé fáránlegt í dag...það hefur
ekki tvöfaldast á þessu tímabili. Samkvæmt Hagstofunni var það 99 krónur í Janúar 1998.
Þannig að jújú verðbólgan er búin að vera 3-4% frá 1992 en ég mér dettur ekki í hug neitt sem hefur tvöfaldast eins og bíómiði.
(bíómiðar kostuðu 500kr 1992-93)