Síða 1 af 1
aflgjafi
Sent: Lau 05. Apr 2008 14:36
af littel-jake
gamla greyið var að gefa sig svo ég þarf víst að fá mér nýjan
er að pæla hvað maður þarf öflugna aflgjafa til að keira quad core örgjörva. Er reyndar ekki kominn með quad enþá en það er stefnan á næstu 3 mánuðum.
Ekkert owerclock og takmarkaður budget
Re: aflgjafi
Sent: Lau 05. Apr 2008 14:48
af mind
Skjákort er orkufrekara en örgjörvi.
Standard er 450W í dag , ættir ekki þurfa neitt meira þannig séð. (nema þú sért með þvílíkt magn af dóti)
Auk þess eru quad core ekki endilega neitt orkufrekari en aðrir , þeir eru yfirleitt á lærri klukkun.
Re: aflgjafi
Sent: Lau 05. Apr 2008 19:38
af Yank
Quad Core þurfa meiri straum en Dual Core örgjörvar, það er staðreynd.
Aftur á móti þá er eins og bent var hér á að ofan eru það skjákortin sem þurfa yfirleitt mun meiri straum heldur en örgjörvin, og það er því yfirleitt við leikjaspilun sem vélbúnaður er að taka mest af straum. En við leikjaspilun er bara nánast aldrei sem allir fjórir kjarnarnir eru full nýttir plús það að skjákortið sé í botni, enda nýta leikir illa alla fjóra kjarnana. Þetta á þó eftir að breitast þegar leikjaframleiðendur drullast á fætur.
Þannig skapa nýjustu leikir ekki endilega það ástand sem leikir framtíðarinnar gætu skapað þ.e. skjákortið og allir fjórir kjarnar nýttir til fulls með þeirri orkuþörf sem þarf við þær aðstæður.
Annars verður þú að gefa upp nánari upplýsingar um hvaða vélbúnað þú ætlar að keyra svo hægt sé að ákvarða hvaða stærð af aflgjafa hentar þér.
Re: aflgjafi
Sent: Lau 05. Apr 2008 20:55
af Sydney
Ég myndi segja 520w, þá ertu smá future proof.
Sjálfur fékk ég mér 800w, þarf ekkert að skipta greyið út nema að hann deyi.
Re: aflgjafi
Sent: Sun 06. Apr 2008 18:52
af coldcut
ég er nú með Q6600 og 8800GTS G92 og ég er bara með 450W aflgjafa sem er 3-4 ára gamall...en eins og sidney sagði þá er 520W alveg yfirdrifið nóg og þá þarftu ekkert að fara að uppfæra aflgjafann á næstunni nema eitthvað svakalegt komi á markaðinn
