Síða 1 af 1

Aflgjafa pælingar.

Sent: Mán 31. Mar 2008 20:08
af Matti21
Er að fara að fjárfesta í nýjum aflgjafa bráðlega þar sem ég treysti ekki mínum núverandi í þá yfirklukkun sem ég hafði hugsað mér.
Setupið er eftirfarandi:
Q6600
Gigabyte P35-DS3R
2x1GB Supertalent DDR2-800
8800GT + Thermaltake DuOrb
2x500GB WD SATA2.
zalman zm-mfc1 viftustýring
Coolermaster CM-690 kassi með 8 viftum talsins.

Sá aflgjafi sem mér líst best á í augnablikinu er Corsair HX 620W sem fæst fyrir 13900kr hjá Start. Gott merki (reyndar ekkert gerður af Corsair heldur Seasonic en það er einnig topp merki :Þ) á góðu verði. Einnig er hann modular sem er að mínu mati mjög stór plús.
Er einhver annar aflgjafi sem ég ætti frekar að skoða? Líst ekkert á þessa Xilence aflgjafa. Hlýtur að vera góð ástæða fyrir því að þeir séu svona ódýrir og í þeim fáu reviews sem ég hef lesið um þá voru þeir ekkert að koma of vel út.
Ég tók hinsvegar voða stutt "aflgjafa próf" á heimasíðu Corsair mér til gamans. Bjóst við því að síðan mundi ráðleggja mér að kaupa einhvern 700W+ aflgjafa þar sem að fólk ofmetur okruþörf tölvu sinnar almennt mjög mikið og flestir framleiðendur nýta sér það algjörlega en mér til mikillar furðu mældi hún með HX520 :S Mig langar því líka að spurja hvort hann væri nóg? Það er rúmlega 4.000 króna verðmunur á þeim. Hafði hugsað mér að fara með örgjörvan í 3.4Ghz og eitthvað upp með skjákortið líka. Vill kaupa aflgjafa sem endist mér í nokkrar uppfærslur í viðbót. Er 520W meira en nóg eða er þetta kanski bara að rétt sleppa?

Re: Aflgjafa pælingar.

Sent: Þri 01. Apr 2008 00:13
af Matti21
Mynd

Re: Aflgjafa pælingar.

Sent: Þri 01. Apr 2008 00:46
af zedro
Fara alla leið einsog ég marr......
Kisildalur.is - Karfan mín skrifaði:
  • Mynd Tacens Supero 1000W- ATX 2.91, 120mm kælivifta, aftengjanlegar slíðraðar leiðslur
    kr. 23.900


    Samtals: 23.900
1kiloWatt RAW POWER MWUHAHAHAHAHA......

Re: Aflgjafa pælingar.

Sent: Þri 01. Apr 2008 10:47
af Yank
Varstu búinn að sjá þetta
http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=40&t=14855

Þessi er líka mjög áhugaverður
http://www.kisildalur.is/?p=2&id=623