Síða 1 af 1
Vantar hjálp á lítinn pening og verð að kaupa mér ferðatölvu
Sent: Mið 08. Okt 2003 20:55
af Sveppz
Sko !
núna þarf ég virkilega að kaupa mér fartölvu og getur einhver hérna bent mér á einhverja vel ódýra ferðatölvu .. helstu undir 70 þús ...... verður að geta keyrt þráðlaust net helst counter-strike
Allavega nenniði að svara þessu sem fyrst ? vantar helst hjálp sem strax
Sent: Mið 08. Okt 2003 21:10
af elv
Notuð
ps . er til í að skipta á borðtölvu
Sent: Mið 08. Okt 2003 21:12
af Sveppz
2200 AMD XP+ órgjörfi
SOYO Dragon ultra móðurborð
512 DDR innraminni
Geforce4 420 MX 64mb
80GB HDD (Harddrive)
svo er skrifari og mediabay í henni
ég skipti bara ef ferðatölvan er GÓÐ
?
Sent: Mið 08. Okt 2003 21:16
af Sveppz
elv skrifaði:Notuð
já alveg eins
Sent: Fim 09. Okt 2003 11:54
af Daz
Skilgreindu "góð" fyrir ferðatölvu. (Mín skilgreining er þannig að verðið færi aldrei undir 150 þús )
Sent: Fim 09. Okt 2003 12:03
af kiddi
Sveppz, vaknaðu, þig er að dreyma.
Þessi tölva sem þú listaðir fyrir ofan er varla 40-45þús kr virði (miðað við það sem þú taldir upp), og eins og Daz segir þá er GÓÐ ferðatölva aldrei ódýrari en 150þús. Þú fengir líklegast *sæmilega* ferðatölvu sem ræður ágætlega við CS en mátt gera ráð fyrir að þurfa að kaupa þráðlaust kort, á 80-100þús, kannski 60þús ef þú hendir tölvunni þinni upp í dílinn
Sent: Þri 14. Okt 2003 21:54
af Hlynzi
Þú getur fengið þér sko súper vél á 165 þúsund.. ekki beint þín verðhugmynd.. en ég man ekki eftir neinni annarri sem uppfyllir kröfurnar. Asus M2 N vél, hefur allt þetta... en góð vél kostar !
Re: ps . er til í að skipta á borðtölvu
Sent: Þri 14. Okt 2003 23:26
af halanegri
Sveppz skrifaði:órgjörfi
"örgjörvi"
já já einmitt
Sent: Mið 15. Okt 2003 03:07
af Sveppz
geriði bara grín að mér