Síða 1 af 1
Hvaða fartölvu?
Sent: Sun 10. Feb 2008 18:04
af olikari
Sælt verið fólkið. Nú ert maður að fara að festa kaup á fartölvu og var að spá í að eyða svona 150 þús kalli í kvikindið. Getiði bent mér á eitthvað sniðugt því maður hefur eiginlega ekki hundsvit á þessu. Hafði hugsað mér að nota hana í þetta venjulega... browsa, læra og taka aðeins í einnhverja tölvuleiki
http://www.kisildalur.is/?p=2&id=524 <--- þessi hljómar nú alveg helvíti vel en ég hef ekki hugmynd um hvaða merki þetta er... eitthvað til í þessu?
Sent: Sun 10. Feb 2008 20:33
af Blasti
Hvaða stærð af skjá varstu að spá í? og hefur þú einhverjar sér óskir um AMD eða Intel eða ATI eða Nvidia ?
...
Sent: Sun 10. Feb 2008 20:49
af olikari
Helvíti góð spurning. Veistu ég bara veit það ekki sko. Bara eins gott og ég get fengið fyrir 150 þúsund kall. Eins og ég segi hef ég ekki hundsvit á þessu:)
Sent: Mán 11. Feb 2008 01:01
af Blasti
Okei, renndi í gegnum flestar netverslanir og fann 2 tölvur sem ég tel vera Best buy, það fer eftir hvernig á það er litið hvor þeirra hefur vinninginn!
Here it goes...
Hér er tölva sem hefur góða specca, hún gefur þér helling fyrir peninginn, t.d. 4 gíg vinnsluminni, fínann örgjörva, gott skjákort og þar fram eftir götunum, hún ætti að skila þér ágætis performance í leikjum. Þetta er besta tölvan í þessum flokki sem ég fann. (þarna með flokka ég mitac, acer og allar hinar packard bell tölvurnar) Allt saman ágætis tölvur til síns brúks. En það sem mér finnst vera galli á þessari er upplausnin í skjánum sem er frekar lítil miðað við að þetta er 17" skjár. Hún er einnig næstum því 4 kíló, áts!
EN
Hér er tölva sem ég myndi setja í betri flokk, Hp! Þessi tölva er með flottan örgjörva en speccarnir í henni eru slappir... EN þetta er Hp sem er mikið betra merki, ég held það séu minni líkur á að hún bili heldur en Acer, Packard Bell ..... En besti kostur þessarar tölvu er skjárinn 15" widescreen skjár sem hefur upplausnina 1680x1050 sem er bara geðveikt, sjálfur á ég Hp tölvu sem er með 3:4 skjá og upplausnina 1400 x 1050 og ég er vægast sagt ánægður með hana eftir eins og hálfs árs notkun.
Þessi tölva er ekki nema rúm tvö og hálft kíló og geðveikan skjá, en þú færð minna af öllu, HDD rými, vinnsluminni og skjáminni en ég hef trú á því að það sé allt í hærri gæðaflokki en hjá Packard bell.
Þannig að hvort villtu
Þunga og talsvert fyrirferðamikla tölvu sem er með flotta specca, lélegan skjá sem er samt 17 tommur. Ekkert últra merki og kannski smá bilanir.
Eða
Tölvu sem er ekki það stór, með slappa specca, frábærann skjá og helling af gæða íhlutum.
Þitt er valið
Sent: Mán 11. Feb 2008 08:47
af TechHead
HP bila ekkert minna en aðrar vélar, þetta er allt sama helvítis ruslið
Sent: Mán 11. Feb 2008 09:57
af Blasti
ef ég væri í þessari stöðu að velja þarna á milli myndi ég taka Hp vélina EF ég ætti einhverja borðtölvu til að leika mér í þ.e.a.s fyrir tölvuleiki, annars er allveg óhætt að taka þessa packard bell vél því að þó hún bili færðu ábyggilega topp þjónustu hjá Tölvuvirkni, mín reynsla er þannig
...
Sent: Mán 11. Feb 2008 10:52
af olikari
Okey kúl. Takk kærlega fyrir þetta. Þar sem ég á enga borðtölvu þá væri packard málið s.s. En hvað með þessa Mitac... Er hún bara í ruglinu. Fannst hún hljóma ekkert smá vel?
Sent: Mán 11. Feb 2008 10:59
af Blasti
Hún er flott, má kannski segja að hún sé millivegurinn. Mitac hefur samt einhvernveginn ekki náð að heilla mig, hef verið með eina þannig. Mitac vélin þarna er 15" með þokkalega skjáupplausn. Farðu bara endilega og skoðaðu báðar vélarnar og sjáðu hvort þér lýst betur á.
Sent: Mán 11. Feb 2008 20:50
af Ic4ruz
Þessi er svolitið ódyarari enn ég hef heyrt góða hluti um MSI fartölvunar
ath. lika aðeins slakara skjákort
http://www.tolvulistinn.is/vara/32
Sent: Mán 11. Feb 2008 20:54
af Blasti
Ef þú ert í tölvulistahugleiðingum á þessu verðbili myndi ég nú frekar fara í þessa
HÉR
IBM>MSI
Sent: Mán 11. Feb 2008 22:22
af OverClocker
Ef þú ert að spá í HP þá er mesta úrvalið og verð í Start
Hér er sama tölva og í tölvutækni með meira minni og stærri örgjörva..
http://start.is/product_info.php?products_id=2013
Hin er greinilega hætt..
Sent: Mán 11. Feb 2008 22:40
af ErectuZ