Síða 1 af 1
heyrnartól/hátalarar
Sent: Þri 29. Jan 2008 16:13
af coldcut
já er að spá í að fjárfesta í nýjum hátölurum og heyrnatólum en á erfitt með að velja á milli...ég er svona nokkurnveginn búinn að ákveða mig með heyrnatólin en þau verða Sennheiser en veit ekki hvort ég eigi að taka HD-515, HD-555 eða HD-595 ?
síðan eru það hátalararnir...ég leitaði útum allt að 2.1 kerfi sem væri Digital en fann ekki neinsstaðar, er það yfir höfuð til á Íslandi og ef svo er hvar finn ég það þá?
Og ef það er ekki til hvaða kerfi mæliði þá með? Logitech Z-3E eða einhverju öðru?
með fyrirfram þökk
EDIT: vissi ekki alveg hvar ég ætti að setja þennan þráð, vona að hann sé á réttum stað!
Sent: Þri 29. Jan 2008 16:41
af dadik
Ég er með 595, mæli hiklaust með þeim.
Sent: Þri 29. Jan 2008 17:35
af dabb
595 eru æði.
Sent: Þri 29. Jan 2008 18:10
af hsm
Ég er með 555 og þau eru frábær en 595 eiga að vera betri svo ég hlít að mæla með 595
Sent: Þri 29. Jan 2008 19:37
af urban
þetta er eiginlega bara spurning hvort að þú tímir að borga mismuninn á milli 555 og 595
ef að ég man rétt þá er hann ca 4 þús kall
595 eru betri
en 555 eru alveg vægast sagt mjög góð
Sent: Þri 29. Jan 2008 20:39
af Pandemic
Sama dós í 555 og 595, einni munurinn er leður í höfuðbandinu, standur og betra efni í sjálfum heyrnahlífunum.
Sent: Þri 29. Jan 2008 23:15
af Woods
Pandemic skrifaði:Sama dós í 555 og 595, einni munurinn er leður í höfuðbandinu, standur og betra efni í sjálfum heyrnahlífunum.
595 eru cool
Logitech Z3 eru MJÖG góð
...
Sent: Mið 30. Jan 2008 10:45
af coldcut
þar sem það tók greinilega bara einn eftir því að ég talaði um hátalara í þræðinum þá endurtek ég:
Er til Digital 2.1 hljóðkerfi á Íslandi? og ef svo er hvar fæst það þá?
Sent: Mið 30. Jan 2008 11:20
af ÓmarSmith
Eru ekki flest þessi kerfi digital ? bara spurning hvernig þú tengir það við hljóðkortið hjá þér.
Ég bara spyr því er ekkert viss, en ég hefði haldið að speaker væri bara speaker með mism. ómum og tíðni en ekki að það væri til " Digital og Analog " hátlarasystem.
Endilega útskyra þetta fyrir mér í leiðinni sá sem getur.
...
Sent: Fim 31. Jan 2008 11:05
af coldcut
nei ég held nefnilega ekki...ég var allavegana að finna digital 2.1 kerfi í nýja tölvulistabæklingnum
http://tolvulistinn.is/vara/515 spurning hvort það sé eikkað varið í það sko =/
Sent: Fim 31. Jan 2008 12:29
af Hyrrokkin
Af hverju 2.1? Af hverju ekki 5.1 sem er miklu betra? eða jafnvel 7.1?
Sent: Fim 31. Jan 2008 12:35
af Xyron
ÓmarSmith skrifaði:Eru ekki flest þessi kerfi digital ? bara spurning hvernig þú tengir það við hljóðkortið hjá þér.
Ég bara spyr því er ekkert viss, en ég hefði haldið að speaker væri bara speaker með mism. ómum og tíðni en ekki að það væri til " Digital og Analog " hátlarasystem.
Endilega útskyra þetta fyrir mér í leiðinni sá sem getur.
Rétt hjá þér.. hátalarakerfið þarf alltaf að breyta merkinu yfir í analog ef það bíður uppá digital móttöku og breyta því síðan í analog í magnaranum með DA converter. Bara eins gott að magnarinn sem þú sért með sé með betri eða jafngóðan DA converter heldur en hljóðkortið þitt, þar sem DA converterar eru mis góðir.. gætir alveg eins verið að fá verra hljóð í gegnum digital heldur en analog(ef það er lélegur DA converter í magnaranum og ert að nota góðar snúru fyrir analogið)
Sent: Fim 31. Jan 2008 15:01
af thorgeir
Ég segi bara, ef þið hafið ekki prufað Grado Headphones þá hafið þið ekki prufað alveru headphones
http://www.gradolabs.com/frameset_main.htm
Er með ódyrustu týpunna sem kostar um 5000kr í usa, og í öllum blöðum og timaritum hafa þeir fengið betri dóma en 20.000kr+ headphones.
Þetta er handsmiðað í New York.. þetta er rugl hreint og tært hljóð... sennheiser er rusl við hliðná þessu
Mæli með þeim...
dýrustu headphonearnir frá þeim eru kosta um 1000 dollara :O hehe það er craazy...
...
Sent: Fös 01. Feb 2008 15:42
af coldcut
jæja ég keypti mér nú bara svört Icemat heyrnartól en er ekki búnnað ákveða með hátalarakerfi ;p