Síða 1 af 1
Spurning varðandi kælikrem...
Sent: Fös 09. Nóv 2007 22:07
af DoofuZ
Ég var að spá, var að setja nýja viftu á örgjörvann hjá mér um daginn (TT Big Typhoon) og þurfti a sjálfsögðu að skella kælikremi á hann en það fylgdi viftunni svo ég skellti því auðvitað bara á og ekkert vandamál þar en nú er ég að velta fyrir mér hvort ég á að geyma restina af kreminu, sem er mest allur púðinn, eða bara henda því

Skiptir kannski ekki svo miklu máli og svo á ég líka annað ónotað kælikrem í sprautu, en gott allavega að vita hvað er best að gera við þetta

Sent: Fös 09. Nóv 2007 22:21
af zedro
[Kaldhæðni]Blessaður vertu hentu þessu bara.[/Kaldhæðni]
Svo bara næst þegar þú færð þér nýrri örgjörva þá hugsaru:
„Fakk ef ég hefði nú geymt restina af gömlu túpunni þá hefði ég sloppið við rúnt í næstu tölvuverslun, nei andskotin klukkan er 18:01 það er allt lokað. Ég prufa Kísildal þeir eru yfirleitt lengur í búðinni eftir lokun“
Sent: Fös 09. Nóv 2007 23:12
af DoofuZ
Já lol

efast stórlega um að þeir kappar í dalnum myndu klikka

Snillingar þar á ferð

En ég þyrfti þess samt líklega ekki þar sem ég á eins og ég sagði krem í sprautu, sem ég keypti reyndar með viftunni (bara til öryggis ef það vantaði með viftunni og svo er það líka pottþétt betra, get þá sett það á ef hitinn verður eitthvað skrítinn í kassanum eða eitthvað). En já, þá hendi ég víst bara kreminu

Takk fyrir svarið
PS. Ég keypti viftuna og kremið einmit í dalnum

Sent: Lau 29. Des 2007 10:49
af RaKKy
Ég ætla rétt að vona að þú hafir ekki hent Artic MX2 -_-