Síða 1 af 1
Hjálmur Þórs - Case Mod hugmynd
Sent: Fim 27. Sep 2007 17:06
af einzi
Sælir
Krafsaði niður á blað hugmynd sem ég fékk í leið í vinnu af moddi sem væri örugglega svolítið áhugavert
Kveðja
Sent: Fim 27. Sep 2007 18:18
af ManiO
Kíktu á
http://www.forums.pcapex.com mjög gott vefsvæði fyrir case modding, margir þar sem geta bent þér á sniðuga hluti.
Sent: Fim 27. Sep 2007 22:08
af notendanafn
Þetta er mjög sniðugt hugmynd, og flott sketch. En er þetta ekki frekar mikið vesen? Þarft að skera þetta allt útúr einangrunarplasti eða eitthvað álíka.
Sent: Fim 27. Sep 2007 22:28
af GuðjónR
Þetta væri flott...töff mynd.
Sent: Fim 27. Sep 2007 23:08
af zedro
Þetta vill ég sjá verða að veruleika

Sent: Fim 27. Sep 2007 23:31
af Pandemic
Ég veit að ég er ógeðslega leiðinlegur en held að þetta komi ekki vel út, hef séð svipaðan kassa í raun aðeins of svipaðan og hann kom hrikalega út, en good luck to you, looking forward to it.
Sent: Fös 28. Sep 2007 00:12
af einzi
jæja .. eins og ég segi þá var þetta bara svona hugmynd .. ef ykkur langar til að nota hana, þá segi ég bara go nuts.
Þetta er mjög sniðugt hugmynd, og flott sketch. En er þetta ekki frekar mikið vesen? Þarft að skera þetta allt útúr einangrunarplasti eða eitthvað álíka.
Alveg örugglega heilmikið vesen en aldrei að vita hvað maður gerir af sér. I like a good challenge
Ég veit að ég er ógeðslega leiðinlegur en held að þetta komi ekki vel út, hef séð svipaðan kassa í raun aðeins of svipaðan og hann kom hrikalega út, en good luck to you, looking forward to it.
Ojí hvað þú ert leiðinlegur .. brb að gráta í pilsfaldið hjá mömmu ... nei nei .. en til að þetta komi vel út þá þarf að vanda til verks. mátt endilega pósta link man bara ekki eftir að hafa séð svona kassa.
Sent: Fös 28. Sep 2007 00:36
af ManiO
http://www.themodnation-forums.com/viewtopic.php?t=462 < þarna er worklog fyrir þessa. Gæti verið eitthvað sniðugt, þeas þegar þeir eru að mynda kúpuna.
Sent: Fös 28. Sep 2007 10:06
af einzi
veistu .... geðveikt mod ... og eftir að hafa skoðað þetta þá er ég bara á því að þetta sé nú bara ekki svo erfitt
Sent: Fös 28. Sep 2007 10:18
af ManiO
Já, þeir hjá MNPCtech eru helvíti færir.
Sent: Fös 28. Sep 2007 19:20
af einzi
Aðeins að leika mér með hugmyndina .. rautt ljós í kassanum, blá eða jafnvel bara rauð augu í hjálminum.
p.s. bannað að dissa mína ofurteiknihæfileika
Sent: Fös 28. Sep 2007 21:52
af zedro
Über teikning.
Hvernig væri að hafa mjög dökka hauskúpu ínní „hjálmnum“?
Sent: Fös 28. Sep 2007 22:31
af ezkimo
svo þegar hann ullar þá kemur cd drifið út

Sent: Fös 28. Sep 2007 22:40
af Pandemic
ezkimo skrifaði:svo þegar hann ullar þá kemur cd drifið út

Síðan geturu haft usb portinn sem svona eyru og þegar þú ert með minnislykla þá er hann með eyru

Sent: Fös 28. Sep 2007 23:17
af einzi
hehe já nákvæmlega

Sent: Sun 30. Sep 2007 22:55
af Zorba
Jájájá...Og og flugeldarör og drykkjarhaldara og þegar maður stingur usb tengi byrjar kassinn að stynja....
Sent: Mán 01. Okt 2007 09:13
af einzi
lol hvað menn eru að missa sig yfir þessu. Hvernig væri nú að nota alla þessa orku í að koma með ykkar eigin case mods? I double dare ya
Sent: Mán 01. Okt 2007 09:18
af ÓmarSmith
Carbon Fibre mod ... fuck hvað það væri flott.
Jafnvel mixa það þannig að hann looki alveg eins og Ferrari Skjárinn frá Acer
Það er stílhreint og flott.
Sent: Mán 01. Okt 2007 19:46
af urban
einzi skrifaði:lol hvað menn eru að missa sig yfir þessu. Hvernig væri nú að nota alla þessa orku í að koma með ykkar eigin case mods? I double dare ya
tjahhh ég er nú búin að vera með 1 í maganum í soldið langar tíma...
(afsakið alveg hrottalega lélega mynd hent upp í paint á 2 mín, þar sema ð ég nenni ekki að tengja hjá mér flakkara sem að alvöru myndirnar eru inná)
semsagt
FRAM AFTUR
HLIÐ hlið innan
svarta að framan eru semsag geisladrif og takkarnir eru þar á milli , síðan er bláa skjárin og var ég að pæla í að hafa það 20 - 22" lcd skjá
litlu kassarni á hliðini væru usb tengi, en ekki fyrir mús og lyklaborð, það kæmi útum kassan að aftan ásamt power snúrunni (nema náttúrulega maður væri með þráðlaust sett í úsinni og lyklaborði)
síðan er semsagt rautt móðurborð, grátt power supply, svarta dvd drif og bláa aftur skjárin
versta er að ég bara hef enga aðstöðu til þess að gera þetta, væri annars löngu búin að því
og já.. ég var reyndar ekki búin að ákveða áferð á kassanum, hvort að það yrði viðarlitað eða eitthvað annað
Sent: Mán 01. Okt 2007 23:36
af einzi
ég segi bara go for it
Sent: Þri 02. Okt 2007 11:01
af urban
einsog ég sagði... væri búin að þessu ef að ég hefði aðstöðuna til þess
Sent: Þri 02. Okt 2007 11:11
af einzi
Ég hef reyndar enga aðstöðu heldur en hef verið duglegur að gera konuna brjálaða með því að leggja eldhúsborðið undir mig. hef svo stolist í verkfæri hjá hinum og þessum.
