Síða 1 af 1
Fartölvukaup
Sent: Þri 17. Júl 2007 19:12
af Arnarr
Núna þegar að það styttist í skóla þarf maður að fara huga að því að fjárfesta í fartölvu. og leita því til ykkar um hjálp um val á þannig. hef verið að skoða og er mjög spentur fyrir acer vélunum og hef heirt ekkert nema gott um þær. vélinn verður notðuð í skóla, netið og leiki (vélinn þarf helst að geta ráðinn við nýustu leikinna en ekkert endilega í bestu gæðum) vélinn má mesta kosta svona 180k. kostur væri ef upplausn á skjánum væri góð.
Hef verið að skoða þessa vél og lýst mjög vel á hana
http://www.tolvuvirkni.is/ip?inc=view&flo=product&id_top=247&id_sub=2557&topl=245&page=1&viewsing=ok&head_topnav=LAP_ACER_5920G
eða er það bara rugl í mér? einhver? ef þið vitið um betri vél endilega segið frá!
kv. arnar
Sent: Þri 17. Júl 2007 19:26
af BrynjarDreaMeR
http://www.tolvuvirkni.is/ip?inc=view&f ... ACER_7720G
Mundi frekar taka þessa uppá pláss en annars er hin klassa vél
Sent: Þri 17. Júl 2007 22:23
af Taxi
Ég mundi taka vélina sem Arnarr bendir á,3,5 klst batterý vs 2 klst
á hinni vélinni varla þarftu 17" vél svo að hvað hentar þér betur.
Sent: Mið 18. Júl 2007 00:51
af Arnarr
ég hef enga þörf fyrir 17" skjá og betra bætterí er bara kostur ... en veit enginn um svipaðar vélar með betri upplausn ?
Sent: Fim 09. Ágú 2007 21:36
af thalez
Er einhver hér sem á Acer Aspire 5920G:
http://www.tolvuvirkni.is/ip?inc=view&flo=product&id_top=247&id_sub=2557&topl=245&page=1&viewsing=ok&head_topnav=LAP_ACER_5920G?
Hvernig er reynsla ykkar af þessar tölvu? Hitavandamál, FPS, skjárinn, build, nettenging o.s.frv.?
Mæliði með einhverja aðra tölvu með svipupum spekkum (T7300-2GB-8600GT)?
Einhverjar sambærilegar tölvur í kringum 130-150K sem þið mælið með?
Sent: Fim 09. Ágú 2007 22:19
af TechHead
Alltaf langbest að fara á staðinn, þukla á vélunum og fá að keyra einhver leikjademo t.d.
Sent: Lau 18. Ágú 2007 00:39
af Harvest
Ég á svona vél eins og tölvuvirkni er að selja. Ég vildi 15" skjá til að hafa með í skólann en samt fá þetta fína kort sem að er í henni. Hún er að ráða fínt við veikina sem ég er að spila (CS: S, C&C3 ofl.). Ég er líka að nota hana í vinslu á 24" skjá í 1920x1200 og það er að virka mjög vel. Meira að segja í flestum leikjum líka.
Í alla staði mjög góð vél og færð mikið fyrir peninginn. Útlitið hefði þó mátt vera aðeins sætara
Sent: Mán 27. Ágú 2007 19:45
af kjarnorkudori
Mæli alveg óendanlega mikið með svörtu macbook tölvunni.
Allt svo skilvirkt og fínt.