Síða 1 af 1
Pæling varðandi President neftóbakið
Sent: Mið 04. Júl 2007 17:37
af HemmiR
Já góðan daginn. Ég hef verið að velta þessu fyrir mér afhverju í ósköponum þetta tóbak er ólöglegt á íslandi? ég hef fengið bara þau svör að svona fínt mulið tóbak sé bannað afþví að það getur farið æðar i hausnum á manni og stíflað þær og maður getur orðið blindur þegar það gerist. En þarna erum við að tala um að það GETUR gerst það er ekki pottþétt.. eins með reykingar þær geta valdið krabbameini en það er ekki pottþétt að þær geri það.. ég er svona að spá eru þessi lög um fín mulið tóbak þá ekki frekar asnaleg? hvað finnst ykkur?
Sent: Mið 04. Júl 2007 17:42
af ManiO
Eins með munntóbak (þ.e.a.s. snus).
Sent: Mið 04. Júl 2007 18:10
af GuðjónR
Ég hef stundum verið að velta því fyrir mér af hverju tóbak er yfir höfðu leyft...
Ef tóbak væri að koma á markað í dag...þá yrði það flokkað sem eiturlyf og bannað.
Sent: Mið 04. Júl 2007 18:20
af Blackened
kannski afþví að tóbak er búið að vera á "markaði" í mörghundruð / þúsund ár í heiminum..
Mér finnst ekkert að því að ef fólk vill nota tóbak.. sígarettur eða neftóbak..
Þó kannski meira á móti sígarettum útaf reyknum.. en mér finnst bara að það ætti að vera val hvers og eins að nota nef og munntóbak
Sent: Mið 04. Júl 2007 18:29
af HemmiR
Akkúrat. því ef maður er að nota neftóbak eða munntóbak þá er maður ekki að drepa fólk i kringum sig :p
Sent: Mið 04. Júl 2007 18:31
af GuðjónR
Blackened skrifaði:kannski afþví að tóbak er búið að vera á "markaði" í mörghundruð / þúsund ár í heiminum..
Einmitt...ég svaraði sjálfum mér með því að segja að ef það væri nýtt á markaði (ekki aldargömul hefð) þá yrði það bannað.
Blackened skrifaði:Mér finnst ekkert að því að ef fólk vill nota tóbak.. sígarettur eða neftóbak..
Þó kannski meira á móti sígarettum útaf reyknum.. en mér finnst bara að það ætti að vera val hvers og eins að nota nef og munntóbak
Já það má svo sem segja það, en á þá ekki að vera val hvers og eins hvort viðkomandi vill reykja hass...eða taka í kók í nös?
Og hver á að borga sjúkrakostnaðinn þegar tóbaksbrjálæðingurinn leggst inn með langvarandi sjúkdóm?
Kannski er lausnin á hækka pakkann í tvö til þrjúþúsund krónur og láta mismuninn renna til heilbrigðiskerfisins...
Sent: Mið 04. Júl 2007 18:34
af AngryMachine
Í stuttu máli þá er þetta neyslustýring með það að markmiði að bæta heilsu landsmanna. Svona svipað og hugmyndin um 'sykurskatt' á gos og annað gúmmelaði.
Svo er evrópusambandið líka með puttana í þessu, snusbannið kemur td. þaðan.
Sent: Mið 04. Júl 2007 18:42
af AngryMachine
Svo er spurning hvort að upphafsinnlegg þessa þráðs, þar sem haldið er fram að að President neftóbak sé 'indislegt', sé ekki brot á lögum um tóbaksvarnir:
Hvers konar auglýsingar á tóbaki og reykfærum eru bannaðar hér á landi... Með auglýsingum er í lögum þessum m.a. átt við:... ...hvers konar umfjöllun í fjölmiðlum um einstakar vörutegundir til annars en að vara sérstaklega við skaðsemi þeirra.
Sent: Mið 04. Júl 2007 18:53
af HemmiR
ok alltilagi ég er buinn að laga það ef þér líður betur núna
Sent: Mið 04. Júl 2007 18:57
af AngryMachine
Mér líður æðislega, takk fyrir.
Sent: Fim 05. Júl 2007 00:57
af dadik
Var ekki mulið gler í einhverju af þessu snussi? Minnir það amk. Þetta átti að rispa slímhúðina í nefinu þannig að tóbakið ætti greiðari aðgang.
Sent: Fim 05. Júl 2007 01:11
af HemmiR
Jú það er vissulega mulið gler i President.. en mér hefur verið sagt að það sé lika þannig i islenska en ég veit það samt ekki hef ekki skoðað það neitt :p
Sent: Fim 05. Júl 2007 08:11
af Tjobbi
HemmiR skrifaði:Jú það er vissulega mulið gler i President.. en mér hefur verið sagt að það sé lika þannig i islenska en ég veit það samt ekki hef ekki skoðað það neitt :p
Það eru tréflísar í íslenska en gler í sænska.
Sent: Fim 05. Júl 2007 09:21
af AngryMachine
Þetta með glerbrotin er klassískt urban legend. Sænskt snus inniheldur mikið af salti, þal. sjást oft glærir kristallar í því. Nikotín fer létt með það að smjúga í gegnum slímhúðina án þess að bætt sé við glerflísum, tréflísum eða ryðguðum nöglum.
Níkotínið er leyst úr tóbakinu með hjálp basa, því hærra pH, því sterkara verður efnið. Basinn í sænskt snus er (eða var amk. hér áður fyrr) pottaska, mig minnir að í íslenska neftóbakinu sé notuð ammoníakslausn, hvort að það standi ekki meira að segja á umbúðunum.
Sent: Fim 05. Júl 2007 13:25
af worghal
munntóbak er ógeðslegt !!! bara oijbarastaullabjakk !
Sent: Fim 05. Júl 2007 23:17
af Veit Ekki
worghal skrifaði:munntóbak er ógeðslegt !!! bara oijbarastaullabjakk !
Vel mælt.
Sent: Fös 06. Júl 2007 16:31
af Zorba
AngryMachine skrifaði:Þetta með glerbrotin er klassískt urban legend. Sænskt snus inniheldur mikið af salti, þal. sjást oft glærir kristallar í því. Nikotín fer létt með það að smjúga í gegnum slímhúðina án þess að bætt sé við glerflísum, tréflísum eða ryðguðum nöglum.
Níkotínið er leyst úr tóbakinu með hjálp basa, því hærra pH, því sterkara verður efnið. Basinn í sænskt snus er (eða var amk. hér áður fyrr) pottaska, mig minnir að í íslenska neftóbakinu sé notuð ammoníakslausn, hvort að það standi ekki meira að segja á umbúðunum.
Maður finnur það bara á lyktinni af íslenska að það sé notað ammoníak, Ekki viss um sænska samt
Sent: Fös 06. Júl 2007 16:36
af DoRi-
DMT skrifaði:Maður finnur það bara á lyktinni af íslenska að það sé notað ammoníak, Ekki viss um sænska samt
vanalega finn ég bara lykt af hestaskít af íslenska tóbakinu
Sent: Fös 06. Júl 2007 16:50
af Sallarólegur
Íslenska neftóbakið er horbjóður, forsetinn er hins vegar hressandi mentol bomba...
Sent: Fös 06. Júl 2007 16:59
af HemmiR
Mér finnst nú fínt að taka íslenska i vörina.. en að taka það í nefið það er bara nei
Sent: Fös 06. Júl 2007 17:22
af AngryMachine
Íslenska neftóbakið er horbjóður, forsetinn er hins vegar hressandi mentol bomba...
Og þarna hittir þú naglann á höfuðið. Hugmyndafræðin á bakvið bann af þessu tagi er að það sem er vont fyrir þig á að vera óaðlaðandi og helst óþægilegt í neyslu. Ergó, það er ókei að selja íslenskt neftóbak af því að það er viðbjóðslega fráhrindandi á meðan bragðbættu snuffin eru komin langt í það að vera bara tóbaksnammi, mentól bragð, lakrís bragð, ávaxta bragð etc. Þetta er líka til þess að börn laðist síður að þessu, enginn heilvita krakki færi að fyrra bragði að sækja í gamla góða lopapeysu neftóbakið en bjóddu þeim fínmalað snuff sem angar af hindberjum...
Bjórbannið var af sama meiði (bragðgóða áfengið tekið af markaðnum) og aftur kom þetta upp þegar ÁTVR fór að selja áfengt gos (bulldogs, woodpecker og hvað þetta allt hét) fyrir svona tíu árum. Sumir vildu ekki leyfa sölu áfengs goss af því að það sem að er óhollt á að vera óaðlaðandi, annars fara börnin beint í það.
Sent: Fös 06. Júl 2007 17:43
af ManiO
Angry, ég verð að vera ósammála um að allt bragðbætt tóbak sé aðlaðandi. Hef prófað bragðbætt munntóbak og verri óþverra hef ég aldrei smakkað, þá er General eins og fín máltíð á 5 stjörnu veitingahúsi miðað við það.