Síða 1 af 1
Skjákort ónýtt?
Sent: Mán 02. Júl 2007 16:29
af Nafnotenda
Heeey, hefur einhver hugmynd um hvað er að tölvunni minni, þegar ég spila tölvuleiki á hún það til að restarta sér, eða þá að það eru endalaust einhverjar línur að fara yfir skjáinn, eins og;
http://img529.imageshack.us/img529/5875 ... 050vr3.jpg
Dettur í hug að skjákortið sé að ofhitna eða einfaldlega bara að gefa sig?
Keypti þessa tölvu fyrir rúmi ári, skjákortið er nvidia 7900gt.
Hefur einhver einhverja hugmynd um hvað er að, nokkuð viss um að þetta séu ekki drivers.
Sent: Mán 02. Júl 2007 16:43
af ÓmarSmith
þetta er helvítis WOW
Nei , annars þá gæti þetta verið drivera mál eða ofhitnun þessvegna.
Prufaðu að skella inn nýjum driverum og gerist þetta í öllum leikjum eða ?
Sent: Mán 02. Júl 2007 16:49
af Nafnotenda
Þetta virðist ekkert hafa með drivera að gera, ég náði í nýjustu driverana af offical síðunni og það lagaði ekkert, þetta gerist líka í öðrum leikjum, og stundum aðeins þegar ég er að horfa á þætti etc í vlc.
Grunar helst að þetta sé ofhitnun, jafnvel þarf ég að rykhreinsa tölvuna, any tips um hvernig ég á að kæla skjákortið, og hversu oft þarf að rykhreinsa tölvu, hver er besta leiðin til að hreinsa hana og framvegis?
Takk fyrir hjálpina.
Sent: Mán 02. Júl 2007 16:54
af ManiO
Nota loft brúsa til að losa um allt ryk úr kassanum.
Sent: Fös 06. Júl 2007 17:28
af touchsancho
Of mikið ryk inná tölvunni.
Skjákortið að ofhitna.
Wow addonin að fucka þessu upp.
Ef þetta er bara wow prufaðu þá að re-installa.
Gerðist fyrir mig með gamla mitt 9800pro kort,, nema bara það að þegar ég for i wow þá restartaði tölvan ser eftir svona 10-15 min og þa kom i ljos a þetta var ofhitnun,, þetta gæti lika verið ofhitnun,
Sent: Lau 07. Júl 2007 21:15
af Holy Smoke
Ég myndi líka veðja á að skjákortið sé að gefa sig eða amk ofhitna. Byrjaðu á að athuga hvort það séu nokkuð sprungnir þéttar (s.s. bólgnir; yfirborðið ofan á á að vera flatt), eða hvort viftan sé að gefa sig. Ég mæli með að þú sækir RivaTuner og prófir að botna viftuna á kortinu og sjáir hvort leikurinn helst eins.
Það er ennfremur hitamælir í RivaTuner sem þú getur fylgst með.