Síða 1 af 1
Nikon D80 linsu hjálp
Sent: Mán 28. Maí 2007 22:30
af Pandemic
Ég er að fara að fjárfesta í Nikon D80 body og ég var að hugsa um hvað væri sniðugt í linsuvali fyrir svona semi-byrjanda eins og mig. Ég veit ekki með þessa stock-linsur.
Hvað mynduð þið vera að mæla með í sambandi við svona all-around linsu þó ég muni vera að nota myndavélina í model-shot og svoleiðis aðalega.
Ég er að sjá pakka með
Zoom Super Wide Angle Nikkor 18-55mm f/3.5-5.6G ED AF-S DX Zoom-Nikkor Autofocus Lens
18-55mm f/3.5-5.6G ED AF-S DX Zoom-Nikkor Autofocus Lens
18-135mm f/3.5-5.6G ED-IF AF-S DX Zoom-Nikkor Lens - líst ágætlega á þessa
28-105mm f/3.5-4.5D IF Zoom Nikkor Autofocus Lens
Hvað er best af þessu fyrir mig? og hvað er best ef allt þetta er rubish? Er vissulega að reyna að halda mig mjög nálægt 1000dollara markinu.
Sent: Mán 28. Maí 2007 23:00
af CraZy
Ég veit svosem ekkert um nikon, er canon maður
en ég held að 28-105mm f/3.5-4.5D IF Zoom Nikkor Autofocus Lens
sé mjög góð walkaround
Hver er annars crop-factorinn á D80 ? ef hann er hár þá er 28mm kannski í það lengsta sem styttri endinn
Sent: Mán 28. Maí 2007 23:02
af Pandemic
1:1,15 heyrði ég einhverstaðar.
Sent: Þri 29. Maí 2007 08:07
af ManiO
Láttu mig vita hvað þú endar með að fá og hvar, er einmitt sjálfur að pæla í D80.
Sent: Þri 29. Maí 2007 08:20
af ÓmarSmith
Taktu e-a sem er með 2.8 Ljósop.
Annars er 80-200 Nikkor linsan alveg sick. Virkar í allar íþróttir, landslag, dýramyndir og u name it.
soldið mikil zoom kannski er fáránlega skörp linsa og mikið betri en þessar sem taldar eru upp hér að framan.
Sent: Þri 29. Maí 2007 10:34
af CraZy
ÓmarSmith skrifaði:Taktu e-a sem er með 2.8 Ljósop.
Annars er 80-200 Nikkor linsan alveg sick. Virkar í allar íþróttir, landslag, dýramyndir og u name it.
soldið mikil zoom kannski er fáránlega skörp linsa og mikið betri en þessar sem taldar eru upp hér að framan.
Pandemic skrifaði: þó ég muni vera að nota myndavélina í model-shot og svoleiðis aðalega.
80mm er dáldið langt sem stutti endin í módel shjúts svo ef við tökum cropfactor inn í þetta þá er hann 92mm, gæti virkað ef þú ert með mjög langt stúdió kannski
Sent: Þri 29. Maí 2007 14:02
af ÓmarSmith
Stúdíó ?
Ef viðkomandi ætlar bara í stúdíó þá kannski e-a aðra. En almennt er þessi 80-200 alveg ein sú besta frá Nikkor línunni.
Sent: Þri 29. Maí 2007 19:27
af CraZy
ÓmarSmith skrifaði:Stúdíó ?
Ef viðkomandi ætlar bara í stúdíó þá kannski e-a aðra. En almennt er þessi 80-200 alveg ein sú besta frá Nikkor línunni.
Anyways 80mm er í það lengsta imo fyrir myndatöku á fólki.
Fáum bara skipio til að útkljá þetta
Sent: Þri 29. Maí 2007 22:59
af Pandemic
Núna er ég soldið kominn á Canon línuna og er það aðalega þar sem vinur minn er með Canon og hann á nokkrar linsur sem hann er viljugur til að lána mér og líka þar sem bróðir minn er að skoða Canon.
17-85mm linsan? er hún að gera sig í model myndum?
Sent: Mið 30. Maí 2007 01:00
af viddi
Pandemic skrifaði:17-85mm linsan? er hún að gera sig í model myndum?
ég er með 17-85mm linsuna á 400d og hún er allveg að virka fínnt
smá preview ein mynd sem ég tók
Sent: Mið 30. Maí 2007 09:30
af CraZy
Ég get hiklaust mælt með Canon
Skoðaðu flickr hjá mér ef þú vilt sjá hvað stock-linsan getur
Sent: Mið 30. Maí 2007 11:51
af ÓmarSmith
17-85 er góð, nokkuð skörp og með IS eða Image Stabilizer. Mjög góð walkaround linsa.
Ef þig vantar portrett linsu þá tekur þú bara 50mm 1.8 frá Canon. Það eru lang bestu kaupin alltaf þegar að linsum frá Canon kemur.
Hún er alveg Hníífskörp og klikkuð í portrett. Kostar líka ekki nema milli 10-14 þúsund ný , eftir því hvar þú verslar hana.
Sjálfur er með ég 50mm 1.8 og 17-40L F/4
17-40L hefur varla farið af Boddýinu síðan í janúar. Geðveik linsa í alla staði. ( Range-ið mætti samt auðvitað vera meira )
Þetta er allt spurning í hvað þú hyggst nota vélina í.
Sent: Mið 30. Maí 2007 13:30
af Xyron
second that.. 50 fasta er mjög góð, enda er 50mm mjög svipað og mannaugað í range..
er flottasta linsan sem þú færð í price vs. performance!
síðan er náttúrulega hægt að fá sér luxery linsunar seinna meir