Síða 1 af 1

Engir alvöru moddarar á Íslandi!

Sent: Þri 15. Maí 2007 22:35
af odinnn
Hvenig er þetta, eru menn ekkert að vinna í neinum alvöru verkefnum þessa dagana? Eða eru Íslendingar bara kjúklingar og halda sig við ljós, viftur og litla glugga? Hvað með vatnskælinar? Menn bara í smákælingum?

Eina sem ég hef séð hérna spennandi hérna í minni litlu og lélegu leit er vatnsblokkin sem 4xon gerði en hún er samt mjög einföld miðað við margt sem maður hefur verið að sjá úti.

Svo að menn nenni að svara þá er hérna smá mynd af kassanum sem ég er að byggja...

Sent: Þri 15. Maí 2007 22:40
af Pepsi
Óðinn þú ert grillaður!!!!

Þessi kassi verður líklegaga geggjaður!!

Hvað erum við að tala um í retail price? Þá eingöngu fyrir loftkælingu?

Kannski að smíða einn fyrir mig?

Sent: Þri 15. Maí 2007 22:47
af odinnn
Ég er kominn upp í 4þ kall og ég á eftir að kaupa plexýið og finna mér bakka undir móðurborðið. Vona að ég endi í 15þ kalli.

Það er hægt að redda öllu handa þér pepsi minn.

Sent: Þri 15. Maí 2007 23:45
af Pepsi
lol snilld!

Reyndar að verða geggjaður á retail vifunni á örranun, og í vandræðum með að finna einhverja aðra sem passar í borðið mitt....

Reyndar ekkert sérstaklega góður að leita
:oops:

Sent: Fös 26. Okt 2007 13:59
af einzi
ekkert að gerast?

Re: Engir alvöru moddarar á Íslandi!

Sent: Fös 26. Okt 2007 16:04
af ManiO
odinnn skrifaði:
Eina sem ég hef séð hérna spennandi hérna í minni litlu og lélegu leit er vatnsblokkin sem 4xon gerði en hún er samt mjög einföld miðað við margt sem maður hefur verið að sjá úti.

Erm, hvaða vatnsblokk hef ég gert :lol:

Sent: Fim 22. Nóv 2007 13:56
af Harvest
Fleiri myndir maður :P

Meira detail.

Hvernig gegnur verkefnið? er það kannski bara tekningin?

Sent: Mán 03. Des 2007 02:33
af odinnn
Júmm, þetta gekk smá, en síðan fór ég að reikna út hvað vatnskælingin myndi kosta og þá fór allt í baklás, ekki alveg til í að eyða svo miklu í kælingu.

Þetta er það sem komið er, þyrfti eigilega að breyta bara planinu í loftkælikerfi og klára hann því ég er orðinn þreyttur á því að hafa tölvuna í pappakassanum utanaf móðurborðinu...

Sent: Mán 03. Des 2007 07:07
af Minuz1
Vatnskæling þarf ekkert að vera neitt dýr, færð þér bara vatnsdælu úr dýrabúð (einhverja öfluga) og setur svo dælingu í gegnum vatnskassa og viftu þar fyrir aftan sem blæs lofti í gegn. Mæli með að þú kaupir festingar við örgjörva og annað bara úti í búð.

Sent: Mán 03. Des 2007 12:23
af appel
Úr viði!? :D Vonandi færðu nokkra reykskynjara í jólagjöf.

Sent: Mán 03. Des 2007 12:48
af odinnn
Minuz1 skrifaði:Vatnskæling þarf ekkert að vera neitt dýr, færð þér bara vatnsdælu úr dýrabúð (einhverja öfluga) og setur svo dælingu í gegnum vatnskassa og viftu þar fyrir aftan sem blæs lofti í gegn. Mæli með að þú kaupir festingar við örgjörva og annað bara úti í búð.
Ég veit að hún þarf ekki að vera dýr, en kerfið sem ég reiknaði með að nota í kassanum og hannaði síðan kassan utanum er dýrt. Frekar tilgangslaust að hanna kassa með plássi fyrir tvo 4x120mm vatnskassa og vera síðan bara með einn 1x120mm vatnskassa og allt hitt tómt.
appel skrifaði:Úr viði!? Very Happy Vonandi færðu nokkra reykskynjara í jólagjöf.
Ég sé ekkert vandamál við að hafa kassan úr viði, það er enginn tölvuhlutur sem nær að búa til það mikinn hita að það geti kveiknað í honum. Hæðsti hiti sem ég hef nokkurntíman heyrt um að sé í tölvu er 80°c og það er á einum litlum punti með þykka koparblokk ofaná sér. Venjulegur hiti inn í kassa er 25-40°c sem er langt frá því að geta kveikt eld í timbri, tala nú ekki um þegar búið er að sprauta kassan og lakka.

Sent: Mán 03. Des 2007 12:49
af ÓmarSmith
hahaha.

Vonandi er þetta bara módel eða skapalón. Ferð varla að gera tölvukassa úr við ????

Sent: Mán 03. Des 2007 12:56
af odinnn
Hvað eru menn að hafa svona mikið á móti því að hafa kassan úr timbri!? Komið með einhverja ástæðu en ekki bara hlæja og benda.

Sent: Mán 03. Des 2007 13:34
af Halli25
Sé ekkert á móti því að hafa kassan úr viði.. hef séð kassa sem vel hefðu getað verið stofustáss úr viði.

Sent: Mán 03. Des 2007 13:49
af einzi
Kassi úr viði er bara stálið

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Sent: Mán 03. Des 2007 15:59
af ÓmarSmith
Það er búið að benda á ástæðuna.. Tölvuhlutir eiga það til að hitna Svívirðilega mikið.

tökum dæmi, skjákort 8800 GT kortin eru að fara alveg í 90° í load.

Persónulega myndi ég ekki vilja hafa þannig kort í kassa úr við ;).. og þora að sofa með vélina í gangi.

Sent: Mán 03. Des 2007 16:02
af einzi
þá geri ég ráð fyrir að þessar 90° séu core hiti en ég stórefast um að nokkur hlutur sé það heitur þar sem hann kemst í snertingu við timbur, auk þess að þá eru til margar aðferðir til að dreifa hitanum sem gæti myndast á einum stað, sjá brassplötur í kringum kamínur.

Sent: Mán 03. Des 2007 16:09
af odinnn
ÓmarSmith skrifaði:Það er búið að benda á ástæðuna.. Tölvuhlutir eiga það til að hitna Svívirðilega mikið.

tökum dæmi, skjákort 8800 GT kortin eru að fara alveg í 90° í load.

Persónulega myndi ég ekki vilja hafa þannig kort í kassa úr við ;).. og þora að sofa með vélina í gangi.
En þessar 90°c eru bara á einum fersentimetra á kortinu og kemur ekki nálægt viðnum! Svo þegar búið er að dreyfa hitanum um kæliplötuna á kortinu þá er þetta orðið max 50-60°c hiti, og þegar sá hiti er búinn að blandast loftinu í kassanum þá erum við kannski að tala um 40-50°c af heitu lofti! Og þetta heitt loft getur enganvegin kveikt í við, hvað þá þegar þú ert með nokkrar viftur á kassanum til að fá loftun í gegnum hann.

Síðan ætturu ekki hvort sem er ekki að vera að keyra svona öfluga tölvu yfir nóttina, það er bara eyðsla á rafmagni.

Sent: Mán 03. Des 2007 16:11
af ÓmarSmith
Það kannski skýrir rafmagnsreiknings hækkunina mína. fór úr um 2400 kalli fyrir síðasta ár í 4000 kall á mánuði þetta ár .. shit .!!

Sent: Mán 03. Des 2007 17:17
af GuðjónR
odinnn skrifaði:Hvað eru menn að hafa svona mikið á móti því að hafa kassan úr timbri!? Komið með einhverja ástæðu en ekki bara hlæja og benda.
Er þetta ekki MDF ?
ÓmarSmith skrifaði:Það kannski skýrir rafmagnsreiknings hækkunina mína. fór úr um 2400 kalli fyrir síðasta ár í 4000 kall á mánuði þetta ár .. shit .!!
LOL þetta er klink...ég er að borga milli 8k & 9k á mán.

Sent: Mán 03. Des 2007 18:51
af urban
GuðjónR skrifaði:
odinnn skrifaði:Hvað eru menn að hafa svona mikið á móti því að hafa kassan úr timbri!? Komið með einhverja ástæðu en ekki bara hlæja og benda.
Er þetta ekki MDF ?
ÓmarSmith skrifaði:Það kannski skýrir rafmagnsreiknings hækkunina mína. fór úr um 2400 kalli fyrir síðasta ár í 4000 kall á mánuði þetta ár .. shit .!!
LOL þetta er klink...ég er að borga milli 8k & 9k á mán.
í rafmagn ?

vá hvað það er fokk mikið... ættir annað hvort að láta kíkja eitthvað á tækin hjá þér eða hreinlega reyna að fá það ódýrara

hiti rafmagn og vatn hérna heima er um 9 - 11 þús á mánuði

og það er í 200 fermetra einbýli, kostar sitt að kynda það

síðan með rafmagntækin
hérna eru 2 ískápar, 2 frystiskápar og 2 frystikistur.
öll þessu helstu heimilistæki (uppþvottavél og örbylgjuofn töluvert mikið notað) og síðan 3 tölvur.
3 sjónvörp og ýmislegt fleira.

gæti reyndar verið að þetta hafi hækkað örlítið núna seinni hlutann á þessu ári eftir að 1 tölvan var endurnýjuð og farið í mun öflugari tölvu

en andskotinn hafi það..
ég mundi bara hreinlega ekki meika að slökkva á tölvunni minni daglega..

búin að vera í gangi í 6 sólarhringa núna, og það er frekar stutt, restarta yfirleitt ekki nema að ég þurfi þess vegna einhverja forrita

Sent: Mán 03. Des 2007 20:35
af odinnn
GuðjónR skrifaði:Er þetta ekki MDF ?
Jamm.