Síða 1 af 25
Opinberi Íslenski Case-Mod Þráðurinn!
Sent: Fös 15. Nóv 2002 02:45
af kiddi
Jæja, eigum við ekki bara að byrja á þessu? Safna saman myndum af kössunum okkar fínu og segja frá þeim? Endilega sendið inn myndir af kössunum ykkar og lýsingu ef það er eitthvað sérstakt við þá! Ath. að þið þurfið að redda ykkur vefsvæði til að hýsa myndir af tölvunum ykkar í bili, og vísa svo í þær með
IMG takkanum, þeir sem geta ekki komið myndunum sínum inn á eitthvað vefsvæði geta sent þær á
kiddi@vaktin.is og ég skal græja það. Nóg blaður í bili... látum kassadelluna byrja!
Þetta er minn...
Ósköp venjulegur blár Dragon kassi sem ég keypti hjá
Hugver, þeir voru svo góðir að leyfa mér að kaupa kassann ÁN powersupplys og þarafleiðandi sparaði ég mér fimmþúsundkall og leyfði mér að versla glerhlið í staðinn...
Þessa 30cm bláu fluorscent peru (ekki neon!) fékk ég í
Íhlutum í Skipholti ásamt spennubreyti á eitthvað um 1800 kr !
Svo er næst á dagskrá að kaupa svona glæra viftu í hliðina á kassanum í stað þessarar svörtu og rounded kapla...
Áður en einhver fer að hamstra í mér hvað það er hallærislegt að kaupa þetta tilbúið í stað þess að gera þetta sjálfur, þá vil ég bara nefna að ég HEF moddað kassa sjálfur, fyrir einhverjum 4 árum og í dag er kassinn ekki beint fallegur, málningin að flagna og allt að fara til helv. - Svo ég bæði nennti ekki að modda aftur og langaði bara að hafa þetta smekklegt + langlíft
PS. Þetta er Pentium4 2.4ghz á MSI 648 Max-F móbói, 1GB DDR-333, 2x 80GB HDD, 1x 180GB, Ti4200, Hauppauge TV-kort, DVD&CDRW
Hér er mynd af gamla kassanum mínum frá því fyrir 4 árum síðan:
PSS. Það kemur bráðum svona file-attachment fítus í spjallið svo þið getið sent myndir beint inn á spjallið í stað þess að græja vefsvæði undir myndirnar, vinsamlegast sýnið þolinmæði þangað til.
Smá viðbót, keypti glæra neonviftu frá Tölvulistanum (2900 kr) frá Coolermaster, hún er svooooooldið hávær... er að vega og meta hvort ég eigi að hafa hana eða ekki.
Viðbót:Ég keypti U/V ljós, 2x U/V IDE rounded kapla og U/V kassaviftu frá honum
mind okkar af spjallinu, og skipti því út fyrir það sem ég var með fyrir, og er mun ánægðari:
[/i]
Sent: Fös 15. Nóv 2002 08:56
af Atlinn
hehe flottir.. er sjálfur að modda einn kassa eins og er sendi myndir af honum um leið og ég er búinn...
Sent: Fös 15. Nóv 2002 15:00
af MezzUp
Hver er munurinn á fluorscent/neon?
Persónulega finnst mér ekkert æðislegt að setja glugga á kassa.......
Kiddi, kemur ljósið einhversstaðar annarsstaðar út heldur en útum gluggann?
Sent: Fös 15. Nóv 2002 15:02
af kiddi
Veit nú ekki alveg hver munurinn er, ef það er þá einhver munur..hehe.. t.d. perurnar sem fást í Tölvulistanum eru mun þykkari en jafnmikil birta sem kemur af þeim. Ljósið læðist út um grillið framan á kassanum líka =)
Sent: Fös 15. Nóv 2002 15:16
af Castrate
Jah hérna er minn hann er ekkert rosa moddaður bara smá spreyjaður ég bara hef ekki gefið mér tíma í að modda hann meira
Ég er með Amd 1800xp, Shuttle AK35, 256mb ddr 333mhz, 40gb og 80gb HDD, GF4TI4600, SBlive, DvD & CDRW
allavega hérna koma nokkrar myndir.
<img src="http://kasmir.hugi.is/kasmir/umsjon/synamynd.php3?uname=Castrate&myndnafn=tolva1.jpg">
<img src="http://kasmir.hugi.is/kasmir/umsjon/synamynd.php3?uname=Castrate&myndnafn=tolva2.jpg">
<img src="http://kasmir.hugi.is/kasmir/umsjon/synamynd.php3?uname=Castrate&myndnafn=tolva3.jpg">
Sent: Fös 15. Nóv 2002 20:12
af MezzUp
Kiddi, hvursu mikið?
Sent: Fös 15. Nóv 2002 20:21
af kiddi
Þónokkuð =)
Sent: Fös 15. Nóv 2002 21:36
af MezzUp
var eitthvað vesen við að setja þetta í?
hvað tekur þetta mörg vött?
fylgdi rofi með?
Sent: Fim 21. Nóv 2002 22:14
af kiddi
Ég man ekki hvað þetta tekur... en það er eitthvað stjarnfræðilega lítið
Ekkert mál að græja þetta.. ég að vísu festi þetta bara með kennaratyggjói..hehe.. afþví að þetta liggur á botninum þá leyfði ég mér þetta, annars myndi maður vanda sig aðeins betur
Og nei., enginn rofi fylgdi með... ég er að hugsa um, einhverntíman í framtíðinni að græja svona stjórnborð þar sem ég get bæði stýrt ljósunum og hraðanum á viftunum... það ætti ekki að vera svo flókið
Sent: Lau 07. Des 2002 20:33
af -Duce-
þetta er verkefnið mitt | Project n3rd
Þakkir fara til Kidda stjórnanda sem hýsir myndirnar.
Ég á svo mikið fleirri myndir , því það er slatti af smáatriðum sem ég lagði mikla vinnu í sem sjást ekki.
Ef fólk vill meiri info um sérstök atriði er hægt að svara hérna eða msg á irc Duce| og ég svara öllu eins og ég get...
Einnig vill ég taka fram að eiginlega mesta vinnan var falin í því að fá fullkomið airlfow i kassan og held ég að það hafi heppnast helvíti vel . .
keyri
1000 amd @ 1120 i c.a. 30 c.. og 36 í load... og ef ég hef opna glugga og útidyrahurð get ég kælt þetta junit ótrulega...
Sent: Lau 07. Des 2002 20:36
af kiddi
Gvuðminngóður.. ég vona bara að AT/ATX standardinn fari ekki að breytast eitthvað á næstunni
Sent: Lau 07. Des 2002 21:48
af -Duce-
hehe maður væri nú ekki lengi að fixa og prixa það
Sent: Lau 07. Des 2002 23:27
af MezzUp
hvar fékstu þessi dekk?
Sent: Sun 08. Des 2002 04:55
af Castrate
nettur
Sent: Sun 08. Des 2002 14:24
af -Duce-
Dekkin eru keypt í verkfæralagernum á heilar 400 kr. og svo boraði ég fyrir þeim og boltaði bara við .. fremri dekkin snúast svo það er hægt að beygja.
Papafart kom með þá uppástungu að setja mótor í þetta og hef ég soldið verið að pæla í að skella mótor og túttum undir gamlan kassa sem ég á og hafa fjarstyringu .. væri gaman að geta keyrt um á skjálfta td.
Sent: Sun 08. Des 2002 18:50
af Atlinn
hehehe það væri ógeðslega svalt að gera það
Sent: Sun 08. Des 2002 19:21
af kiddi
Þarf þá ekki að búa til svona litla kerru til að hengja aftan á (gæti verið svona mini-ATX kassi einhver) sem yrði þá með lítilli rafstöð...? *hóst*
Sent: Sun 08. Des 2002 20:14
af Castrate
hehe snilldar hugmynd
Minn keassi er svona
Sent: Mið 11. Des 2002 17:39
af Spudi
Hér sjáið þið hvernig ég gerði Dragon kassann minn en flottari. Ef þið viljið sjá hvernig ég gerði þetta endilega kíkið á
http://212.30.223.22/verkefni.htm
Gunnar H. (Spudi)
Sent: Fös 13. Des 2002 11:48
af Atlinn
hvernig settiru þetta utanum power kaplana?..verður ekki að taka endana af, er það ekki vesen?
Sent: Fös 13. Des 2002 11:54
af mind
Nei , tekur svona 5 - 10 sec að þræða uppá hvern power kapal.
Þetta eru bara einfaldir cable wrappers , ekkert mál að þræða þetta á þá og eykur loftflæði nokkuð vel.
Sent: Fös 13. Des 2002 11:59
af Atlinn
Eru þeir þá bara jafn þykkir og endarnir, eða?
Hvar fær maður svoleiðis?
Sent: Fös 13. Des 2002 12:25
af mind
Maður fær þetta bara eins þykkt og leiðslurnar eru já , það eru einhverjar nokkrar stærðir. Veit ekki alveg hvaða , sá sami og gerði glerið á kassana sem ég hef tekið reddaði essu í leiðinni.
Kostaði einhverjar 300kr meterinn af essu. Á eftir að wrappa smá , kostar kannski 1500 kall eða að wrappa Psupply , 2x neon ljós , leds, 4 viftur. Borgaði síðan einhvern 1000 kall fyrir complete external wrap , það sést ekki ein einasta leiðsla úr tölvunni minni , bara eitt stórt wrapper frá aftaná kassanum að fjöltenginu(headset / mús undanskilið að sjálfsögðu)
Síðan er þetta bara teipað á endunum með svörtu teipi.
Það er hægt að fá teip sem heatshrinkar að vísu svo maður fái endana alveg 100%. En ég lagði ekki úti það , ekki sem stendur að minnsta kosti. því ég var ekki viss hvort ég myndi halda þessu eins og þetta er.
Sent: Sun 05. Jan 2003 15:47
af Snorrmund
Þetta eru _bara_ svalir kassar
Sent: Mán 06. Jan 2003 11:15
af mind
Sæll Stocker,
Ég myndi mæla gegn því að kaupa þér svona DIY kit , þegar maður er að modda kössum er maður að gera það fyrir sjálfan sig en ekki eftir einhverjum stöðlunum. Auk þess er það ódýrara að borga blikkara fyrir að skera úr kassanum og kaupa sjálfur glerið í þeim lit / þykkt sem maður vill og bolta það við eða nota gúmmikanta(sama og festir rúður í bíla held ég). Kemur örugglega út á sama eða minna heldur en 5000.
[quote="Stocker"]eg er að pæla í að fá mér glugga á kassan minn eg er nebbla ekkert buin ad breyta minni tölvu hvort ætti eg ad gera kaupa mer DIY glugga kit á task.is á 4,990kr eda kaupa mer þunnt plexi gler á 400 og reddda mer rafmagnssnúru til ad setja á kantana semsagt hvort myndud þið geera oog hvernig geridi gluggana a kassana[/quote]