Síða 1 af 1
Spurning um skráningu á verði hjá Tölvutækni
Sent: Lau 28. Apr 2007 14:56
af Cikster
Ég var að skoða verðin á Quad core örrunum áðan og tók eftir því að hér á vaktinni hefur verið uppfært verðið á Q6600 oem og retail hjá tölvutækni í gær en samkvæmt heimasíðunni þeirra er það 6 þúsund kr dýrara.
Mistök eða langað bara að fá græna reitinn til að boosta söluna?
Sent: Lau 28. Apr 2007 15:59
af Ripper
Það gleymdist einfaldlega að uppfæra á síðunni
Verðin á Intel Core 2 Duo hafa lækkað töluvert undanfarna daga. Við lækkuðum verð á flestum Core 2 Duo á fimmtudaginn en í framhaldinu hafa fleiri verslanir lækkað.
takk fyrir ábendinguna þetta hefur verið lagfært

Sent: Lau 28. Apr 2007 16:04
af wICE_man
Líklega bara mistök
Sent: Lau 28. Apr 2007 17:04
af Cikster
Gott að heyra. Vaktin er greinilega að standa sig þegar búðirnar passa betur uppá að uppfæra á vaktinni en á síðunni sinni

Sent: Lau 28. Apr 2007 17:11
af END
Talandi um Core 2 Duo. Ég sé að Tölvutek eru búnir að bæta E6320 og E6420 í vörulistann hjá sér. Það mætti skella þeim inn á Vaktina.
Það væri líka gaman að sjá verðsamanburð á 1GB 667MHz fartölvuminni.
Viðbætt:
Úps.. Nú átta ég mig á því að Tölvutek er ekki með á Vaktinni þannig að það þjónar litlum tilgangi að bæta E6320 og E6420 við.. Hinar verslanirnar hljóta samt að hefja sölu fljótlega.
Sent: Lau 28. Apr 2007 18:31
af TechHead
E6420 er dottinn inn hjá Tölvuvirkni.
Brilliant að fá ódýra Core2Duo með 4MB til yfirklukkunar
