Síða 1 af 1
nýja tölvan ekki að virka
Sent: Þri 02. Sep 2003 21:32
af odinnn
ég er að reyna að koma nýju tölvunni af stað og það gengur illa. ég er með Asus A7N8X Deluxe og Seagate Sata 80Gb hdd og bios-inn er ekki að finna hann. bios-inn er búinn að finna cd-rom en ekki hdd, en það sem ég skil ekki er að raid stýringin finnur diskinn. þar sem ég er bara með einn disk þá raida ég ekki og veit ekki hvernig ég á að fara að því að finna diskinn.
need help asap.
Sent: Þri 02. Sep 2003 21:40
af Voffinn
Ertu með alla jumpera rétt stillta ?
Slökkva á raidinu ?
Sent: Þri 02. Sep 2003 21:43
af halanegri
S-ATA diskarnir eiga ekki að koma fram í IDE listanum, BARA í sata/raid controllernum. Ef þú vilt boota af þeim disk, þá stilliru SCSI sem boot device í bios.
Sent: Þri 02. Sep 2003 21:44
af odinnn
allir jumperar eiga að vera réttir. hvernig slekkur maður á raidinu?
Sent: Þri 02. Sep 2003 21:47
af halanegri
slökkva? raid er ekki notað nema þú sért með 2 diska og ferð í stillingarnar á raid controllernum og setur upp svona raid dæmi.
Sent: Þri 02. Sep 2003 21:49
af odinnn
diskurinn er allveg tómur, ekki búið að particionera hann og þar sem hann finnst ekki get ég ekki gert neitt við hann
Sent: Þri 02. Sep 2003 21:51
af axyne
þegar ég setti mína 120 gb SEagate barracuda SATA diska á MSI móbóið mitt þá fann ég ekki diskana í Bios bara í RAID controlinum.
ég fann einga leið til að fá diskana til að virka nema stilla þá þannig í RAID controlinum að ég bjó til 2 stríp en hafði bara einn disk á hverju strípi.
þannig komust diskarnir inní Windows og gat activað þá þar.
skömmu síðar breytti ég því og STrípaði báða diskana á einn Disk og ætlaði að Runna win.
en það sem var vandamál að í Windows Setupinu þá vildi setupið ekki setja boot up fælana á Raiduðu diskana og vildu hafa þá á venjulegu ATA drifi sem ég er með líka. þannig ég hef nokkra litla boot fæla á ATA drifinu en alla windows möppuna og allt draslið á RAID'uðu diskunum.
það virkaði ekki fyrir mig að velja í BIOS "boot up on SCSI"
Sent: Þri 02. Sep 2003 22:10
af Voffinn
Setja upp linux ?
f
Sent: Þri 02. Sep 2003 22:15
af ICM
nota annan bootmanager....
Sent: Þri 02. Sep 2003 22:16
af odinnn
já það er lausn en þar sem ég finn engann harðann disk til að setja linux upp á þá get ég það ekki
Sent: Þri 02. Sep 2003 22:20
af GuðjónR
Vá hvað ég er feginn að hafa ekki keypt SATA HD, það virðast allir lenda í veseni með þá...
Sent: Þri 02. Sep 2003 22:28
af Voffinn
En sko þú bootar ekkert af diski sem er ó partionaður, þú veist það ?
Búta af winXP cd.
Partiona
Installa
Idiot-Proof
Eða ertu að meina að xp diskurinn sé bara ekki að finna diskinn þinn yfir höfuð ?
Sent: Þri 02. Sep 2003 22:44
af gumol
Voffinn skrifaði:En sko þú bootar ekkert af diski sem er ó partionaður, þú veist það ?
Búta af winXP cd.
Partiona
Installa
Idiot-Proof
Eða ertu að meina að xp diskurinn sé bara ekki að finna diskinn þinn yfir höfuð ?
Voffi: ekki blanda XP inní þetta, það flækir málið bara. Hann finnur ekki diskana í BIOS.
Varstu búinn að gera það sem halanegri sagði?:
halanegri skrifaði:S-ATA diskarnir eiga ekki að koma fram í IDE listanum, BARA í sata/raid controllernum. Ef þú vilt boota af þeim disk, þá stilliru SCSI sem boot device í bios.
Ertu viss um að allt sé tengt, ég gleimi því aldrei þegar Voffinn var að verða brjálaður, hann fann ekki harðadiskinn(eða var það geisladrifið?), þá hafði hann gleimt að tengja hdd kapalinn
Ertu búinn að kíkja í leiðbeiningarnar fyrir móðurborðið
http://www.asus.com ?
Sent: Þri 02. Sep 2003 22:54
af Voffinn
axyne skrifaði:þegar ég setti mína 120 gb SEagate barracuda SATA diska á MSI móbóið mitt þá fann ég ekki diskana í Bios bara í RAID controlinum.
ég fann einga leið til að fá diskana til að virka nema stilla þá þannig í RAID controlinum að ég bjó til 2 stríp en hafði bara einn disk á hverju strípi.
þannig komust diskarnir inní Windows og gat activað þá þar.
skömmu síðar breytti ég því og STrípaði báða diskana á einn Disk og ætlaði að Runna win.
en það sem var vandamál að í Windows Setupinu þá vildi setupið ekki setja boot up fælana á Raiduðu diskana og vildu hafa þá á venjulegu ATA drifi sem ég er með líka. þannig ég hef nokkra litla boot fæla á ATA drifinu en alla windows möppuna og allt draslið á RAID'uðu diskunum.
það virkaði ekki fyrir mig að velja í BIOS "boot up on SCSI"
Lastu þetta gumol ? Þarna fann hann ekki diskinn í bios, en fann hann í raidinu alveg eins og Pandemic.
Þess vegna var ég að tala um þetta.
Sent: Þri 02. Sep 2003 22:57
af gumol
en pandemik er ekki með venjulegan ATA disk, svo hann verður að boota af SCSI, og biosið verður að finna diskinn til að geta bootað af honum, ef það er ekki hægt er ekki hægt að boota af SCSI.
Sent: Þri 02. Sep 2003 23:36
af gnarr
axyne skrifaði:ég fann einga leið til að fá diskana til að virka nema stilla þá þannig í RAID controlinum að ég bjó til 2 stríp en hafði bara einn disk á hverju strípi.
það þarf minnst 2 diska í hvert stripe..
Sent: Mið 03. Sep 2003 00:47
af axyne
gnarr skrifaði:það þarf minnst 2 diska í hvert stripe..
Reyndu að telja RAID controlinum mínum trú um það
þetta var eina leiðin sko. spurðist fyrir á MSI spjallborðinu. og ég var ekki einn með þetta vandamál.
Sent: Mið 03. Sep 2003 00:55
af axyne
Voffinn skrifaði:En sko þú bootar ekkert af diski sem er ó partionaður, þú veist það ?
til að fyrirbyggja misskilning. þá var ég með RAID diskana tóma og bootaði upp af WINxp disknum setti inn Driver fyrir controlerinn svo setupið gæti séð diskana. gott mál setupið fann diskana ég bjó til partition og ætlaði að halda áfram.
en kom kom eitthvað álíka: "WinXP setup cannot copy the boot files on this harddrive please select a different drive" svo ég þarf að geyma nokkra fæla á venjulegu ATA drifi.
Boot.ini, ntldr, NTDETECT.COM, MSDOS.SYS og svo framvegis.
Sent: Mið 03. Sep 2003 20:39
af odinnn
þegar ég læt hana boota upp af win xp disknum byrjar allt kerfið að rúlla en stoppar svo og segist ekki finna neinn harðann disk til að setja draslið á.
þetta er tengt því að raid bios finnur diskinn.
síðan get ég ekki particionerð hann því tölvan finnur engann harðann disk nema raid controllerinn.
búinn að lesa allar leiðbeiningarnar og finn ekki neitt í þeim.
Sent: Mið 03. Sep 2003 20:49
af axyne
ýttu á F6 þegar Xp setupið er að byrja.
settu síðan inn Driver fyrir Raid controlerinn sem ætti að hafa fylgt með móðurborðinu þínu.