Síða 1 af 1

Yfirklukka E6600

Sent: Þri 06. Mar 2007 00:11
af Selurinn
Getur einhver kennt mér hvernig ég yfirklukka E6600 örgjörva?

Sent: Þri 06. Mar 2007 00:34
af GuðjónR
Þarft þess ekki, hann er nógu öflugur í hvað sem er.

Sent: Þri 06. Mar 2007 02:57
af zedro
GuðjónR skrifaði:Þarft þess ekki, hann er nógu öflugur í hvað sem er.
:-k Þér hefur ekki dottið í hug að hann vilji jafnvel bara prufa að yfirklukka örrann sinn uppá fræðslu og gaman?

Sent: Þri 06. Mar 2007 08:29
af gnarr
GuðjónR skrifaði:Þarft þess ekki, hann er nógu öflugur í hvað sem er.
5MHz eru nóg fyrir alla!!

Sent: Þri 06. Mar 2007 12:21
af kristjanm
http://www.google.com - "overclocking guide"

Sent: Þri 06. Mar 2007 12:48
af GuðjónR
gnarr skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Þarft þess ekki, hann er nógu öflugur í hvað sem er.
5MHz eru nóg fyrir alla!!
lol :lol:

Sent: Þri 06. Mar 2007 18:24
af Selurinn
En vitiði hvort það sé þess virði að reyna að overclocka AMD Athlon 3000+ XP?

Sent: Þri 06. Mar 2007 18:46
af Yank
Selurinn skrifaði:En vitiði hvort það sé þess virði að reyna að overclocka AMD Athlon 3000+ XP?
Það er varla þess virði að mínu mati. Það er hægt á nForce 2 að ná þessum cpu í 2,3 - 2,4 Ghz en það er varla þess virði því þetta er það slakt í dag hvort eð er.

Sent: Þri 06. Mar 2007 20:45
af Selurinn
Er einmitt með nforce 2 móðurborð :)

Sent: Þri 06. Mar 2007 21:04
af @Arinn@
En hver er munurinn á 4300 og 6300 ? munar nokkrum hundraðköllum á þeim.

Sent: Þri 06. Mar 2007 22:32
af Yank
@Arinn@ skrifaði:En hver er munurinn á 4300 og 6300 ? munar nokkrum hundraðköllum á þeim.
4300 keyrir á 200 FSB x 9 = 1.8 Ghz
6300 Keyrir á 266 FSB x 7 = 1.86 Ghz

að öðru leit er þetta sama gumsið þannig séð.

4300 með 9 multipiler er því færðilega séð ansi skemmtilegur í yfirklukkun.

Því t.d.
266x9=2.4 Ghz

Sent: Þri 06. Mar 2007 22:55
af @Arinn@
af hverju finnst þér betra að hafa multiplier x9 ?

Sent: Þri 06. Mar 2007 23:03
af Birkir
@Arinn@ skrifaði:af hverju finnst þér betra að hafa multiplier x9 ?
Vegna þess að þá nær hann hærri klukkutíðni á minna fsb.

Sent: Þri 06. Mar 2007 23:11
af @Arinn@
já ok ég skildi þetta þannig að honum fyndist þægilegra ða ovclocka örgjörva með x9 frekar en x10... þannig að ég skil :D