Síða 1 af 1

Spray and pray 2

Sent: Fim 15. Feb 2007 00:25
af zedro
Jæja núna ætla ég að herma eftir honum háhalli og spray-a CD-drifið mitt einsog hann gerði fyrir nokkru Spray and pray

En ég veit ekki hvar og hvernig málingu ég ætti að kaupa. Einhver sem getur vísað mér í rétta átt? :D

Sent: Fös 16. Feb 2007 11:22
af zedro
Ókey þetta er nú ekki mest spennandi project í heimi en einhver hlítur að hafa einhverja reynslu af þessu :shock:

Sent: Fös 16. Feb 2007 12:56
af Mazi!
Rífur bara framan af drifinu og nærð þér í svart Spray og vertu í svona 35cm fjarlægð þegar þú sprautar. :roll:

Sent: Fös 16. Feb 2007 13:11
af Tjobbi
Gerðu margar umferðir til að fá fallega áferð. Fyrsta umferðin verður að vera mjög þunn.

Sent: Fös 16. Feb 2007 13:33
af @Arinn@
Ekki 35 cm svona c.a 20 ætti að standa á brúsanum.

Sent: Fös 16. Feb 2007 16:58
af CraZy
Margar og þunnar umferðir svo það komi ekki klessur/kekkir

Sent: Lau 17. Feb 2007 00:29
af Birkir
Jafnvel spurning um að pússa yfir þetta líka, með sjúklega fínum pappír?

Sent: Lau 17. Feb 2007 02:26
af zedro
Þakka öll svörin drengir :D
Birkir skrifaði:Jafnvel spurning um að pússa yfir þetta líka, með sjúklega fínum pappír?
Pússa fyrir spray?

Sent: Lau 17. Feb 2007 04:03
af Birkir
Eftir spray.

Sent: Lau 17. Feb 2007 10:43
af Tjobbi
Birkir skrifaði:Eftir spray.
Ef hann vill svarta matta áferð þá er góð hugmynd að nota sandpappír eftir spray.

Mæli með vatnspappírnum í byko, frá 400-1000 fer bara eftir því hve mattan flöt þú villt.

Sent: Lau 17. Feb 2007 17:00
af Pandemic
Held að málið sé bara að rífa Face-plateið af og spreyja það haltu bara brúsanum 20 cm frá og óttastu ekki þótt þér finnist lítið af lit koma á þó þú spreyjir mikið nefninlega ef þú ferð of nálægt þá verður þetta bara drullupollur. Spreyjaðu bara í svona hægri-vinstri mjúkum hreyfingum og jafnt. Held þú þurfir nú ekki að gera margar umferðir, ég spreyjaði mitt nú bara einu sinni með e-h Warhammer spreyji sem ég átti hérna og það kom bara mjög vel út.

spreja

Sent: Þri 17. Apr 2007 13:10
af IL2
Getur lika notað glært lakk til að fá mismunandi glans allt frá möttu upp í háglans.

Sent: Mán 07. Maí 2007 10:11
af SIKO
u þarft ekkert að rífa neitt nema drifið ut úr tölvuni vertu ekki að rifa drifið i sundur ekki nota sandpappír af neinu tagi (skemmir stafir og annað á drifinu) en hinsvega skaltu passa að eingin fita sé á fletinum sem skal mála gott er að nota leisigeisla eða svipað efni til að þrífa flötin en (EKKI asenton) bara mildan hreinsilög farðu svo 2-3 umferðir og biddu i 10-15min og svo aftur 2-3 umf. láttu drifi standa þannig að flöturinn sé láréttursnui upp svo minni hætta sé á tilrensli.... svo þega u ert buin getur skafið af ljósinu þa drifinu með duka hnif eda svipað..

Sent: Mán 07. Maí 2007 16:41
af CraZy
SIKO skrifaði:u þarft ekkert að rífa neitt nema drifið ut úr tölvuni vertu ekki að rifa drifið i sundur ekki nota sandpappír af neinu tagi (skemmir stafir og annað á drifinu) en hinsvega skaltu passa að eingin fita sé á fletinum sem skal mála gott er að nota leisigeisla eða svipað efni til að þrífa flötin en (EKKI asenton) bara mildan hreinsilög farðu svo 2-3 umferðir og biddu i 10-15min og svo aftur 2-3 umf. láttu drifi standa þannig að flöturinn sé láréttursnui upp svo minni hætta sé á tilrensli.... svo þega u ert buin getur skafið af ljósinu þa drifinu með duka hnif eda svipað..
ah yes...ofc :cry:
Það er spes takki á lyklaborðinu til að hjálpa fólki að lesa svona.. hann kallast Enter?

Takk

Sent: Mán 07. Maí 2007 19:23
af zedro
Ég er nú reyndar löngu búinn að þessu og varðandi að skafa af ljósadralsinu þá einfaldlega tók ég það úr á meðan ég spreyjaði :lol:

Skall skella nokkrum myndum inna uppá funnið :8)