Síða 1 af 4
Heimagerð vatnskæling.
Sent: Þri 13. Feb 2007 22:52
af @Arinn@
Jæja er byrjaður á kælingunni ég er með 2 myndir sem ég tók á reyndar aðrar annar staðar þar sem ég sýndi hvernig ég gerði þetta og annað en hér eru myndir til þess að sjá aðeins

Hvernig lýst ykkur á ? Á samt eftir að bora aðeins neðar í þetta stykki fer í 9.5 millimetra...
Sent: Þri 13. Feb 2007 23:05
af gnarr
flott! Ég hefði reyndar notað örlítið breiðari bor. Eða er það kanski planið?
Sent: Þri 13. Feb 2007 23:08
af @Arinn@
jú ég er ekki búinn... náði ekki að klára uppí smíðastofu í dag

Fer með alveg 9,5mm

þetta er svona c.a 7mm. Klára að bora út bæði stykkin á morgyun pósta um kvöldið attur

Algerar toppgræjur þarna uppfrá til þess að gera þetta skal taka mynd af því....

Sent: Þri 13. Feb 2007 23:12
af zedro
SWEET
Mest spennandi hlutur síðan "appel" fékk leyfi til að banna GuðjónR ef hann er óþægur.
Haltu þessu áfram drengur og ekki spara myndirnar

Sent: Þri 13. Feb 2007 23:50
af @Arinn@
Sko einn svona grár hringur er 1,15mm c.a og þetta mun semsagt ná næstum því uppí það (munar 2mm) verð samt að passa mig að bora ekki of neðarlega er bar með 6mm plötu en þar sem það kemur önnur eins á móti verður opið c.a 8-9mm sem vatn fær að flæða í gegnum sem ætti að duga.
Sent: Mið 14. Feb 2007 00:03
af zedro
Eitt sem þú mátt gera í næstu myndum er að hafa reglustriku inná myndinni, þá getur mar áttað sig á stærðarhlutföllum

Sent: Mið 14. Feb 2007 13:08
af @Arinn@
Oki kubburinn er samt sko 4x6x2 p.s er að far a að halda áfram núna

Sent: Mið 14. Feb 2007 20:34
af @Arinn@
Jæja þá er ég búinn að klára að bora, ég bora þetta í standbor og nota svona eitthvað vice grip eða eitthvað svipað til að halda stykkinu mjög þægilegt koparinn hitnar líka svolítið. Eitt sem ég var að spá haldiði að það sé ekki fínt að nota 3/8" gengju ? Hvernig lýst ykkur á

?
Posta myndunum a vaktina svo þær eyðist ekki...
P.S erum við ekki farnir að tala saman þarna Gunnar

?
Sent: Mið 14. Feb 2007 21:20
af Pandemic
Zedro skrifaði:SWEET
Mest spennandi hlutur síðan "appel" fékk leyfi til að banna GuðjónR ef hann er óþægur.
*Ég hló*
Annars flott framtak, elska þegar fólk gerir svona
Keep us posted líkar þetta vel.
Hvað ætlaru að hafa ofan á blockinni?
Sent: Mið 14. Feb 2007 21:24
af @Arinn@
Til að halda henni meinau ? Annars kemur annar koparkubbur á móti sem verðu rlíka boraður út hefði samt getað notað eitthvað annað.... Já og endilega commentiði á þetta !

Sent: Mið 14. Feb 2007 21:39
af zedro
Takk fyrir reglustrikuna
Annars er mjög gaman að fá svona "Action photos"

Sent: Mið 14. Feb 2007 21:47
af gnarr
klikkað vel gert hjá þér! kudos!
Ætlaru að gera radiator líka?
Sent: Mið 14. Feb 2007 21:58
af @Arinn@
Ég er svona að melta það... hvar annars gæti ég farið á partasölu til að redda mér einhverju intercooler eða einhverju svoleiðis ?
Sent: Mið 14. Feb 2007 22:09
af gnarr
það á víst að vera frekar hentug stærð í hondu civic 97 módeli. Ég veit ekki hvort það er aðal vatnskassinn eða hvort hann er fyrir eitthvað annað.
Sent: Mið 14. Feb 2007 22:42
af elv
Það er mistöðvar elementið sem er notað...ekki vatnkassinn sjálfur.
Smá galli með vatnrásinar er það er engin alveg í miðjunni,þar sem væntalega verður á miðjum cpu
Sent: Mið 14. Feb 2007 23:09
af @Arinn@
Hvar er hægt að fá svoleiðis á slikk ?
Sent: Fim 15. Feb 2007 00:34
af elv
@Arinn@ skrifaði:Hvar er hægt að fá svoleiðis á slikk ?
Fara í partasölunar.Fékk minn á 1500kall, en það þarf að hafa aðeins fyrir þessu.
Þarft bara að passa að hann leki ekki....getur blásið í hann og haldið fyrir annað gatið með puttanum á þér til þess.
Síðan eru þeir til í mörgum útfærslum og efni, ál, eir etc etc.
Síðan til að þrífa þann sem þú kaupir þér, þá fylliru fötu að heitu vatni og slatta af klór(passaða þig samt að vera ekkert að anda og mikið að gufunum

) og lætur elementið liggja æi svona 5-10min.....alls ekki lengur þar sem klórin byrjar að tæra málminn.
Sent: Fim 15. Feb 2007 14:24
af @Arinn@
Ok ég skil ég ætla að prufa vöku heitir þetta bara miðstöðvar element ? Er eitthvað mál að tengja slöngur við þetta ? Ég verð með 1/2" slöngur.
Sent: Fim 15. Feb 2007 14:26
af ÓmarSmith
hvernig væri að fara að drulla inn myndum af þessu
koma svo Ari .. go go
Sent: Fim 15. Feb 2007 14:52
af @Arinn@
Ég er ekkert kominn lengra næsta mál á dagskrá er að snitta og fá slöngunippla þið verðið að bíða í svolítinn tíma nún aer að fara uppí sveit. Annars er ég búinn að útvega mér allt og þarf bara að ganga í verkið

Sent: Fös 16. Feb 2007 13:36
af @Arinn@
Er búinn að bora hitt stykkið út en það tokst ekki 110% eins og hitt sem þið sáuð enda er það aðalmálið að hafa náð því 100%. En það var nógu vel gert til að vatnið fari greiða leið í gegn ég verð ekki búinn að gera neit fyrr en eftir viku er farinn uppí sveit.....
Sent: Mið 21. Feb 2007 22:20
af @Arinn@
Eitt sem ég var að spá. Ég kemst ekki í rétt snitti fyrir nipplinum sem ég fékk mér. Haldiði að það sé í lagi að bora bara svona 1mm þykkara gat og stinga nipplinum ofaní og líma hann með einhverju mjög góðu einangruðu lími/límkítti ?
Sent: Mið 21. Feb 2007 23:28
af Snorrmund
afhverju kaupiru ekki bara réttan snitt-tappa?

.. Djöfull langar manni samt núna að fara að gera svona sérstaklega þegar maður hefur aðgang að aðstöðu með góðri borvél og mjög góðum fræsara.. manni vantar bara eitthvað allmennilegt til að kæla

Sent: Mið 21. Feb 2007 23:46
af @Arinn@
Afþví að ég er búinn að snitta með hinu og nenni ekki að fara að eyða mikið meira í þetta samt sko hitt er ekkert verra. Ég er búinn að ákveða þetta. Ég bora með 10mm bor gengjan á nipplinum er 9,73 svo maka ég á þetta epoxi lími sem er tveggja þátta lám og mjög sterkt. Set það í og leyfi því að harðna. Svo ték ég silicon eða sikaflex og set rönd af því í kringum nittpilinn að ofan þá ætti þetta að vera alveg skothellt.
Sent: Mið 21. Feb 2007 23:54
af Snorrmund
@Arinn@ skrifaði:Afþví að ég er búinn að snitta með hinu og nenni ekki að fara að eyða mikið meira í þetta samt sko hitt er ekkert verra. Ég er búinn að ákveða þetta. Ég bora með 10mm bor gengjan á nipplinum er 9,73 svo maka ég á þetta epoxi lími sem er tveggja þátta lám og mjög sterkt. Set það í og leyfi því að harðna. Svo ték ég silicon eða sikaflex og set rönd af því í kringum nittpilinn að ofan þá ætti þetta að vera alveg skothellt.
jújú þetta ætti svosum alveg að sleppa

en hvernig er það seturu ekkert meðfram þar sem stykkin mætast? eða ætlaru að sjóða þarna ?
_________
| |
------------- <--- hérna?
|________|