Síða 1 af 2
Ný tölva - meikar þessi sens?
Sent: Fös 12. Jan 2007 02:57
af abo
Góðan daginn öll sömul.
Ég er að fara að kaupa mér nýja tölvu núna helst mjög bráðlega og rakst á þessa og vildi fá ykkar skoðun á henni:
http://tolvutaekni.is/product_info.php?products_id=356
er eitthvað þarna sem er ekki nógu gott eða er hægt að fá sambærilegt ódýrara annars staðar. Já og er eitthvað þarna sem vantar? (fyrir utan lyklaborð, skjá og stýrikerfi)
Gamla tölvan mín er að verða 5 ára þannig að ég held að það sé lítið hægt að nýta úr henni
BTW, er hægt að setja IDE diska í þessa vél fyrir ofan?
BTW
- er ekki leikjakarl en vil hafa snappy tölvu
- vil að þetta virki líka vel á Windows Vista (með allar stillingar í botni)
- er hægt að yfirklukka þetta eitthvað að ráði?
Kærar þakkir og með von um hjálpleg svör!
Atli
Sent: Fös 12. Jan 2007 03:12
af abo
Sent: Fös 12. Jan 2007 10:47
af Dabbz
Ekki fá þér tölvu í BT, það er léleg þjónusta þar og þetta "þýska stál" er bara járn drasl sem virkar ekki shit.
Þessi fyrri þarna, er mjög góð, leikja vél með gott vinnslu minn en það má bæti við.
En já BT sýgur belli....
Sent: Fös 12. Jan 2007 13:01
af ÓmarSmith
fínar vélar frá Tölvutækni. ekki nokkur spurning.
Svo er líka afburðargóð þjónusta hjá Pétri í Tölvutækni og hröð afgreiðsla.
Hef verslað mikið við hann síðan hann opnaði, fékk gallað skjákort gat nálgast nýtt seinna um kvöldið .!!!!
færð ekki mikið betri þjónustu en það.
Sent: Fös 12. Jan 2007 13:16
af abo
Takk fyrir svörin, kann sannarlega að meta þau!
en vitið þið:
1. hvernig hljóðkort þetta er:
- Hljóðkort: 7.1 CH HD Audio CODEC með optical S/PDIF útgangi
Mig vantar væntanlega hátalara með þessu líka (sýnist þeir ekki fylgja með).
2. Hafið þið einhverja reynslu af að yfirklukka svona vélar (eða sambærilegar)? Hefur það reynst vel?
3. borgar sig að taka þetta svona í pakkatilboði eða borgar sig að setja svona saman sjálfur?
4. Borgar sig kannski að bíða þangað til Vista kemur á markaðinn og maður fær það með tölvunni?
bestu kveðjur
Atli
Sent: Fös 12. Jan 2007 15:47
af Blackened
abo skrifaði:Takk fyrir svörin, kann sannarlega að meta þau!
en vitið þið:
1. hvernig hljóðkort þetta er:
- Hljóðkort: 7.1 CH HD Audio CODEC með optical S/PDIF útgangi
Mig vantar væntanlega hátalara með þessu líka (sýnist þeir ekki fylgja með).
2. Hafið þið einhverja reynslu af að yfirklukka svona vélar (eða sambærilegar)? Hefur það reynst vel?
3. borgar sig að taka þetta svona í pakkatilboði eða borgar sig að setja svona saman sjálfur?
4. Borgar sig kannski að bíða þangað til Vista kemur á markaðinn og maður fær það með tölvunni?
bestu kveðjur
Atli
Jahh.. þó að vista fylgi með tölvunni þá ertu samt alltaf held ég að borga næstumþví fullt verð... ef ekki bara fullt verð fyrir það
Sent: Fös 12. Jan 2007 16:34
af ÓmarSmith
Sama hvað þú gerir. EKKI VERSLA í BT !!!!
Munt sjá eftir því það sem eftir lifir ævinnar.
Re: Ný tölva - meikar þessi sens?
Sent: Fös 12. Jan 2007 16:51
af Heliowin
abo skrifaði:BTW, er hægt að setja IDE diska í þessa vél fyrir ofan?
Tölvan frá tölvutækni hefur eitt IDE tengi að mér skilst. Þú getur haft bæði IDE disk og geisladrif á sama kapli sem þú væntanlega veist en það er spurning hversu praktískt það sé.
Edit:
abo skrifaði:er hægt að yfirklukka þetta eitthvað að ráði?
Core 2 Duo E6400 2.13GHz örgjörvan ætti að vera hægt að yfirklukka vel og stöðugt með stock viftu og ná allavega 2.88GHz. Það er eflaust hægt að yfirklukka meira en þá með meiri tilkostnaði, eins og minni stöðugleika sem væri hægt að yfirvinna með betri kælingu.
Sent: Fös 12. Jan 2007 16:59
af gnarr
Eða haft SATA geisladrif.
Sent: Fös 12. Jan 2007 17:31
af ManiO
gnarr skrifaði:Eða haft SATA geisladrif.
Eru til einhver sniðug SATA geisladrif á viðráðanlegu verði (DVD RW og allt það)?
Re: Ný tölva - meikar þessi sens?
Sent: Fös 12. Jan 2007 17:35
af abo
Heliowin skrifaði:abo skrifaði:BTW, er hægt að setja IDE diska í þessa vél fyrir ofan?
Tölvan frá tölvutækni hefur eitt IDE tengi að mér skilst. Þú getur haft bæði IDE disk og geisladrif á sama kapli sem þú væntanlega veist en það er spurning hversu praktískt það sé.
Tsja, hlýtur að vera í lagi að raðtengja þetta... ég á örugglega aldrei eftir að nota þetta samtímis (þ.e. IDE diskinn og geisladrifið)
Sent: Fös 12. Jan 2007 19:04
af gnarr
4x0n skrifaði:gnarr skrifaði:Eða haft SATA geisladrif.
Eru til einhver sniðug SATA geisladrif á viðráðanlegu verði (DVD RW og allt það)?
http://www.att.is/product_info.php?cPath=41_150_153&products_id=2662&osCsid=247d86d038441a1c67ec3114a262cb9e
Sent: Fös 12. Jan 2007 19:08
af ManiO
Andskotinn,
Sent: Fös 12. Jan 2007 21:50
af gunnargolf
Ef þú ert ekki leikjakall þá mæli ég frekar með því að þú kaupir tölvu með ódýrara skjákorti, setjir jafnvel saman sjálfur og kaupir bara 6600gt eða eitthvað annað ódýrt. Ef þú vilt svo fá rosalegt performance miða við pening þá geturðu reynt þetta:
http://www.tomshardware.com/2007/01/11/ ... 2-extreme/
Keypt tölvu með E6300 og overclocka upp í 3,4 ghz eins og tommi og félagar
Þá ertu með betra performance en 6800 Extreme
Sent: Fös 12. Jan 2007 23:20
af stjanij
gunnargolf skrifaði:Ef þú ert ekki leikjakall þá mæli ég frekar með því að þú kaupir tölvu með ódýrara skjákorti, setjir jafnvel saman sjálfur og kaupir bara 6600gt eða eitthvað annað ódýrt. Ef þú vilt svo fá rosalegt performance miða við pening þá geturðu reynt þetta:
http://www.tomshardware.com/2007/01/11/ ... 2-extreme/Keypt tölvu með E6300 og overclocka upp í 3,4 ghz eins og tommi og félagar
Þá ertu með betra performance en 6800 Extreme
Það er ekki hægt að segja svona. yfirklukkun er mismunandi og það er ekkert öruggt að ná þessum hraða sem Tom´s hardware eru að ná.
Sent: Lau 13. Jan 2007 12:10
af gunnargolf
stjanij skrifaði:gunnargolf skrifaði:Ef þú ert ekki leikjakall þá mæli ég frekar með því að þú kaupir tölvu með ódýrara skjákorti, setjir jafnvel saman sjálfur og kaupir bara 6600gt eða eitthvað annað ódýrt. Ef þú vilt svo fá rosalegt performance miða við pening þá geturðu reynt þetta:
http://www.tomshardware.com/2007/01/11/ ... 2-extreme/Keypt tölvu með E6300 og overclocka upp í 3,4 ghz eins og tommi og félagar
Þá ertu með betra performance en 6800 Extreme
Það er ekki hægt að segja svona. yfirklukkun er mismunandi og það er ekkert öruggt að ná þessum hraða sem Tom´s hardware eru að ná.
Ég veit, en það er samt auðvelt að overclocka E6300 helvíti hátt í flestum tilfellum.
Sent: Lau 13. Jan 2007 22:56
af abo
gunnargolf skrifaði:Ef þú ert ekki leikjakall þá mæli ég frekar með því að þú kaupir tölvu með ódýrara skjákorti, setjir jafnvel saman sjálfur og kaupir bara 6600gt eða eitthvað annað ódýrt. Ef þú vilt svo fá rosalegt performance miða við pening þá geturðu reynt þetta:
http://www.tomshardware.com/2007/01/11/ ... 2-extreme/Keypt tölvu með E6300 og overclocka upp í 3,4 ghz eins og tommi og félagar
Þá ertu með betra performance en 6800 Extreme
já, en borgar sig ekki að vera með frekar öflugt skjákort þegar maður setur upp Windows Vista. Skilst að það sé svolítið frekt á skjákortið.
Sent: Sun 14. Jan 2007 01:53
af gnarr
það er lítil til í því. Á meðan þú ert með 128MB DX9 kort minni eða betra ertu í fínum málum.
Sent: Sun 14. Jan 2007 02:32
af Birkir
Vista fækkar bara „show-off“ fídusunum sem þú sérð þegar þú ert að keyra það með lélegt skjákort..
Ég keyrði betuna með Geforce4 TI4200.
Sent: Sun 14. Jan 2007 09:28
af @Arinn@
Eitt sem mig langar að vita... Hverju breytir að hafa 256mb skjákort eða 768mb skjákort og maður er kannski með sama klukkuhraða á báðum kortum ?
Sent: Sun 14. Jan 2007 11:26
af gnarr
þú getur haft stærri texture-a og flóknari shadera á 768MB korti án þess að tapa hraða. Það væri nánast stöðugt texture og shader kóða swap með 256MB minni, sem myndi valda því að það kort myndi vera mun hægara.
Sent: Sun 14. Jan 2007 13:00
af abo
Birkir skrifaði:Vista fækkar bara „show-off“ fídusunum sem þú sérð þegar þú ert að keyra það með lélegt skjákort..
Ég keyrði betuna með Geforce4 TI4200.
ég vil nefnilega hafa alla þessa "show-off" fídúsa
sem er aðalástæðan fyrir að ég myndi vilja hafa ágætis skjákort (ekki út af leikjum og svoleiðis)
Sent: Sun 14. Jan 2007 19:39
af @Arinn@
gnarr skrifaði:þú getur haft stærri texture-a og flóknari shadera á 768MB korti án þess að tapa hraða. Það væri nánast stöðugt texture og shader kóða swap með 256MB minni, sem myndi valda því að það kort myndi vera mun hægara.
En hvað sjá um þessir texurear og shaderar í kortinu hvað gera þeir ?
Sent: Sun 14. Jan 2007 19:56
af Pandemic
Birkir skrifaði:Vista fækkar bara „show-off“ fídusunum sem þú sérð þegar þú ert að keyra það með lélegt skjákort..
Ég keyrði betuna með Geforce4 TI4200.
Vill ekkert vera leiðinlegur en allir þessir show-off fídusar eru til staðar á öllum dx9 kortum ég sjálfur er með lappa að keyra windows vista og það er 110m kort í honum og allir show-off fídusarnir virka eins og smurt. Tölvan sem bróðir minn hefur er með Ati Radeon 9600xt og hún keyrir vista með öllum þessum fídusum.
Sent: Sun 14. Jan 2007 19:56
af gunnargolf
abo skrifaði:Birkir skrifaði:Vista fækkar bara „show-off“ fídusunum sem þú sérð þegar þú ert að keyra það með lélegt skjákort..
Ég keyrði betuna með Geforce4 TI4200.
ég vil nefnilega hafa alla þessa "show-off" fídúsa
sem er aðalástæðan fyrir að ég myndi vilja hafa ágætis skjákort (ekki út af leikjum og svoleiðis)
Ég túi því nú varla að þeir hjá microsoft ætli að setja svo magnaða ''show-off'' fídusa í Vista að það sé ekki hægt að hafa þá alla enabled án þess að að vera með eitthvað gott skjákort. 6600gt hlýtur að duga.