Síða 1 af 1

Týnt partiton

Sent: Mið 10. Jan 2007 17:30
af arnarpb
Ég var að fá mér nýtt móðurborð, Abit KN9 SLI. Ég var með einn IDE samsung 250gb harðan disk skipt upp í tvö partition. Annað 30gb fyrir stýrikerfi og hitt fyrir gögn. Nú set ég upp Windows XP Pro x64 aftur og formatta minna partitionið. En nú finn ég ekki hitt partitionið. Búinn að prófa allt sem mér mögulega dettur í hug í Disk Management en finn ekki neitt. Einnig hef ég tekið eftir því að tölvan er mjög lengi að ræsa sig upp, þ.e. hún er mjög lengi með skjáinn þar sem windows merkið og loading barinn.
Er eitthvað sem ykkur snillingunum þarna úti dettur í hug.

Sent: Mið 10. Jan 2007 18:56
af gnarr
Uppfærðu biosinn ef þú ert með PCI kort á borðinu.

annars hvað varðar þetta vandamál hjá þér, þá verðuru að öllum líkindum að verða þér útum gagnabjörgunar forrit til að ná þessum gögnum aftur.

Sent: Mið 10. Jan 2007 20:02
af KristinnHrafn
Testaðu forrit sem heitir Acronis Disk Director Suite ef þú finnur þetta ekki.

Sent: Mið 10. Jan 2007 20:08
af arnarpb
Í uppfærði biosinn og það lagaði startupið en partitionið finn ég ekki. Kristinn, dugar trialið af þessu forriti.

Sent: Fim 11. Jan 2007 17:34
af arnarpb
Acronis Disk Director Suite finnur ekkert.

Sent: Fim 11. Jan 2007 17:43
af gnarr
prófaðu Runtime Get Data Back for NTFS.

Sent: Fim 18. Jan 2007 23:30
af smuddi
Recover My Files er einnig forrit sem ég hef heyrt talað um. Á að virka ágætilega held ég.

Sent: Fim 18. Jan 2007 23:32
af Mazi!
smuddi skrifaði:Recover My Files er einnig forrit sem ég hef heyrt talað um. Á að virka ágætilega held ég.


Mæli með Recover My Files.

Sent: Mán 22. Jan 2007 13:07
af ÓmarSmith
Ég er ennþá með 200gb sata disk sem er FUBAR. Partitionið á honum hvarf í haust og ég gat aldrei náð því aftur.

Býður e-r sig fram í að finna draslið sem er á honum?

Viðkomandi fær kaffiboð með kleinum í staðinn ;)

Sent: Mán 22. Jan 2007 13:15
af Mazi!
ÓmarSmith skrifaði:Ég er ennþá með 200gb sata disk sem er FUBAR. Partitionið á honum hvarf í haust og ég gat aldrei náð því aftur.

Býður e-r sig fram í að finna draslið sem er á honum?

Viðkomandi fær kaffiboð með kleinum í staðinn ;)


Prufaðu Recover My Files.

Sent: Mán 22. Jan 2007 13:55
af Bassi6
Ég er ennþá með 200gb sata disk sem er FUBAR. Partitionið á honum hvarf í haust og ég gat aldrei náð því aftur.

Býður e-r sig fram í að finna draslið sem er á honum?


Ég bauð mig fram í haust það stendur enn bara koma með hann

Sent: Þri 23. Jan 2007 09:30
af ÓmarSmith
HeHe, Það er rétt.