Síða 1 af 1

Nýr aflgjafi

Sent: Fös 24. Nóv 2006 13:43
af Alcatraz
Sælir vaktarar,

Skv. einhverjum extreme-psucalculator þarf ég að hafa 503 W PSU, og þar sem ég er með 402 W :roll: þá ætla ég einfaldlega að kaupa nýjann. Mér er nokkurn veginn sama hvað hann kostar, betra að kaupa dýrann og góðann en einhvern ódýrann sem gæti hrunið hvenær sem er. Hvaða aflgjafa ætti ég að taka?

Er sjálfur að spá í þessum: http://tolvutaekni.is/product_info.php?products_id=483

Er þessi aflgjafi ekki fínn eða er einhver annar sem ég ætti að kaupa?

Sent: Fös 24. Nóv 2006 17:41
af Birkir
Eru allar búðir hættar með OCZ Powerstream?

Sent: Fös 24. Nóv 2006 23:54
af Yank
Er með svona og mæli með honum. En það koma að sjálfsögðu fleiri til greina.

http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=2305

Sent: Lau 25. Nóv 2006 01:03
af Mumminn

Sent: Lau 25. Nóv 2006 12:33
af Alcatraz
44.900 kr. í aflgjafa... ekki málið :8)

En Yank, hversu hávær er þinn aflgjafi? Er sjálfur með verksmiðjuaflgjafa, liggur við að maður þurfi að öskra til að tala við næsta mann.

Sent: Lau 25. Nóv 2006 14:12
af Yank
Alcatraz skrifaði:44.900 kr. í aflgjafa... ekki málið :8)

En Yank, hversu hávær er þinn aflgjafi? Er sjálfur með verksmiðjuaflgjafa, liggur við að maður þurfi að öskra til að tala við næsta mann.
Hann er silent og kaldur

Sent: Lau 25. Nóv 2006 15:35
af ManiO
Yank skrifaði:
Alcatraz skrifaði:44.900 kr. í aflgjafa... ekki málið :8)

En Yank, hversu hávær er þinn aflgjafi? Er sjálfur með verksmiðjuaflgjafa, liggur við að maður þurfi að öskra til að tala við næsta mann.
Hann er silent og kaldur
Er líka með 700W Epsilonin og er hæst ánægður með hann.

Sent: Lau 25. Nóv 2006 17:03
af Alcatraz
Já, mér finnst bara hann vara vera full dýr... :roll:

Sent: Sun 26. Nóv 2006 22:34
af Alcatraz
Held ég skelli mér bara á 700W Fortron Epsilon aflgjafann. Er ekki öruggt að hann er hljóðlátur?