Síða 1 af 1

2 lcd tölvuskjáir

Sent: Mán 03. Júl 2006 17:51
af MuGGz
Ég er mikið að spá í að fá mér 2 lcd tölvuskjái og hef verið að browsa netið eitthvað eftir skjáum enn það er svo gríðarlega mikið í boði og ég hef voða litla reynslu af lcd skjáum ..

Þessir skjáir verða tengdir við laptop þannig það verða engnir leikir spilaðir á þessum skjáum heldur bara vinnsla, eins og flash og photoshop og þannig shit og svo nátturlega brows og msn og download og eitthvað svoleiðis ..

Endilega deilið ykkar reynslu af skjáum sem þið eruð með, hvernig þeir eru að reynast og þessháttar...

Draumurinn væri nátturlega að geta fengið sér tvo 19/20" skjái enn 17" koma alveg eins til greina ...

Sent: Mán 03. Júl 2006 19:32
af Baldurmar
í myndvinslu þarftu að athuga litasvið skjásins, hversu vel hann heldur lit, hve auðvelt er að stilla hann, hvort að hann sé með 5000kelvin stillingu. Og hvort að svart sé svart.

Sent: Þri 04. Júl 2006 01:14
af MuGGz
uhh okey, eitthvað sem ég hef ekkert spáð í hehe


Endilega fleiri comment á þetta :wink:

Sent: Þri 04. Júl 2006 01:32
af Mazi!
piff taka bara tvo svona :P http://kisildalur.is/?p=2&id=216

Sent: Þri 04. Júl 2006 01:57
af Rusty
Já, það væri draumurinn. En hví viltu tvo 19" við lappa? Doesn't make much sense.

Sent: Þri 04. Júl 2006 09:09
af MuGGz
Rusty skrifaði:Já, það væri draumurinn. En hví viltu tvo 19" við lappa? Doesn't make much sense.
Þetta er Lappi sem ég nota bæði í vinnunni og heima og er með hann í svona borðstöð ...

og ég ætla að reyna fá mér 2 lcd skjái heim þannig það er mun ódýrara fyrir mig að nota laptopin bara í borðstöð og tengja 2 lcd skjái við hana heldur enn að byrja á því að uppfæra oldschool tölvuna mína og að auki fá mér 2 skjái ...

Og þetta er mjög öflugur laptop þannig

Sent: Þri 04. Júl 2006 11:38
af MuGGz
Ef maður færi í 20" þá myndi ég bara byrja líklegast á einum skjá

Hvað finnst ykkur... taka 2 17" skjái eða byrja bara á einum 20" ?

Sent: Þri 04. Júl 2006 12:41
af arnarj
1 stk 20 án vafa

Sent: Þri 04. Júl 2006 12:50
af Baldurmar
arnarj skrifaði:1 stk 20 án vafa
Verð að vera sammála, sérstaklega í þá vinnslu sem að þú ert að tala um.

Sent: Þri 04. Júl 2006 12:53
af MuGGz
http://kisildalur.is/?p=2&id=216

Hvernig lýst ykkur á þennan ?

er búin að vera lesa review á netinu og kemur bara mjög vel út og kostar ekki of mikið ..

Sent: Þri 04. Júl 2006 12:59
af arnarj
Þekki ekki sérstaklega til hans en þetta eru fínir spekkar og án vafa mjög fínt verð. Skoðaðu hann og ef fontar eru kristaltærir og engir dauðir pixlar þá er þetta mjög góður díll.