Síða 4 af 10

Sent: Mán 05. Jún 2006 14:58
af @Arinn@
Þetta er helvíti gott miðað við nx6600GT !

Sent: Mán 05. Jún 2006 16:11
af hahallur
Eflaust unofficial tweakaðir driver-ar.

Sent: Mán 05. Jún 2006 16:38
af audiophile
Overclockaði örgjörvinn er líka að keyra scorið upp slatta hjá honum.

Sent: Mán 05. Jún 2006 18:48
af hahallur
Nei þetta er ekkert hátt CPU score.

Sent: Mán 05. Jún 2006 20:41
af @Arinn@
það væri nú slatta lægra ef hann væri ekki overclockaður svo er skjákortið overclockað eitthvað líka :P

Sent: Sun 11. Jún 2006 05:49
af Danni Colt
Ég hélt að tölvan mín væri svaka góð... en greinilega ekki miðað við score-in sem sumir eru að fá hérna :shock:

Ég fékk 2144 3dmarks og info um tölvuna eru í undirskrift

Sent: Sun 11. Jún 2006 13:19
af hahallur
Allveg eðlilegt score.... 8 pipe kort.

7800 + eru öll með 24 pipelines.

Sent: Sun 11. Jún 2006 17:18
af gnarr
x800xt pe er 16 pípu kort..

Sent: Sun 11. Jún 2006 20:38
af hahallur
hahahah... þarna rugglaðist ég allveg.... fannst þetta líka eitthvað skrítið þegar ég var að skrifa þetta.

Sent: Lau 24. Jún 2006 19:15
af Gestir
Hérna er Asus 7900GT kortið mitt.

Sent: Lau 24. Jún 2006 20:14
af hahallur
Bad score settu inn nýja rekkla :)

Sent: Sun 25. Jún 2006 15:12
af Gestir
Hmm, já þetta er ekkert til að hrópa húrra fyrir.

Ég er líka með kortið klukkað í um 500/1400 þarna.

Reyndar er örrinn ennþá stock en hann á að fljúga í 2.6 - 2.8.

Ég er með nýjustu driverana en reyndar var ég að prufa e-a tweak drivera sem gætu verið að slá af kortinu. Þ.E ekki bench tweak heldur image og quality.

Þarf að fikta mig áfram.

Sent: Lau 15. Júl 2006 10:04
af viddi
hér er x1900 xtx kortið mitt

Sent: Lau 26. Ágú 2006 13:56
af ÓmarSmith
Er að nálgast 5000 stigin.

Er að klukka kortið soldið með Ati tool. Og er með Omega drivera á 6.7 Catalyst.

Veit ekki hvort þeir virki betur eða verr á þessi Test.


En mér sýnist örrinn vera smá flöskuháls þarna. Hefði viljað ná soldið yfir 1000 stigum út úr CPU score.

Sent: Lau 26. Ágú 2006 20:59
af Cikster
Jæja, þá er maður kominn með 2x Evga 7950 GX2 kort. Allt stock.

Edit : Uppfærði driverinn og drullaðist til að stilla bios rétt.

Sent: Lau 26. Ágú 2006 21:45
af Blackened
öhm.. er þetta ekki frekar lágt score miðað við skjákort herra clickster? :S

Sent: Lau 26. Ágú 2006 22:04
af Cikster
Tjah, ætli það fari ekki eftir hvernig maður lítur á það. Ég hef t.d. ekkert sagt til um hvernig móðurborð ég er með (og þar af leiðandi ekki hvort kortin séu að keyra á x8 eða x16).

Annars verð ég reyndar að segja að ég er ekki alveg nógu sáttur en held í vonina að quad sli support verði betra.

Í versta falli stel ég brauðgrindinni úr ristavélinni í eldhúsinu og saga gat á hliðina á kassanum til að grilla brauð með kortunum. :)

Sent: Sun 27. Ágú 2006 00:02
af ÓmarSmith
Ertu með 2 svona kort ??

ég bara spyr.. hvað heldur þú að þurfi svona mikið afl í dag ??

Enginn leikur amk so far ;) og þetta eru ekki myndvinnslu þrívíddarkort þannig að


Stórt er spurt... og vonandi ekki lítið um svör . ??

Sent: Sun 27. Ágú 2006 12:03
af hahallur
Quad SLI er ruggl í dag því það eru ekki til driver-ar fyrir það.

Sent: Mán 28. Ágú 2006 06:57
af Cikster
Ómar, ég hvet þig til að prófa leik að nafni X3 Reunion ef þig langar að sjá leik sem þarf að minnsta kosti 1 stk 7800 seríu eða hærra eða 2x 6x00 seríu kort til að spilast sem leikur en ekki sem slideshow.

Ég var með 7300 kort áður og eins mikið og oblivion er flottur þá er hægt að stilla hann niður til að spila hann á lala tölvum sem er ekki hægt að gera nógu vel fyrir X3 Reunion.

Sent: Mán 28. Ágú 2006 08:23
af ÓmarSmith
Jú jú segðu ..

En ekki ætlaru að segja mér að X3 Reunion krefjist svona rosalegs afls ?

Ég DL demoi af honum og hann svínvirkaði , og það var þegar ég var með Single 7800GTX kort.

Bara for your info en þá varstu að eyða peningum í svolitla vitleysu því það er ekkert í dag sem krefst þess að þú sért með SLI 7950. Ekkert ;)

Til að mynda þá var ég með SLI 7800GTX og fann lítinn sem engan mun á að fara í single 7900GT.

Meðan þú ert ekki með 24"LCD eða þaðan af stærra þá er single GPU meira en nóg í dag.

Sent: Þri 12. Sep 2006 13:47
af Pesinn
Þetta er nú kannski ekki alltaf spurning um hvort það er einhver leikir sem krefjast þess Ómar. I mínu tilviki t.d. er þetta nú bara áhugamál og eflaust hjá öðrum. Gætir sagt sama með kraftmikla bíla, til hvers að eiga bíl sem fer langt yfir 200 km/k þegar hámarkshraði er 90km/k?

Þetta er áhugamál hjá flestum og það væri fínt ef þú gætir sýnt smá umburðalyndi yfir því sem menn eru að gera hér. :)

Sent: Þri 12. Sep 2006 16:04
af ÓmarSmith
Rétt. Oft gleymir maður að þetta er stundum áhugamál hjá fólki.

En að taka 2 x 7950 kort er eins og að setja NITRO í 500 Hestafla 3000GT bíl eða álíka. ( Gagnslaust )

Vita tilgangslaust.

Það er ekki töff að heyra að menn séu ALVEG að reykja peninginn sinn.

Ég er bara að segja að menn ættu að skoða t.d minnisuppfærslu eða kassa , watercooling eða annað áður en þeir taka 2 x 7950 kort þegar 1 þannig ræður LEIKANDI við allt sem þer dettur í hug í dag og það í 20" skjá amk.

Skilur þú hvert ég er að fara með þetta.

Sent: Þri 12. Sep 2006 18:59
af Cikster
Skil vel hvað þú ert að meina en ... stundum verður maður að flippa. Að auki fékk ég þetta á ansi góðu verði þannig að ekki kvarta ég (tjah nema kannski yfir því að hafa ekki aðra tölvu fyrir annað kortið þangað til driverarnir verða betri) :)

Sent: Þri 12. Sep 2006 21:02
af GuðjónR
bara flottir...