Síða 4 af 7
Sent: Mið 18. Jan 2006 16:20
af MuGGz
er einhver munur að hafa lykklaborð tengt í usb eða ps2 ?

Sent: Mið 18. Jan 2006 16:46
af SolidFeather
MuGGz skrifaði:er einhver munur að hafa lykklaborð tengt í usb eða ps2 ?

'
Færð meira FPS með USB
Sent: Mið 18. Jan 2006 17:33
af BlackMan890
Það á líka að vera hægt að nota lyklaborðið til að sína stata og þannig úr tölvuleikjum
Gaman að hafa þannig í WOW...
Sent: Mið 18. Jan 2006 21:30
af DoRi-
skemmtilega þessi síða h´ja þeim, verðlisti með engum verðum

Sent: Mið 18. Jan 2006 22:10
af Phixious
DoRi- skrifaði:skemmtilega þessi síða h´ja þeim, verðlisti með engum verðum

það stendur hægra megin í verðlistanum að þú þurfir lykilorð til að sjá verðin... wtf?
Sent: Mið 18. Jan 2006 22:16
af ICM
SolidFeather skrifaði:MuGGz skrifaði:er einhver munur að hafa lykklaborð tengt í usb eða ps2 ?

'
Færð meira FPS með USB
WTF?

PS/2 er alveg nógu hratt fyrir lyklaborð en PS/2 eiga erfitt með það ef t.d. er ýtt á marga takka í einu og þessháttar
G15 til á vefverslun.com
Sent: Fim 19. Jan 2006 07:07
af gadget
Sá að vefverslun.com er að bjóða þau á 10.900 - veit ekki hvort það er gott verð eða ekki, og þau fást þó þar.
Veit ekki með hvort að maður skiptir út gamla góða keytronic-inu en samt flott baklýsing virðist vera.
Slóðin á þetta er hérna
http://vefverslun.com/product_info.php?products_id=216
Sent: Fim 19. Jan 2006 12:10
af Runar
wICE_man skrifaði:Þú þarft að stilla það í Winamp, allavega þurfti ég að gera það.
Geturðu gefið mér upp hvar? ég er ekki heima og næ ekki að prófa þetta fyrren í kvöld.. skemmtilegra að hafa það á hreinu nákvæmlega hvar ég stilli þetta svo ég þarf ekki að fara að finna það þegar ég kem heim í kvöld
Why do anything that you can have others do for you!

hehe..
Sent: Fim 19. Jan 2006 13:00
af Guðni Massi
Það er meðal annars hægt að stilla hotkeys í Winamp svona:
Aðgerð 1. opna Winamp (mjög nauðsynlegt)
Sent: Fim 19. Jan 2006 13:39
af Runar
Snilld.. þakka þér.
Sent: Fim 19. Jan 2006 14:31
af corflame
En hvað er málið með að hafa engin lyklaborð með full-size RETURN takka?
Einnig virðist sem það orðið erfitt að fá lyklaborð með ábrenndum íslenskum stöfum. Öll þessi fínni lyklaborð eru bara með límmiðum.
Ég var að spá í að fá mér nýrri týpu af natural lyklaborðinu, en held ég sleppi því alveg svo lengi sem þetta sem ég er með lifir. Vil alls ekki að þurfa að venja mig á nýjan innslátt til að nota að mínu mati lélegri lyklaborð.
Ef einhver lumar á natural lyklaborði með stórum RETURN-takka <innskot> og ábrenndum stöfum </innskot> þá er ég alveg til í að skoða að kaupa það af honum...
Sent: Fim 19. Jan 2006 14:54
af hilmar_jonsson
Supertalent Internet Hv/Sv
fjórða neðsta hér:
http://thor.is/template2.asp?pageid=76
Sent: Fim 19. Jan 2006 15:41
af wICE_man
Ég á til comfort curve, svart.
Sent: Fim 19. Jan 2006 19:55
af Woods
corflame skrifaði:En hvað er málið með að hafa engin lyklaborð með full-size RETURN takka?
Einnig virðist sem það orðið erfitt að fá lyklaborð með ábrenndum íslenskum stöfum. Öll þessi fínni lyklaborð eru bara með límmiðum.
Ég var að spá í að fá mér nýrri týpu af natural lyklaborðinu, en held ég sleppi því alveg svo lengi sem þetta sem ég er með lifir. Vil alls ekki að þurfa að venja mig á nýjan innslátt til að nota að mínu mati lélegri lyklaborð.
Ef einhver lumar á natural lyklaborði með stórum RETURN-takka þá er ég alveg til í að skoða að kaupa það af honum...
Er með eitt nýtt svona á 2500 kall
http://www.computer.is/vorur/2060
Sent: Fim 19. Jan 2006 20:18
af Birkir
danskir lyklar með álímdum íslenskum límmiðum
Hann vildi hafa stafina ábrennda.
Sent: Fim 19. Jan 2006 20:36
af @Arinn@
Þetta er alveg hræðilegt lykklaborð.
Sent: Fös 20. Jan 2006 09:55
af wICE_man
Birkir skrifaði:danskir lyklar með álímdum íslenskum límmiðum
Hann vildi hafa stafina ábrennda.
Nei hann vildi stórann return takka.
Sent: Fös 20. Jan 2006 12:39
af corflame
Mín mistök, gleymdi að setja inn ábrennda stafi, en semsagt, er að leita að:
Natural lyklaborð (samt ekki elite týpunni) með stórum return-takka og ábrenndum íslenskum stöfum.
Þetta var til í "gamla" daga og þótti lélegt ef tölvur voru seldar án ábrenndra íslenskra stafa, en það er eins og búðir hafi misst allan metnað til slíks.
Ástæðan fyrir því að ég vil ábrennda stafi er að ég á 2 börn sem eru að læra á tölvur (og þá fingrasetningu með) og það hjálpar þeim að geta kíkt á lyklaborðið.
Svo er fátt meira pirrandi en einhverjir límmiðar sem detta af eftir 2 vikur og festast á milli takkanna.
Sent: Lau 21. Jan 2006 10:36
af wICE_man
Ég held að ég geti fullyrt að það séu ekki til nein natural lyklaborð með ábrendum íslenskum stöfum. Ef svo er þætti mér gaman að heyra af því svo að ég geti boðið upp á þau.
Sent: Lau 21. Jan 2006 11:42
af Andriante
Hvernig gengur að koma þessu til íslands Wice?
Bruna þarna uppeftir um leið og þetta er komið inn. GOGO!

Sent: Lau 21. Jan 2006 12:35
af @Arinn@
ég er með Chicony lykklaborð og það eru engir límiðar né neitt en íslenskir stafir ég er ekki alveg að skilja þetta að hafa þá ábrennda það er allvega ekkert svona límmiðadrasl á.
Sent: Lau 21. Jan 2006 12:38
af DoRi-
@Arinn@ skrifaði:ég er með Chicony lykklaborð og það eru engir límiðar né neitt en íslenskir stafir ég er ekki alveg að skilja þetta að hafa þá ábrennda það er allvega ekkert svona límmiðadrasl á.
ég er með eins lyklaborð og þú ert með,, við erum með ábrennda stafi þar sem það þarf ekki límmiða

Sent: Lau 21. Jan 2006 12:39
af @Arinn@
mér finnst þetta bara alveg fínt lykklaborð en hvernig virkar þessi return takki ?
Sent: Lau 21. Jan 2006 12:59
af wICE_man
Return = Enter
Ég skal láta ykkur vita um leið og það kemur, en eins og ég segi þá hefur verið þrautin þyngri að finna það á góðu verði (7.000-7.500kr) það sér þó loks fyrir endan á þessu og ég hef betri upplýsingar í næstu viku.
Sent: Lau 21. Jan 2006 17:08
af Vilezhout
svo geta menn alltaf verslað sér natural lyklaborð og svo ódýrt ábrennt lyklaborð og skipt út stöfunum sem þarf