Síða 4 af 13

Re: Windows 10 Megathread

Sent: Mið 29. Júl 2015 23:29
af GullMoli
Ég ætla að gera clean install á morgun.

Ég var hinsvegar búinn að vera nota preview'ið á lappanum (2006 Thinkpad T61!) í skólanum og það virkaði allt mjög vel í honum. Var algjör snilld hvað Windows 10 tengist Windows Phone vel, allt í einu voru reminders ofl farnir að poppa upp í tölvunni, virkilega þægilegt þegar ég var í tímum.

Re: Windows 10 Megathread

Sent: Mið 29. Júl 2015 23:34
af nidur
Eru serverarnir hjá microsoft alveg að meika þetta :)

Re: Windows 10 Megathread

Sent: Mið 29. Júl 2015 23:49
af GuðjónR
Get notað Chrome .... thats it..
Downlodaði camstudio til að screencaptura t.d. Microsoft Edge .... en náði ekki að fá forritið til að virka...skjárinn blikkaði eins og ofvirk jólasería.
Endaði með að taka smá video á símann...
Spurning um að reyna clean install og ef það er jafn böggað ... downgreida aftur


Re: Windows 10 Megathread

Sent: Mið 29. Júl 2015 23:51
af Tóti
COD Advanced Warfare ekki að virka eitthvað að þar.

Re: Windows 10 Megathread

Sent: Mið 29. Júl 2015 23:52
af mercury
eftir mikið streð við að koma þessu í gang þá tókst mig það loks. Uppfærði alla drivera fyrir mús lyklaborð og skjákort, restartaði. keyrði svo þessa skipun í cmd og þá fór það loks í gang

Re: Windows 10 Megathread

Sent: Mið 29. Júl 2015 23:59
af Tóti
Þetta er ekki nógu gott ýmsir böggar í gangi eins og er.
Fer aftur í WIN 8.1

Re: Windows 10 Megathread

Sent: Fim 30. Júl 2015 00:00
af FuriousJoe
karvel skrifaði:
FuriousJoe skrifaði:
chaplin skrifaði:
FuriousJoe skrifaði:"2. Opnið CMD (sem admin) og keyrið "wuauclt.exe /updatenow""


Fæ alltaf error, failed to install update, einhver ráð ?
Restart. Eina sem mér dettur í hug.

Búinn að prófa en fæ alltaf aftur þennan error :/
Sama vandamálið hjá mér, búinn að reyna að nokkrum sinnum án árangurs ](*,)
Hvað getur verað að hindra að sumir ná að uppfæra en aðrir ekki?
Fékk þetta til að virka, deletaði úr downloads og keyrði CMD commandið, tók ca 4-5 skipti og þá rann þetta í gegn

Re: Windows 10 Megathread

Sent: Fim 30. Júl 2015 00:04
af Tóti
Þetta er ekki að gera sig ýmsir böggar í gangi.
Fer aftur í WIN 8.1 og sjá til með uppfærslur.

Re: Windows 10 Megathread

Sent: Fim 30. Júl 2015 00:12
af mercury
Úff windows update byrjaði og fór svo í fu** fékk einhverja 2 errors.

Re: Windows 10 Megathread

Sent: Fim 30. Júl 2015 00:46
af braudrist
Eina sem ég fíla ekki eru sjálfkrafa uppfærslur sem ekki virðist vera hægt að slökkva á nema með einhverji registry hakki eða að slökkva á Windows Update Service. Þegar ég fór í tölvuna í morgun var búið að installa nýjasta GeForce driver og nýjasta sound driver fyrir onboard soundið hjá mér. Ég vil helst fá að gera þetta sjálfur þegar mér hentar. Ég notast alltaf líka við DDu (Display Driver Uninstaller) þegar ég uppfæri skjákortsdrivera þar sem ég tek ekki sénsinn á að installa bara beint yfir gamla driverinn.

Re: Windows 10 Megathread

Sent: Fim 30. Júl 2015 00:49
af mercury
hmm aftur komið í gang. Það sem ég sótti áðan var 5+gb það sem ég er að sækja nuna er 2.7gb. vonandi virkar það haha

Re: Windows 10 Megathread

Sent: Fim 30. Júl 2015 01:31
af chaplin
Passið ykkur að hafa nóg pláss á tölvunni, fyrstu 5 skiptin sem ég reyndi fékk ég alltaf 2 villur, eftir miklar pælingar fann ég vandamálið, 1.2 GB laus. ;)

Re: Windows 10 Megathread

Sent: Fim 30. Júl 2015 01:49
af Runar
Er að fíla W10 mjög vel!

Búinn að vera að nota Windows 10 í nokkra mánuði, gerði fyrst upgrade frá Win 8.1 og þá var það ekki að virka rosalega vel, en gerði þá clean install og þá virkaði allt mjög smooth, að sjálfsögðu lenti maður í böggum (var náttúrlega í beta builds), en það var ótrúlega lítið, miðað við að ég er búinn að nota W10 sem main OS í nokkra mánuði núna. Seinusta 1-2 mánuðina, þá var þetta byrjað að vera ótrúlega smooth og nice, náttúrlega að nálgast final version.

Edge er alveg fínt, með clean install, en samt helling af hlutum sem hindra mig frá að nota það. Gat alveg importað favourites frá Chrome, en er með flest allt flokkað í möppur í Fav Barinu, það er ekki að virka nógu vel í Edge, get t.d. ekki hægri smellt á neitt sem er í möppu, svo aðrir litlir böggar. En það er mjög hraðvirkt og smooth, notar mun minna resources en Chrome, sjáum hvernig það verður þegar þeir eru búnir að fiffa það til betur :P

Hingað til, þá hef ég ekki lent í neinu veseni með tölvuleiki útaf W10, eina vesenið var útaf lélegum nVidia driver fyrir W10, en svo kom nýr driver út og allir leikir hafa hingað til rönnað mjög vel og engin vandamál, ekkert FPS increase eða neitt þannig, en bjóst ekki við því heldur, það verður ekki fyrren leikir koma út með DX12 support til að nýta það betur.

Myndi engan vegin mæla með upgrade, eingöngu clean install. Skilst samt að til að fá löglega W10 lykilinn til að geta notað með clean install af W10, þá verður maður að fyrst upgrade'a, svo getur maður gert "Reset this PC" frá Settings - Update & Security - Recovery, þá á maður víst að getað eytt öllu út og fengið W10 clean, en hef ekki prófað það sjálfur, þar sem ég var í Insider dæminu og gat installað frá beta builds með cd-key sem var gefið út til þeirra sem voru í Insider prógramminu.

En já, endilega eftir upgrade, prófið að tjékka á þessu Reset this PC dæmi til að fá clean install, til að koma í veg fyrir leiðindi sem virðast vera algeng útaf upgrade'inu.

Re: Windows 10 Megathread

Sent: Fim 30. Júl 2015 02:29
af Danni V8
Þetta download er búið að fara af stað fjórum sinnum sjálfkrafa. Það klárast alltaf, fer í Preparing og klárar það og þegar það er búið kemur þessi error:
winupt.JPG
winupt.JPG (29.89 KiB) Skoðað 1855 sinnum
Búinn að prófa allt sem er mælt með í þessum þræði.

Re: Windows 10 Megathread

Sent: Fim 30. Júl 2015 02:53
af Swooper
Danni V8 skrifaði:Þetta download er búið að fara af stað fjórum sinnum sjálfkrafa. Það klárast alltaf, fer í Preparing og klárar það og þegar það er búið kemur þessi error:
winupt.JPG
Búinn að prófa allt sem er mælt með í þessum þræði.
Ertu með Users möppuna symlinkaða yfir á annan disk en Windows? Sýnist þetta vera sami error og ég fékk alltaf í windows update meðan ég var með þannig setup (sem ég var að laga bara núna rétt áðan til að geta uppfært, er kominn í 8.1 núna, fer í 10 á morgun). Hérna er lausnin á því, ef það er vandamálið hjá þér líka.

Re: Windows 10 Megathread

Sent: Fim 30. Júl 2015 07:29
af fantis
Razer músin mín stoppar af og til og hættir að virka. Búinn að update-a og downloada eldri driver-a en ekkert virkar. Prufaði bæði 3.0 og 2.0 port. Músin virkar fínt í win 8.1 í fartölvunni. Gæti líka verið að músin sjálf sé gölluð en hún er bara 5 mánaða gömul.

Re: Windows 10 Megathread

Sent: Fim 30. Júl 2015 08:15
af Skari
Þetta er að virka fínt hjá mér bæði í leikjatölvunni og fartölvunni.

Ég notaði https://www.microsoft.com/en-us/softwar ... /windows10 og er 1 samt sem ég skil ekki, ég uppfærði fyrst leikjatölvuna úr 8.1 og í 10, hætti svo við og ákvað að gera clean install svo úr þessu tool sem ég downladaði þá gat ég valið um að setja stýrikerfið á usb sem ég gerði.

Gerði svo frá því clean install í báðum tölvum (með að boota frá usb) nema þegar kom upp valmöguleikinn um serial key þá virkuðu ekki mínir serial keys (samt löglegir) svo ég gerði skip á allt sem tengist serial.

Svo núna þegar ég fer í properties á my computer þá kemur að stýrikerfið er activated og með product key :l

Ekki að ég sé að kvarta yfir því en hvað ætli málið sé með það ? gerði skip á allt þegar þeir báðu um serial

Re: Windows 10 Megathread

Sent: Fim 30. Júl 2015 09:31
af Heliowin
Skari skrifaði:Þetta er að virka fínt hjá mér bæði í leikjatölvunni og fartölvunni.

Ég notaði https://www.microsoft.com/en-us/softwar ... /windows10 og er 1 samt sem ég skil ekki, ég uppfærði fyrst leikjatölvuna úr 8.1 og í 10, hætti svo við og ákvað að gera clean install svo úr þessu tool sem ég downladaði þá gat ég valið um að setja stýrikerfið á usb sem ég gerði.

Gerði svo frá því clean install í báðum tölvum (með að boota frá usb) nema þegar kom upp valmöguleikinn um serial key þá virkuðu ekki mínir serial keys (samt löglegir) svo ég gerði skip á allt sem tengist serial.

Svo núna þegar ég fer í properties á my computer þá kemur að stýrikerfið er activated og með product key :l

Ekki að ég sé að kvarta yfir því en hvað ætli málið sé með það ? gerði skip á allt þegar þeir báðu um serial
Þetta á að virka þannig að mér skilst með product key og activation þegar þú gerir clean installation eftir að hafa fyrst uppfært í windows 10.

Re: Windows 10 Megathread

Sent: Fim 30. Júl 2015 10:41
af Gummzzi
First impressions eru mjög jákvæð bara :happy Edge virðist ekki standa undir væntingum samt sem áður en ég geri ráð fyrir að það muni lagast.

Sidenote: http://www.techradar.com/news/software/ ... gs-1300594

Edit. Reyndar eitt sem ég finn ekki.. veit einhver hvort það sé ekki hægt að nota svona trackpad gestures til að fá action center úr hliðinni og fleira eins og var á 8.1. (Er á lenovo yoga 2 pro með win10 trackpad driver) :catgotmyballs

Re: Windows 10 Megathread

Sent: Fim 30. Júl 2015 10:48
af karvel
Mér er greinilega ekki ætlað að sækja og nota Win10 átakalaust :dissed
Reyndi "Installing Windows 10 using the media creation tool" en eftir rúman hálftíma í uppfærslunni fékk ég "We couldn´t install Windows 10 - 0XC1900101-0X4000D- The installation fail in the SECOND-BOOT phase with an error during MIGRATE-DATA operation".
Kannast einhver við þessa meldingu og hvað hún þýðir?
Verð að gera mér Win 8.1 Pro að góðu þangað til að það er áreiðanlegra fyrir mig að uppfæra og skýringar liggji fyrir varðandi þessi vandamál. 8-[

Re: Windows 10 Megathread

Sent: Fim 30. Júl 2015 11:38
af GuðjónR
Þetta er alveg epic, síðan 2008 þá hef ég átt mac og pc samhliða, á hverju einasta ári kemur nýtt stýrikerfi í mac og maður ýmist clean installerar eða setur yfir gamla. Alltaf virkar allt 100%. Ekkert vesen, það er svo hversdagslegt að engum dettur í hug að skrifa þráð um það.
Síðast þegar ég gerði "upgrade" á windows þá var ég að fara úr 3.11 í 95 og það fór allt í klessu. Síðan þá hefur maður reglulega þurft að gera clean install enda windows þekkt fyrir að verða leiðinlegt með tímanum.
Núna 20 árum eftir síðasta win over win upgrade og allt fer í klessu aftur! Hefur Microsoft virkilega ekkert lært af Apple? :klessa

Re: Windows 10 Megathread

Sent: Fim 30. Júl 2015 12:10
af DaRKSTaR
uppfærði hjá mér og engin vandamál.. hélt að ég myndi lenda í einhverju basli útaf bigfoot lan kubbnum en nei.. tók mig innann við 10min og allt tilbúið.

Re: Windows 10 Megathread

Sent: Fim 30. Júl 2015 12:29
af nonesenze
GuðjónR skrifaði:Þetta er alveg epic, síðan 2008 þá hef ég átt mac og pc samhliða, á hverju einasta ári kemur nýtt stýrikerfi í mac og maður ýmist clean installerar eða setur yfir gamla. Alltaf virkar allt 100%. Ekkert vesen, það er svo hversdagslegt að engum dettur í hug að skrifa þráð um það.
Síðast þegar ég gerði "upgrade" á windows þá var ég að fara úr 3.11 í 95 og það fór allt í klessu. Síðan þá hefur maður reglulega þurft að gera clean install enda windows þekkt fyrir að verða leiðinlegt með tímanum.
Núna 20 árum eftir síðasta win over win upgrade og allt fer í klessu aftur! Hefur Microsoft virkilega ekkert lært af Apple? :klessa
apple hefur "þessa tölvu" sem þetta ios þarf að virka á, windows hefur alltaf þurft að virka/ekki virka á "óendanlega mörgum týpum og tegundum af hardware"

ég gerði bara clean install af 8.1 pro, setti inn lykilinn minn og í setupinu bauð það mér windows 10 upgrade, tók ekki langann tíma og allt virkar flott, meira segja edge alveg snappy og maður gæti vanist þessu layout

Re: Windows 10 Megathread

Sent: Fim 30. Júl 2015 12:31
af Danni V8
Swooper skrifaði:
Danni V8 skrifaði:Þetta download er búið að fara af stað fjórum sinnum sjálfkrafa. Það klárast alltaf, fer í Preparing og klárar það og þegar það er búið kemur þessi error:
winupt.JPG
Búinn að prófa allt sem er mælt með í þessum þræði.
Ertu með Users möppuna symlinkaða yfir á annan disk en Windows? Sýnist þetta vera sami error og ég fékk alltaf í windows update meðan ég var með þannig setup (sem ég var að laga bara núna rétt áðan til að geta uppfært, er kominn í 8.1 núna, fer í 10 á morgun). Hérna er lausnin á því, ef það er vandamálið hjá þér líka.
Þetta gæti verið vandamálið. Ég var eitthvað að hrófla við users möppunni eða documents eða eitthvað þannig þegar gta v kom út útaf sérstafa veseni.

Kíki á þetta þegar ég kem heim úr vinnunni

Re: Windows 10 Megathread

Sent: Fim 30. Júl 2015 13:37
af HalistaX
Eitthvað fokk í gangi með Youtube. Það fyrsta sem ég sé að í þessu 10 dóti. Er að nota Chrome.