Síða 4 af 11
Re: Nýtt spjallborð!!!
Sent: Lau 10. Jan 2015 20:27
af GuðjónR
Þetta er doldið ljóst...
Re: Nýtt spjallborð!!!
Sent: Lau 10. Jan 2015 20:52
af depill
Ég að óspurðum Guðjóni prófaði þennan lit. Gráan bakgrunn á síðuna. Mér persónulega finnst þetta þæginlegra ?
Re: Nýtt spjallborð!!!
Sent: Lau 10. Jan 2015 20:53
af Dúlli
Þessi grái er mun skárri en þessi hvíti sem var, en nú finnst mér eins og allt sé út um allt, að ekkert haldi þessu saman.
Re: Nýtt spjallborð!!!
Sent: Lau 10. Jan 2015 21:00
af depill
Veit ekki alveg hvað mér finnst sjálfum um þetta núna. En þá svona. Þetta allavega er betra fyrir augun mín en ljósi liturinn sem var.
Re: Nýtt spjallborð!!!
Sent: Lau 10. Jan 2015 21:04
af Orri
Þetta þema á spjallborðinu er ekki hannað með dökkrum bakgrunn í huga.
Ef mönnum fannst hitt vera of ljóst, þá langar mig að leggja til þetta í staðinn:

- 10.1.2015-20-56-07-084c.png (736 KiB) Skoðað 1514 sinnum
Þarna er ég búinn að taka út paddingið í kringum hausinn, en halda því í kringum spjallborðið sjálft (með in-line stíl því það eru tvö div með sama ID, eins og ég benti Guðjóni á og hann er vonandi að laga), sem er enn með ljósum bakgrunni sem virkar best fyrir þemað

Re: Nýtt spjallborð!!!
Sent: Lau 10. Jan 2015 21:06
af Dúlli
Þetta er orðið aðeins skárra en sæll, hræðilegt að refresha maður veit ekki við hverju maður á að búast við.
Re: Nýtt spjallborð!!!
Sent: Lau 10. Jan 2015 21:16
af Tiger
Væri til í að losna við PopUp gluggan sem kemur alltaf þegar maður smellir á "merkja öll spjallborð lesin".
Re: Nýtt spjallborð!!!
Sent: Lau 10. Jan 2015 21:34
af lukkuláki
Snilld er þetta orðin maður ! Mjög flott

Re: Nýtt spjallborð!!!
Sent: Lau 10. Jan 2015 21:47
af GuðjónR
depill skrifaði:Ég að óspurðum Guðjóni prófaði þennan lit. Gráan bakgrunn á síðuna. Mér persónulega finnst þetta þægilegra ?
woww ... ég fékk vægt sjokk

Var að fikta í colour.css og við næsta refresh þá kom þetta ... hélt ég væri að gera einhverja vitleysu hehehe

Re: Nýtt spjallborð!!!
Sent: Lau 10. Jan 2015 22:20
af GuðjónR
Orri skrifaði:Þetta þema á spjallborðinu er ekki hannað með dökkrum bakgrunn í huga.
Ef mönnum fannst hitt vera of ljóst, þá langar mig að leggja til þetta í staðinn:
10.1.2015-20-56-07-084c.png
Þarna er ég búinn að taka út paddingið í kringum hausinn, en halda því í kringum spjallborðið sjálft (með in-line stíl því það eru tvö div með sama ID, eins og ég benti Guðjóni á og hann er vonandi að laga), sem er enn með ljósum bakgrunni sem virkar best fyrir þemað

Aðeins meiri svart og þú ert kominn með frábært "Dark" thema!!
Re: Nýtt spjallborð!!!
Sent: Lau 10. Jan 2015 22:57
af beatmaster
Settu eftirfarandi neðst í colours.css skjalið og málið er dautt af minni hálfu
Kóði: Velja allt
body {
padding: 0;
}
#wrap {
border-radius: 0;
max-width: 0;
padding: 10px;
}
#wrap #wrap { /* þetta stingur svo í augun að mig langar að gráta*/
padding: 0;
}
Að öllu gamni slepptu þá finnst mér þetta betra eins og þetta var í fullri breidd, í líkingu við myndina mína hér fyrir ofan
Þú mátt ekki nota id oftar en einu sinni per page, þannig að þú ættir að laga það.
Ef að ég mætti ráða myndi ég gera eftirfarandi í réttri röð:
1. breyta öllum id="wrap" í class="wrap" í php-inu ég reikna með að það sé í lagi því að ef að einhver scripta væri að targeta id-ið þá væri hún væntanlega brotin fyrst að það eru 2 div með sama id
2. breyta öllum #wrap í css skjölunum í .wrap
3. í colours.css breyta kóðanum fyrir .wrap í línu 45 í:
Kóði: Velja allt
.wrap {
border-color: #FFF;
background-color: #FFF;
}
4. í common.css breyta kóðanum fyrir .wrap í línu 177 í:
Kóði: Velja allt
.wrap {
margin: 0px auto;
min-width: 625px;
overflow: hidden;
padding: 10px;
}
.wrap .wrap {
padding: 0;
}
Frítt css beauty tip frá beatmaster

Re: Nýtt spjallborð!!!
Sent: Lau 10. Jan 2015 23:31
af Oak
Mitt atkvæði fer á það að hafa bakgrunninn svartan eins og Orri bendir á...

Re: Nýtt spjallborð!!!
Sent: Lau 10. Jan 2015 23:46
af Diddmaster
það væri æði ef linkar oppnuðust í nýjum flipa einsa var áður

Re: Nýtt spjallborð!!!
Sent: Sun 11. Jan 2015 00:44
af nidur
Eitt sem ég var að taka eftir.
Línan sem skilur að undirskriftina sést ekki á dekkri gráa litnum.
Re: Nýtt spjallborð!!!
Sent: Sun 11. Jan 2015 01:14
af KermitTheFrog
nidur skrifaði:Eitt sem ég var að taka eftir.
Línan sem skilur að undirskriftina sést ekki á dekkri gráa litnum.
Mig minnir að það hafi alltaf verið svoleiðis.
Re: Nýtt spjallborð!!!
Sent: Sun 11. Jan 2015 01:38
af Dúlli
Þetta er að verða betra og betra.
Var að sjá dáldið, Tilkynningar stuffið sem er hægra megin efst upp ef maður smellir á það kemur nettur flipi með upplýsingum en hann er dáldið skakkur.
Sérð að það stendur "Stilli"
Re: Nýtt spjallborð!!!
Sent: Sun 11. Jan 2015 01:53
af rango
Flýtisvar fyllir ekki ramman,
Svo er ég óttalega sár að "mín inlegg" takkin er horfin.
Þessi sem gaf mér lista af nýjustu þráðum sem ég hef tekið þátt í.
notaði þetta svoldið til að halda mér inn í þráðum sem ég var að svara.
Re: Nýtt spjallborð!!!
Sent: Sun 11. Jan 2015 01:55
af KermitTheFrog
rango skrifaði:Flýtisvar fyllir ekki ramman,
Svo er ég óttalega sár að "mín inlegg" takkin er horfin.
Þessi sem gaf mér lista af nýjustu þráðum sem ég hef tekið þátt í.
notaði þetta svoldið til að halda mér inn í þráðum sem ég var að svara.
Uppi vinstra megin: Flýtileiðir - Mín innlegg
http://spjall.vaktin.is/search.php?search_id=egosearch
Re: Nýtt spjallborð!!!
Sent: Sun 11. Jan 2015 01:57
af urban
rango skrifaði:
Svo er ég óttalega sár að "mín inlegg" takkin er horfin.

Ferð í flýtileiðir, efsti valmöguleikinn
Re: Nýtt spjallborð!!!
Sent: Sun 11. Jan 2015 02:01
af rango
urban skrifaði:rango skrifaði:
Svo er ég óttalega sár að "mín inlegg" takkin er horfin.
[img]mynd[/img]
Ferð í flýtileiðir, efsti valmöguleikinn
Well snap, Þakka fyrir mig
Væri rangt að taka myndir úr quotum í gegnum kóða?
Einhvað eins og að (það er rangt að tala um að rönna, ég lofa að vanda málfar mitt annars verð ég bannaður, lengi lifi ritskoðun!) rjoma jafnvel?

Re: Nýtt spjallborð!!!
Sent: Sun 11. Jan 2015 10:23
af GuðjónR
Var engin búinn að taka eftir REP og LIKE kerfunum ?
Re: Nýtt spjallborð!!!
Sent: Sun 11. Jan 2015 11:34
af suxxass
Þá er eiginlega komið að aðal spurningunni.
Þorir vaktin því sem Zuckerberg þorir ekki.
Dislike takki...
Re: Nýtt spjallborð!!!
Sent: Sun 11. Jan 2015 11:44
af GuðjónR
suxxass skrifaði:Þá er eiginlega komið að aðal spurningunni.
Þorir vaktin því sem Zuckerberg þorir ekki.
Dislike takki...
Re: Nýtt spjallborð!!!
Sent: Sun 11. Jan 2015 11:50
af urban
svolítið skrítið að geta gefið fleiri en 1 stig.
En loksins er þetta hægt

Re: Nýtt spjallborð!!!
Sent: Sun 11. Jan 2015 11:55
af Tiger
Þú ert líklega með eitthvað annað view en við almennu notendur.... bara 3 möguleikar hjá okkur.

- Screen Shot 2015-01-11 at 11.53.20.png (216.18 KiB) Skoðað 1267 sinnum
Síðan athugasemd með "merkja öll spjallborð lesin". Leiðinlegur popup glugginn sem kemur, og svo merkjast þau ekkert lesinn fyrr en þú refreshar síðuna, gerðist sjálfkrafa í gamla.