Síða 4 af 4

Re: .is = Islamic State

Sent: Þri 14. Okt 2014 16:59
af Sallarólegur
Finnst þér sem sagt eðlilegt að ef það myndi birtast frétt á MBL, Vísi og DV.is að ISNIC væri skítafyrirtæki - að ISNIC geti bara lokað lénunum?

Heldurðu í alvöru að ISNIC þurfi ekki að fara eftir almennum leikreglum um lén?
appel skrifaði:Þetta er bara einsog símanúmer sem þú færð hjá símafyrirtæki, þú ert bara með það í láni, og ef símafyrirtækinu sýnist þá getur það lokað á það án neinnar ástæðu.
Bull.
Telji notandi að fjarskiptafyrirtæki sem rekur fastasíma hafi brotið gegn skyldum sínum samkvæmt lögum um fjarskipti eða gegn skilyrðum sem mælt er fyrir um í almennum heimildum, réttindum eða í rekstrarleyfi getur hlutaðeigandi beint kvörtun til Póst- og fjarskiptastofnunar um að hún láti málið til sín taka. Stofnunin skal leita álits viðkomandi fjarskiptafyrirtækis á kvörtuninni og jafnframt freista þess að jafna ágreining aðila á skjótan hátt. Náist ekki samkomulag skal úr ágreiningi skotið með ákvörðun. Ákvarðanir Póst- og fjarskiptastofnunar sæta kæru til sérstakrar nefndar, úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála. Kæra skal berast nefndinni innan fjögurra vikna frá því að viðkomanda varð kunnugt um ákvörðun stofnunarinnar.
http://www.pfs.is/neytendur/heimasimi/" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: .is = Islamic State

Sent: Þri 14. Okt 2014 17:34
af appel
Þá vissi ég það, útaf því að ISNIC var ófært að koma í veg fyrir þetta þá er núna komið tilefni til þess að setja löggjöf um .is lénið.

http://www.mbl.is/frettir/innlent/2014/ ... slenid_is/" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: .is = Islamic State

Sent: Þri 14. Okt 2014 19:59
af Stuffz
Vá!

Náði eitthver hvað essi náungi sem skráður var fyrir lénið hét þarna í Nýja Sjálandi, ég var að spá í að senda honum línu og segja honum hve ótrúlega miklu hann áorkaði að skrá þetta hérna, þetta er bara næstum því eins stórt og Vodafone málið fyrir ári síðan þegar þessi Agent frá Tyrklandi staldraði hérna við í einn dag eða svo, manni líður stundum eins og meðlimi í "John Frum" smáeyju Költinu, allt erlent hefur svo sterk áhrif á svona eyjaskeggja.

http://www.mbl.is/frettir/innlent/2014/ ... is_islams/" onclick="window.open(this.href);return false;

wikileaks kemur með þessi rök: "All­ir eiga rétt á að sjá og dæma mál­flutn­ing sam­tak­anna,“

hmm yfirveguð og áhugaverð nálgun..

ólík hysteríu um að við eitthvernveginn gætum verið tengd við hóp X hinumegin á hnettinum.

Re: .is = Islamic State

Sent: Mið 15. Okt 2014 14:17
af Nariur
Stuffz skrifaði:All­ir eiga rétt á að sjá og dæma mál­flutn­ing sam­tak­anna.
Það er ekki verið að ritskoða þetta, það er bara verið að brjóta tenginguna við Ísland.

edit: innsláttarvilla

Re: .is = Islamic State

Sent: Mið 15. Okt 2014 17:58
af Minuz1
Nariur skrifaði:
Stuffz skrifaði:All­ir eiga rétt á að sjá og dæma mál­flutn­ing sam­tak­anna.
Það er ekki verið að ritskoða þetta, það er bara verið að bróta tenginguna við Ísland.
Það er engin munur.

ISNIC sinnir grunnþjónust á íslandi, þetta er sambærilegt við að Íslandspóstur myndi hætta að dreifa pósti til einhvers.

Re: .is = Islamic State

Sent: Mið 15. Okt 2014 19:24
af Nariur
Þeir geta leitað annað til að fá þjónustuna, þeir eiga ekkert tilkall til að fá þessa þjónustu hér.
Þetta dæmi á ekki við.

Re: .is = Islamic State

Sent: Mið 15. Okt 2014 19:27
af Sallarólegur
Minuz1 skrifaði:
Nariur skrifaði:
Stuffz skrifaði:All­ir eiga rétt á að sjá og dæma mál­flutn­ing sam­tak­anna.
Það er ekki verið að ritskoða þetta, það er bara verið að bróta tenginguna við Ísland.
Það er engin munur.

ISNIC sinnir grunnþjónust á íslandi, þetta er sambærilegt við að Íslandspóstur myndi hætta að dreifa pósti til einhvers.

Er þetta ekki frekar eins og að hætta a dreifa pósti frá einhverjum?

Re: .is = Islamic State

Sent: Mið 15. Okt 2014 19:50
af appel
Minuz1 skrifaði:
Nariur skrifaði:
Stuffz skrifaði:All­ir eiga rétt á að sjá og dæma mál­flutn­ing sam­tak­anna.
Það er ekki verið að ritskoða þetta, það er bara verið að bróta tenginguna við Ísland.
Það er engin munur.

ISNIC sinnir grunnþjónust á íslandi, þetta er sambærilegt við að Íslandspóstur myndi hætta að dreifa pósti til einhvers.
Maður hálfpartinn brosir við svona ummælum.

Ef Íslandspósti bærist pakki sem innihéldi eitthvað ólöglegt þá myndi hann ekki bera póstinn til þess einstaklings, og líklega myndi lögreglan koma í heimsókn til hans. Það gæti verið hrátt kjöt, eiturlyf, sprengjur, byssur eða hvaðeina.

Eða væri það brot á mannréttindum og tjáningarfrelsi?

Give me a break. [-(

Re: .is = Islamic State

Sent: Mið 15. Okt 2014 20:58
af Minuz1
appel skrifaði:

ok, hver var ólöglegi hluturinn sem var á þessari síðu?
Var nefnilega ekkert ólöglegt á þessari síðu, myndbönd af ólöglegum gjörningum, já.
En það er ekki ólöglegt að eiga myndband á ólöglegum aðgerðum, er það?
Hvernig er þetta t.d. frábrugðið við collateral murder myndbandið?

En ok, tökum þitt dæmi.
Myndi Íslandspóstur í framhaldi á þessum hræðilega hlut sem fannst hjá manninum, hætta að taka við pósti frá einstaklingum eða hætta að koma með póst til hans?

Re: .is = Islamic State

Sent: Fim 16. Okt 2014 00:46
af zedro
Minuz1 skrifaði:En ok, tökum þitt dæmi.
Myndi Íslandspóstur í framhaldi á þessum hræðilega hlut sem fannst hjá manninum, hætta að taka við pósti frá einstaklingum eða hætta að koma með póst til hans?
Þetta pósthús er hrikalegt dæmi. Hugsaðu þetta frekar sem framleiðanda og millilið.

Dæmi:
  • Framleiðandi A (ISIS) gerir eitthvað af sér og fær mikið hatur í kjölfarið.
  • Söluaðilli B (ISNIC) vill ekki lengur vera með vörur frá Framleiðanda A því hann telur það geta skaðað ímynd sína.
  • Kaupandinn getur enn nálgast vörur beint frá Framleiðanda A (ip address) eða öðrum söluaðila. (.com .org .tw ...etc.)

Re: .is = Islamic State

Sent: Fim 16. Okt 2014 02:50
af Gúrú
appel skrifaði:Maður hálfpartinn brosir við svona ummælum.

Ef Íslandspósti bærist pakki sem innihéldi eitthvað ólöglegt þá myndi hann ekki bera póstinn til þess einstaklings, og líklega myndi lögreglan koma í heimsókn til hans. Það gæti verið hrátt kjöt, eiturlyf, sprengjur, byssur eða hvaðeina.
Ég er hættur að brosa yfir því að þú heldur því staðfastlega fram að þessi síða eða eitthvað/allt inná henni sé ólöglegt án þess að sýna fram á það.

Þú ert að sýna öllum þessum strámönnum hvar Davíð keypti ölið, það er á hreinu.

Segðu mér af hverju ég mætti ekki kaupa HizbollahFrettir.is og segja hvað er að frétta af þeim eða hættu þessu rugli.

Hvað, nákvæmlega, myndi gera það ólöglegt athæfi - og hvað nákvæmlega gerði innihald síðunnar sem um ræddi ólöglegt?

Re: .is = Islamic State

Sent: Fim 16. Okt 2014 03:32
af Sallarólegur
Gúrú skrifaði:
appel skrifaði:Maður hálfpartinn brosir við svona ummælum.

Ef Íslandspósti bærist pakki sem innihéldi eitthvað ólöglegt þá myndi hann ekki bera póstinn til þess einstaklings, og líklega myndi lögreglan koma í heimsókn til hans. Það gæti verið hrátt kjöt, eiturlyf, sprengjur, byssur eða hvaðeina.
Ég er hættur að brosa yfir því að þú heldur því staðfastlega fram að þessi síða eða eitthvað/allt inná henni sé ólöglegt án þess að sýna fram á það.
Já.

Helgi Hrafn útskýrir þetta nákvæmlega eins og ég hefði viljað gert:

Harmageddon - réttur til að lesa hatursáróður
Helgi Hrafn Gunnarsson segir frá.

Re: .is = Islamic State

Sent: Fim 16. Okt 2014 08:49
af dori
Helgi Hrafn á hrós skilið fyrir að hafa nennt þessu, þvílíkt shitstorm sem hann lenti í á facebook eftir að hafa fært rök fyrir því af hverju það að loka þessu væri ekki lausnin og sýnt fólki hvernig ætti að skoða þetta ef það hefði áhuga.

Re: .is = Islamic State

Sent: Fim 16. Okt 2014 09:21
af Nariur
Helgi Hrafn orðaði þetta fullkomlega. .is stendur fyrir Ísland, ekki Islamic State. Þetta er villandi og fullkomlega óásættanlegt að .is sé kennt við þennan viðbjóð.

Re: .is = Islamic State

Sent: Fös 29. Sep 2017 17:15
af Stuffz
Ég var bara núna að taka eftir því að það er eitthver búinn að registera þetta rosalega "tjáningarfrelsis-bana" lén khilafah.is á isnic ..aftur?

síðast var þetta skráð í gegnum Pósthólf á Nýja Sjálandi sem var brot á Isnic reglum, núna er þetta skráð í US, kannski verið skráð rétt (ekki pósthólf) í þetta skiptið, svo verði ekki lokað aftur fyrir, fyrir að samræmast ekki skráningarreglum

frekar brútal ississ paranoja þarna síðast :P

Leit í rétthafaskrá (WHOIS) : Go
Skráningarskírteini
khilafah.is
Lén:
khilafah.is
...

Skráð:
22. júní 2017
Næsta endurnýjun:
22. júní 2018
Síðast breytt:
1. september 2017

https://www.isnic.is/is/

Re: .is = Islamic State

Sent: Lau 30. Sep 2017 14:13
af Perks
ætli traffík á is.is hafi aukist mikið á síðustu nokkrum árum? Selja þeir meiri fisk til miðausturlanda en áður??
Er frystihúsið út á Granda leynimoska??