Síða 4 af 16

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Sent: Fös 24. Jan 2014 15:49
af hkr
kjartanbj skrifaði: ég veit vel að youtube er erlendis, en þeir spegla það hér, traffíkin á það fór í gegnum íslenskar ip tölur , íslenskan server , sem síðan sækir efnið út og speglar það
frá mínum dyrum séð var þetta innanlands traffík, en þeir rukka samt erlent fyrir það , ég þurfti að breyta stillingum þannig að þetta íslenska ip net sem þessir speglar eru á myndu fara út í gegnum vpn hjá mér
Sama á við um Steam og (held ég) Origin.

Sótti leik af Steam af "íslenskri" ip-tölu en það var allt rukkað sem erlent.

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Sent: Fös 24. Jan 2014 16:40
af dodzy
kjartanbj skrifaði:ég veit vel að youtube er erlendis, en þeir spegla það hér, traffíkin á það fór í gegnum íslenskar ip tölur , íslenskan server , sem síðan sækir efnið út og speglar það
frá mínum dyrum séð var þetta innanlands traffík, en þeir rukka samt erlent fyrir það , ég þurfti að breyta stillingum þannig að þetta íslenska ip net sem þessir speglar eru á myndu fara út í gegnum vpn hjá mér
já, spurning hvort það er löglegt að telja þetta sem erlent niðurhal.

Tracing route to youtube.com [157.157.135.123]
over a maximum of 30 hops:

1 73 ms 99 ms 99 ms dsldevice.lan [192.168.1.254]
2 9 ms 8 ms 8 ms B09-Akureyri.metronet.is [193.4.254.9]
3 14 ms 15 ms 15 ms te3-1-D01-Sidumuli.c.is [217.151.190.146]
4 16 ms 14 ms 15 ms te3-1-D01-Sidumuli.c.is [217.151.190.146]
5 15 ms 15 ms 15 ms muli-ix.simi.is [213.176.146.131]
6 15 ms 15 ms 15 ms hysing-123.simnet.is [157.157.135.123]

google.is beinir líka á íslenska ip tölu, hjá simnet.is, er hjá vodafone.

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Sent: Fös 24. Jan 2014 16:56
af kthordarson
Trace fra vodafone tengingu á youtube.com


mtr youtube.com -r -c 1 --raw
h 0 192.168.1.1
p 0 947
h 1 10.205.20.3
p 1 2159
h 2 193.4.254.241
p 2 67988
h 3 217.151.187.138
p 3 5827
h 4 217.151.191.230
p 4 2451
h 5 193.4.115.250
p 5 2096
h 6 193.4.115.250
d 6 193-4-115-250.LDN-CDN-GOOGLE.metronet.is
p 6 1380

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Sent: Fös 24. Jan 2014 18:16
af Garri
Var að fá upplýsingar frá Vodafone.. þeir breyttu þessu nýverið (væntanlega um áramóti) að rukkað er fyrir speglað efni sem það væri erlent niðurhal. Mjög almennilegur maður sem kannaði þetta fyrir mig og Vodafone fær plús fyrir það að hafa slíka einstaklinga innanborðs.

En engu að síður, sorglegt athæfi og væntanlega, ólöglegt.

Ekki á bætandi á sívíið þeirra (cv alias 'Curriculum Vitae')

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Sent: Fös 24. Jan 2014 18:38
af kthordarson
Ég fékk önnur svör frá Vodafone. Þau voru á þá leið að umferð frá 193.4.115.241-251 (google speglar) væri innanlands og því ekki í niðurhalstölunni.

Í gær lá ég yfir þessu, gékk meira svo langt að setja access-lista sem blokkaði ALLA umferð inn til mín nema frá rix netum. Samkvæmt mælinum Vodafone fór erlenda niðurhalið í 6 GIG. Ég er því alveg sannfærður um að mælingin hjá þeim er kolröng.

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Sent: Fös 24. Jan 2014 18:46
af Vaski
svar af netspjalli vodafone
"Fyrir nokkru tókum við upp tiltekna högun í gagnaflutningi frá stórum efnisveitum (t.d. YouTube og Google) til að auka gæði þjónustunnar og bæta upplifun viðskiptavina. Högunin tryggði t.d. hökralaust streymi á lifandi efni frá ýmsum efnisveitum og skemmri svartíma. Þetta þýðir að að umferð til þessarar efnisveita fer um búnað hjá okkur og fær við það islenska ip tölu. Það breytir því ekki að þetta er erlent niðurhal og er gjaldfært sem slíkt. "
= og hjá garra

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Sent: Fös 24. Jan 2014 18:52
af kthordarson
Þetta hafa þeir sent mér:
ldn-cdn-google.metronet.is [193.4.115.247] (sem vissulega er eins og þú segir, íslensk ip tala, en það segir ekki alla söguna)
Ég leitaði nánari svara hjá sérfræðingum hér innanhúss sem segja mér að þarna sé um að ræða íslenskan þjón af minni gerðinni sem hýsi svona þessi algengustu video hjá youtube (og líka forsíðuna, til að fá hana upp sem hraðast), mögulega featured video af forsíðunni ofl. Og fullyrtu þeir einnig að ekkert af þessari umferð væri nokkurn tíman talin á erlenda gagnamagnsnotkun viðskiptavina.
og svo seinna
Við höfum tekið ákvörðun að skoða þetta aðeins betur, og þá sérstaklega þessar prófanir sem þú nefnir með DNS þjóna okkur og google spegilinn. Ég prófaði þó að traceroute-a heiman frá mér og var vísað beint í skútahraunið. Ég verð í nánara bandi við þig eftir helgi með þetta mál ef það er í lagi.
svar af netspjalli vodafone
"Fyrir nokkru tókum við upp tiltekna högun í gagnaflutningi frá stórum efnisveitum (t.d. YouTube og Google) til að auka gæði þjónustunnar og bæta upplifun viðskiptavina. Högunin tryggði t.d. hökralaust streymi á lifandi efni frá ýmsum efnisveitum og skemmri svartíma. Þetta þýðir að að umferð til þessarar efnisveita fer um búnað hjá okkur og fær við það islenska ip tölu. Það breytir því ekki að þetta er erlent niðurhal og er gjaldfært sem slíkt. "
= og hjá garra
Bíddu við. Fyrir nokkru? Var það í okt/nov á síðasta ári? Þetta vekur bara fleiri spurningar, því ekki hefur youtube glápið hjá mér tífaldast á þessum tíma. Hafa þá þessir innlendu speglar verið til staðar í marga mánuði eða ár en bara nýlega farið að rukka sérstaklega fyrir umferðina frá þeim? Fyrir var dæmigerður mánuður í 30-50 gig. Nú kominn í 120! Skítalykt af þessu öllu saman.

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Sent: Fös 24. Jan 2014 20:07
af ponzer
Garri skrifaði:Var að fá upplýsingar frá Vodafone.. þeir breyttu þessu nýverið (væntanlega um áramóti) að rukkað er fyrir speglað efni sem það væri erlent niðurhal. Mjög almennilegur maður sem kannaði þetta fyrir mig og Vodafone fær plús fyrir það að hafa slíka einstaklinga innanborðs.

En engu að síður, sorglegt athæfi og væntanlega, ólöglegt.

Ekki á bætandi á sívíið þeirra (cv alias 'Curriculum Vitae')

Ekki um áramótin! t.d allt sem hefur komið frá Akamai/Origin hefur ALLTAF verið flokkað sem erlent niðurhal hjá Vodafone þótt svo að það sé speglað hér heima.

Ég set spurningamerki við allt Google caching - ef Vodafone er að peera við Google/YouTube ( https://peering.google.com/about/delive ... ystem.html" onclick="window.open(this.href);return false; ) þá eru þeir að gera það erlendis og þá líklega í London þar sem Google er með peering presence og þá finnst mér mjög eðlilegt að það sé rukkað erlent fyrir það.

Ein vísbending um þetta er að þegar ég rek leiðina á youtube þá er þetta síðasti staðurinn 193-4-115-251.LDN-CDN-GOOGLE.metronet.is [193.4.115.251] sem er gefur PTR sem inniheldur nafnið LDN sem tengist líklega London en þessi tala er samt á Íslandi vegna þess að hún er að svara mér á 1-2ms - spurning hvort þetta fari til London yfir einhvern tunnel sem við sjáum ekki í trac'inu!?

Þurfum klárlega að komast til botns í þessu máli.

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Sent: Fös 24. Jan 2014 20:51
af Garri
Allavega nýlega.. kannski eitthvað fyrr..

Annars virðist þetta vera á þeirri og sömu línu sem ég ýjaði að hér að framan, það er, að þeir séu að svindla. Ástæðan sem þeir gefa fyrir þessari "breytingu" stenst nefnilega ekki skoðun.

Það að bjóða upp á nýja þjónustu í formi speglunar sem þeir síðan þurfa að rukka fyrir og gera það í gegnum liðinn, erlent niðurhald, getur aldrei aukið niðurhalið. Aldrei.

Niðurhalið áður en þeir spegluðu hefði átt að vera á svipuðu róli og það sem varð eftir að þeir spegluðu. Speglunin hefur ekki áhrif á magn niðurhals.

Greinilegt að þeir hafa verið að spegla og ekki rukkað fyrir þá þjónustu, hafa þannig hugsanlega haft lægra þak á niðurhal og samkeppnishæfari en aðrir sem ekki gera það. Þar við situr.

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Sent: Fös 24. Jan 2014 20:55
af BaldurÖ
Ég var að tala við þá hjá vodafone af því að nú með 4 daga millibili er komið umfram gagnamagn hjá okkur og hann sagði mér
að hann hefði fengið bréf frá sínum yfirmönnum að varðandi allt þetta download dæmi þá væri allt í lagi hjá þeim hann benti mér bara á
að sækja mér forrit sem fylgist með umferðinni hjá mér og bera það svo við hjá þeim. nú þekki ég bara ekki þessi mæli forrit nógu vel er eitthvað sem virkar betur en annað ????

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Sent: Fös 24. Jan 2014 21:38
af konice
Hér hefur einginn farið á netið í dag svo ég viti samt segir vodafone 3,5 Gb ?
Reyndar er ein tölva í gangi sem er reyndar búinn að vera í gangi sýðan í nóvember.
Gæti einhver verið að nota hana? Hefur verið notuð fyrir torret en ekki í 2 vikur (er með comodo eld vegg) eða er vodafone ekki að mæla rétt?

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Sent: Fös 24. Jan 2014 21:39
af siggik
þetta er alveg vangefið...

fékk þetta svar núna við fyrirspurn sem ég sendi í gær
Sæll Sigurður

Það er búið að fara yfir þessa umræðu sem var þarna og hjá okkur hafa verið gerðar breytingar sem geta verið að valda þessu misræmi sem fólk finnst það finna fyrir.

Fyrir nokkru tókum við upp tiltekna högun í gagnaflutningi frá stórum efnisveitum (t.d. YouTube og Google) til að auka gæði þjónustunnar og bæta upplifun viðskiptavina. Högunin tryggði t.d. hökralaust streymi á lifandi efni frá ýmsum efnisveitum og skemmri svartíma. Þetta þýðir að að umferð til þessarar efnisveita fer um búnað hjá okkur og fær við það islenska ip tölu. Það breytir því ekki að þetta er erlent niðurhal og er gjaldfært sem slíkt.

Ég vona að þetta svari einhverju í þínu tilviki.

Þú getur sent okkur línu ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi þetta.

Mbk.
spurning að færa sig yfir til símans, er þetta annað þar ?

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Sent: Fös 24. Jan 2014 21:45
af worghal
spurning hvort það sé einhverskonar hijacking í gangi á tengingum vodafone \:D/

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Sent: Fös 24. Jan 2014 21:50
af Plushy
siggik skrifaði:þetta er alveg vangefið...

fékk þetta svar núna við fyrirspurn sem ég sendi í gær
Sæll Sigurður

Það er búið að fara yfir þessa umræðu sem var þarna og hjá okkur hafa verið gerðar breytingar sem geta verið að valda þessu misræmi sem fólk finnst það finna fyrir.

Fyrir nokkru tókum við upp tiltekna högun í gagnaflutningi frá stórum efnisveitum (t.d. YouTube og Google) til að auka gæði þjónustunnar og bæta upplifun viðskiptavina. Högunin tryggði t.d. hökralaust streymi á lifandi efni frá ýmsum efnisveitum og skemmri svartíma. Þetta þýðir að að umferð til þessarar efnisveita fer um búnað hjá okkur og fær við það islenska ip tölu. Það breytir því ekki að þetta er erlent niðurhal og er gjaldfært sem slíkt.

Ég vona að þetta svari einhverju í þínu tilviki.

Þú getur sent okkur línu ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi þetta.

Mbk.
spurning að færa sig yfir til símans, er þetta annað þar ?

Þú s.s. færð að horfa á youtube ofl. í 1080p gæðum án þess að það bufferi og fari sem hraðast

Viltu s.s. frekar fara til Símans, þar sem þetta heldur áfram teljast sem erlent niðurhal (sem þetta er - bara verið að hraða þessu til þín hjá Vodafone) en eiga möguleika á að geta ekki horft á youtube myndbönd í hinum ýmsum gæðum án þess að buffera.

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Sent: Fös 24. Jan 2014 21:53
af tveirmetrar
Fékk mér tengingu hjá vodafone fyrir 6-7 dögum... Eftir að vera neitað inná mínar síður og búinn að vera í vandræðum með router frá þeim síðan ég fékk hann þá er ég farinn... Entist ekki lengi hjá Vodafokk.. Fór í Tal.

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Sent: Fös 24. Jan 2014 21:58
af kthordarson
Vodafone,
Nýverið var tekin nýr greiðsluhögun á reikningum frá ykkur. Þessi er breyting er gerð með það að markmiði að tryggja að greiðslur til ykkar berist hratt og örugglega. Breytingin lýsir sér þannig að framvegis verða reikningar greiddir með reiðufé. Þið fáið senda mynd af peningum ásamt viðeigandi reikning. Til að tryggja örugga greiðslumiðlun og gagnaöryggi mun ég varðveita peningana í minni vörslu en myndin af peningunum er ykkur fráls til ráðstöfunar.

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Sent: Fös 24. Jan 2014 22:06
af kthordarson
Viltu s.s. frekar fara til Símans, þar sem þetta heldur áfram teljast sem erlent niðurhal (sem þetta er - bara verið að hraða þessu til þín hjá Vodafone) en eiga möguleika á að geta ekki horft á youtube myndbönd í hinum ýmsum gæðum án þess að buffera.
Vodafone og Síminn eru ekki að DNS breytingar af eigin frumkvæði. Það væri DNS hijack. Google gerir þetta svo google.com vísi á google.is eða youtube.com vísi á Íslenskar IP tölur. Þetta er gert af frumkvæði Google. Vodafone (veit ekki með Símann) taka einfaldlega þá ákvörðun að rukka þetta sem erlent niðurhal. Hjá símanum eru þessi speglar á 157.157.0.0/16 netinu.
Burtséð frá þessum youtube spegli, þá er eitthvað annað í gangi. Ég er ekki með youtube rúllandi í 1080 full HD í marga tíma á dag!

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Sent: Fös 24. Jan 2014 22:08
af siggik
Plushy skrifaði:
siggik skrifaði:þetta er alveg vangefið...

fékk þetta svar núna við fyrirspurn sem ég sendi í gær
Sæll Sigurður

Það er búið að fara yfir þessa umræðu sem var þarna og hjá okkur hafa verið gerðar breytingar sem geta verið að valda þessu misræmi sem fólk finnst það finna fyrir.

Fyrir nokkru tókum við upp tiltekna högun í gagnaflutningi frá stórum efnisveitum (t.d. YouTube og Google) til að auka gæði þjónustunnar og bæta upplifun viðskiptavina. Högunin tryggði t.d. hökralaust streymi á lifandi efni frá ýmsum efnisveitum og skemmri svartíma. Þetta þýðir að að umferð til þessarar efnisveita fer um búnað hjá okkur og fær við það islenska ip tölu. Það breytir því ekki að þetta er erlent niðurhal og er gjaldfært sem slíkt.

Ég vona að þetta svari einhverju í þínu tilviki.

Þú getur sent okkur línu ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi þetta.

Mbk.
spurning að færa sig yfir til símans, er þetta annað þar ?

Þú s.s. færð að horfa á youtube ofl. í 1080p gæðum án þess að það bufferi og fari sem hraðast

Viltu s.s. frekar fara til Símans, þar sem þetta heldur áfram teljast sem erlent niðurhal (sem þetta er - bara verið að hraða þessu til þín hjá Vodafone) en eiga möguleika á að geta ekki horft á youtube myndbönd í hinum ýmsum gæðum án þess að buffera.


youtube skiptir mig littlu máli, horfi lítið á það, nota twitch / deildu mun meira, greinilega eitthvað sem breyttist er farið að telja

hugsunin að fara til símans var sú að kvótinn nýtist mér betur og þessi rusl router sem vodafone er að leigja manni dýrum dómum virkar ekki

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Sent: Fös 24. Jan 2014 22:10
af tveirmetrar
Finnst líka alveg frábært hjá Vodafone núna eftir að þeir settu Mínar síður aftur í gang eftir "innbrotið" og ólöglegu upplýsingasöfnunina þeirra.
Þá setja þeir Mínar síður í loftið og nota "Öryggið" sem afsökun fyrir því að einungis notendur með gsm númer hjá þeim komist inn á mínar síður. Það þarf heimabanka staðfestingu til að stofna reikning en svo þarf líka símanúmer hjá þeim til að komast þar inn. Mér finnst fnykur af þessu, ég sjálfur var nálægt því að skipta bara yfir í gsm hjá vodafone til að geta nýtt internet þjónustuna hjá þeim til fulls, og ég er viss um að margir aðrir óþolinmóðir skipti hreinlega yfir á meðan þeir eru að reyna að koma Mínum síðum í loftið.
Svona sé ég markaðsfundinn fyrir mér sem tók þessa ákvörðun:
"Hmm, hvað ef við segjum að við getum ekki tryggt öryggi á "mínar síður" nema þú sért með gsm síma hjá okkur, þannig getum við notað markaðráðandi stöðu í ljósleiðaratengingum og innbrotið hjá okkur almennilega, og að sjálfsögðu verðum við að segja að það sé tímabundið, gætum pikkað upp 5-600 áskrifendur á farsímum hjá óþolinmóðum einstaklingum..."

:shock: =D>

svar vodafone:
Trúðu mér, Arnór, markaðsdeildin hefur ekkert með öryggismál eða innskráningu á Mínar síður að gera.
Það er enginn að neyða neinn til neins - eins og segir í blogginu og eins og segir í svarinu frá mér hér neðar er það tímaspursmál hvenær þeir sem eru ekki með farsímaþjónustu geta líka skráð sig inn á Mínar síður.
Það er einfaldlega verið að fara af stað með þetta á eins öruggan máta og hægt er og því miður þýðir það að við náum ekki að opna á þjónustuna strax fyrir alla viðskiptavini.
Bestu kveðjur, Kristinn, starfsmaður Vodafone

:guy

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Sent: Fös 24. Jan 2014 23:07
af I-JohnMatrix-I
Plushy skrifaði:
siggik skrifaði:þetta er alveg vangefið...

fékk þetta svar núna við fyrirspurn sem ég sendi í gær
Sæll Sigurður

Það er búið að fara yfir þessa umræðu sem var þarna og hjá okkur hafa verið gerðar breytingar sem geta verið að valda þessu misræmi sem fólk finnst það finna fyrir.

Fyrir nokkru tókum við upp tiltekna högun í gagnaflutningi frá stórum efnisveitum (t.d. YouTube og Google) til að auka gæði þjónustunnar og bæta upplifun viðskiptavina. Högunin tryggði t.d. hökralaust streymi á lifandi efni frá ýmsum efnisveitum og skemmri svartíma. Þetta þýðir að að umferð til þessarar efnisveita fer um búnað hjá okkur og fær við það islenska ip tölu. Það breytir því ekki að þetta er erlent niðurhal og er gjaldfært sem slíkt.

Ég vona að þetta svari einhverju í þínu tilviki.

Þú getur sent okkur línu ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi þetta.

Mbk.
spurning að færa sig yfir til símans, er þetta annað þar ?

Þú s.s. færð að horfa á youtube ofl. í 1080p gæðum án þess að það bufferi og fari sem hraðast

Viltu s.s. frekar fara til Símans, þar sem þetta heldur áfram teljast sem erlent niðurhal (sem þetta er - bara verið að hraða þessu til þín hjá Vodafone) [b]en eiga möguleika á að geta ekki horft á youtube myndbönd í hinum ýmsum gæðum án þess að buffera.[/b]
Nú er ég bara með basic ADSL hjá símanum(12mbit) og ég get alltaf horft á youtube í 1080p án þess að buffera.

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Sent: Fös 24. Jan 2014 23:33
af kthordarson
Youtube HD straumur er á bilinu 2-5 Mbps

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Sent: Lau 25. Jan 2014 00:53
af MrSparklez
Djöfull er mikil skítalygt af þessu fyrirtæki, búið að vera að kvarta mikið í mér síðustu 1-2 mánuðina að ég sé að fara yfir þennann 50 gb pakka sem fjölskyldan er með, ég er eini sem nota netið af einhverri alvöru, aðallega Youtube, Facebook og Steam. Gott að vera loksins kominn með góða skýringu á þessu, er ekki annars bara málið að fara til Símans ?

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Sent: Lau 25. Jan 2014 02:18
af kjartanbj
Ef að síminn myndi nú bara bjóða upp á almennilegar tengingar, ég færi ekkert að láta frá mér ljósleiðara tengingu til að fara í ljósnet á helmingi minni hraða ásamt lélegra uploadi

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Sent: Lau 25. Jan 2014 11:01
af Daz
kjartanbj skrifaði:Ef að síminn myndi nú bara bjóða upp á almennilegar tengingar, ég færi ekkert að láta frá mér ljósleiðara tengingu til að fara í ljósnet á helmingi minni hraða ásamt lélegra uploadi
Þá ertu helmingi lengur að klára niðurhalskvótann þinn :)

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Sent: Sun 26. Jan 2014 11:14
af BaldurÖ
Góðann daginn aftur ég var að mæla hjá mér gagnamagnið í morgun og það var komið í 307mb en þegar ég geri reload eða mæli aftur þá minnkar það niður í 287 mb á ekki að koma sama talan aftur og aftur þegar maður mælir eða hvernig virkar þetta ???