Síða 4 af 6

Re: Bleiki demanturinn

Sent: Mið 21. Mar 2012 03:40
af Minuz1
rapport skrifaði:http://www.worldstarhiphop.com/videos/v ... 52a6p608Yd

Í hvaða tilfellum mundir þú mæla með því að fólk reykti Salvíu ( það er ekki ólöglegt svo ég viti til, er selt í 10-11 )

Má samfélagið bara ekki banna þetta helvíti og spara sér $$$ ?

EDIT:

"Corrilation does not imply causation"

Þetta er alveg satt, það þurfa ekki að vera tengsl á milli og orsakatengsl geta verið milli grunnbreyta þó að engin fylgni sé milli þeirra.

En fylgni þú ert bara búinn að vitna í fæðigrein um tölfræði.

Það eru tengsl milli vímuefnanotkunar og ofbeldisglæpa. Það er staðreynd sem þér mun ekki takast að hrekja.

Fók í vímu er líklegra til að fremja ofbeldisglæpi, hvort sem um er að ræða löglega eða ólöglega vímugjafa.

Dæmi: Ofbeldi á mannamótum, þá sérstaklega dansleikjum þar sem er áfengi og þar sem er ekki áfengi.

Áfengislausir dansleikir eru jafnframt ofbeldislausir, það eru dansleikir þar sem opinn bar er, ekki.

Víman losar um "bremsurnar" í fólki (ég er vonandi ekki að segja þér eitthvað nýtt)... og bremsulaust fólk er bara eins og ótamið dýr, oft alveg gjörsamlega hömlulaust.
Ekki tala um áfengi þegar þú ert að verja bönn á ólögleg eiturlyf.

Maður undir áhrifum af róandi "eitur"lyfjum er ólíklegri til þess að beita annan mann ofbeldi.

Re: Bleiki demanturinn

Sent: Mið 21. Mar 2012 10:41
af Leviathan
rapport skrifaði:http://www.worldstarhiphop.com/videos/v ... 52a6p608Yd

Í hvaða tilfellum mundir þú mæla með því að fólk reykti Salvíu ( það er ekki ólöglegt svo ég viti til, er selt í 10-11 )

Má samfélagið bara ekki banna þetta helvíti og spara sér $$$ ?
Salvía er bara ættkvísl. Salvia Sage er kryddið sem fæst í næstu matvörubúð og gefur engin áhrif ef það er reykt. Salvia Divinorum heitir plantan sem inniheldur Salvinorin A sem er sterkasta ofskynjunarefni sem þekkist. Það er ekki á lista yfir "ávana- og fíkniefni" en það er samt á einhverjum lista þannig að innflutningur á því er ólöglegur. Ég man ekki hvað það er kallað en þetta er í sama flokk og efedrín eða hvað það varðar.

Hvernig myndi samfélagið annars spara pening á að banna eitthvað sem er ekki að kosta það pening til að byrja með? Það kostar væntanlega eitthvað að koma lögum í gegn og framfylgja þeim. Ef það er hins vegar löglegt er hægt að leggja á það VSK, skapa atvinnu og spara fangelsispláss.

Re: Bleiki demanturinn

Sent: Mán 23. Apr 2012 05:37
af Sallarólegur
vesley skrifaði:Og án þess að reyna að vera leiðinlegur þá finnst mér þú VERÐA að hafa alltaf rétt fyrir þér og þú einfaldlega stoppar stundum aldrei, hafa nú komið nokkuð margir þræðir hérna sem þú hefur rifist á.
Þegar fólk hefur trú á því að það hafi rétt fyrir sér, og hugsjón fyrir því að deila sínum sjónarmiðum svo aðrir skilji, þá hættir fólk ekki. Þetta er í raun bara metnaður fyrir því að upplýsa fólk.

Ég er algerlega sammála. Með þessari stefnu sem nú er við líði fjölgar glæpum, neysla eykst hjá ógæfumönnum og skipulögð glæpastarfsemi eykst ár frá ári. Hvernig er HÆGT að vera sammála þessari stefnu? Jú, við erum heilaþvegin frá barnsaldri til þess að hugsa svona.

Afhverju fær einstaklingur ekki að taka upplýsta ákvörðun um hvort það vilji nota fíkniefnið alkóhól eða kannabis á sínum forsendum? Afhverju er logið að fólki að áfengið sé minna skaðlegt? Afhverju fækkar ekki glæpum og minnkar neyslan með banninu?

Afþví að bönn sem byggja á lygum virka ekki í nútímasamfélagi, meðal annars vegna internetsins.
Skoðið aðeins þessi efni í samhengi, t.d. er hér graf frá Lancet sem sýnir hversu skaðleg efnin eru fyrir einstaklingin, og svo fyrir samfélagið í kring.

Ég er alveg sammála því að það er hægt að fara út í rugl í þessum ólöglegu efnum, en staðreyndin er sú að það eru yfirleitt veikari einstaklingar sem leiðast út í þetta vegna slæmra aðstæðna, bæði sálrænt og líkamlegt. Við höfum fæst skýra mynd af því hvernig þessi efni hafa áhrif á sterka og stálpaða einstaklinga, því við eigum það til að horfa bara á dópistana og segja 'svona verð ég ef ég prófa e-pillu'.

Það er einfaldlega ekki satt. Fólki sem líður vel í sínum heimi getur notað ólöglegu efnin, t.d. kannabis, á þroskaðan og ábyrgan hátt, án þess að verða háð því eða að það hafi áhrif á þau í daglegu lífi, rétt eins og það er hægt að hafa stjórn á áfengi, þrátt fyrir það að það sé töluvert meira ávanabindandi, sérstaklega í því skemmtanarlífi sem við búum við.

Þá spyrja sumir sig "en afhverju þá ekki bara að sleppa því að nota þetta allt". Auðvitað er það leið fyrir suma, og ég ætla alls ekki að gagnrýna það sjónarmið. Hinsvegar, ef einstaklingur vill fá sér eina jónu fyrir bíó til að njóta myndarinnar betur eða eitthvað slíkt, finnst mér það ekki vera mitt eða stjórnvalda að banna honum það, ef það er hvorki skaðlegt fyrir hann né aðra. Þetta má segja um ýmislegt, en best finnst mér þó að taka dæmi með feitt fólk. Offita er stærsta heilbrigðisvandamál okkar tíma, svo ég má til með að spyrja, hvort haldið þið að það sé skárra að fá sér 10 Doritos snakkpoka eða einn bjór? En eina jónu? En MDMA?
Vísindalega svarið væri auðvitað að snakkið væri óhollast, en fæstir eru tilbúnir að viðurkenna það, því heilaþvotturinn í kringum þetta er það mikill.

Það er nákvæmlega sama sagan með áfengið og hin efnin, ef þér líður hörmulega í daglegu lífi, þá deyfa þessi efni þær tilfinningar, hvort sem það sé áfengi, kannabis, e-tafla eða heróín, og lífið fyrir einstakling sem er niðurbrotinn sækir í þessa ró. Það má hinsvegar ekki dæma allan hópinn útfrá þessum svörtu sauðum, og banna öll efnin til að búa til undirheimamarkað með lyf sem eru skárri en áfengið.


Minnkum fordóma og tökum upplýstar ákvarðanir.

Mynd

Re: Bleiki demanturinn

Sent: Fim 26. Apr 2012 20:20
af Leviathan
=D>

http://www.mbl.is/frettir/innlent/2012/ ... fsistefnu/" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Bleiki demanturinn

Sent: Fim 26. Apr 2012 22:48
af Olli
Minuz1 skrifaði: Ekki tala um áfengi þegar þú ert að verja bönn á ólögleg eiturlyf.

Maður undir áhrifum af róandi "eitur"lyfjum er ólíklegri til þess að beita annan mann ofbeldi.
Og hví má maðurinn ekki bera löglegan vímugjafa saman við ólöglegan?
Ekki banna manninum það án forsenda fyrir því.

Re: Bleiki demanturinn

Sent: Fös 27. Apr 2012 09:12
af Baldurmar
krissi24 skrifaði:Getur einhver sagt mér um pilluna bleika demantinn? Hvað þessi pilla heitir í raun og veru og hverskonar áhrif hún gefur, það væri gott að fá link-a líka :) Ég er ekki að fara að taka svona inn, langar bara vita aðeins um þessa pillu :)
Ertu ekki að tala um þessar ?

http://www.ecstasydata.org/view.php?id=2392" onclick="window.open(this.href);return false;

Athugaðu samt að það er ekkert mál að fake-a þessar töflur til að þær líti út fyrir að vera það sama og þetta.

Re: Bleiki demanturinn

Sent: Fös 27. Apr 2012 11:21
af Klemmi
Rvk Homegrown - Samtök baráttuhóps kannabisneytenda skrifaði:Samtökin verða án félagsgjalda en starfsemin fjármögnuð með sölu varnings ýmiskonar sem einnig nýtist málstað okkar til góðs.
I see what you did there

Mynd

Re: ---

Sent: Mið 09. Maí 2012 02:18
af gardar
hafa menn annars ekkert orðið varir við toothpasting á íslandi?


Mynd

Re: ---

Sent: Mið 09. Maí 2012 11:20
af coldcut
Mynd

Re: ---

Sent: Mið 09. Maí 2012 11:23
af tdog
Ég tannkremaði í gær, þetta er hellað! Þetta svínvirkar.

Re: ---

Sent: Mið 09. Maí 2012 11:26
af chaplin
tdog skrifaði:Ég tannkremaði í gær, þetta er hellað! Þetta svínvirkar.
x2! Kom mér ótrúlega á óvart!

Re: ---

Sent: Mið 09. Maí 2012 12:12
af dandri
Þið hafið ekki prufað neitt þar til þið hafið prufað að jenka!

Re: ---

Sent: Mið 09. Maí 2012 14:26
af Olli
dandri skrifaði:Þið hafið ekki prufað neitt þar til þið hafið prufað að jenka!
\:D/

Re: Bleiki demanturinn

Sent: Mið 09. Maí 2012 14:29
af GuðjónR
Strákar tannkrem á gerivörturnar? hahahaha really :D

Annars varðandi þetta Jenkem:

How Jenkem is made:
getting a bottle pissing /and /or shitting in it and tapeing a baloon to the top and letting your piss and terd ferment for a few days,weeks even and then removing the baloon and inhaling the gas to get a awsome high.
The young african addicts could not afford drugs so they invented jenkem.

http://www.urbandictionary.com/define.php?term=jenkem" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Bleiki demanturinn

Sent: Mið 09. Maí 2012 14:29
af gRIMwORLD
Mynd

Re: Bleiki demanturinn

Sent: Mið 09. Maí 2012 14:53
af AciD_RaiN
Ef þið eruð að leita ykkur að einhverju almennilegu kicki þá fariði bara til hollands eða eitthvað og finnið ykkur gott China White... Ekki eitthvað tannkremsrugl ;)

Re: ---

Sent: Mið 09. Maí 2012 15:34
af Leviathan
chaplin skrifaði:
tdog skrifaði:Ég tannkremaði í gær, þetta er hellað! Þetta svínvirkar.
x2! Kom mér ótrúlega á óvart!
Hvað gerist, nákvæmlega? Hvað er það í tannkremi sem gerir þig high? :wtf

Re: ---

Sent: Mið 09. Maí 2012 15:41
af GullMoli
Leviathan skrifaði:
chaplin skrifaði:
tdog skrifaði:Ég tannkremaði í gær, þetta er hellað! Þetta svínvirkar.
x2! Kom mér ótrúlega á óvart!
Hvað gerist, nákvæmlega? Hvað er það í tannkremi sem gerir þig high? :wtf
Mynd

http://knowyourmeme.com/memes/toothpasting" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: ---

Sent: Mið 09. Maí 2012 16:21
af tdog
Leviathan skrifaði:
chaplin skrifaði:
tdog skrifaði:Ég tannkremaði í gær, þetta er hellað! Þetta svínvirkar.
x2! Kom mér ótrúlega á óvart!
Hvað gerist, nákvæmlega? Hvað er það í tannkremi sem gerir þig high? :wtf
Taugaendarnir í geirvörtunum örvast þegar þeir komast í snertingu við hvíttunarefnin í tannkreminu. Prófaðu bara.

Re: ---

Sent: Mið 09. Maí 2012 16:28
af Leviathan
tdog skrifaði:
Leviathan skrifaði:
chaplin skrifaði:
tdog skrifaði:Ég tannkremaði í gær, þetta er hellað! Þetta svínvirkar.
x2! Kom mér ótrúlega á óvart!
Hvað gerist, nákvæmlega? Hvað er það í tannkremi sem gerir þig high? :wtf
Taugaendarnir í geirvörtunum örvast þegar þeir komast í snertingu við hvíttunarefnin í tannkreminu. Prófaðu bara.
Hehe, ég held ekki. Forvitnilegt dæmi, er ennþá ekki viss hvort ég eigi að trúa þessu. :svekktur

Re: ---

Sent: Mið 09. Maí 2012 16:32
af AciD_RaiN
Leviathan skrifaði:
tdog skrifaði:
Leviathan skrifaði:
chaplin skrifaði:
tdog skrifaði:Ég tannkremaði í gær, þetta er hellað! Þetta svínvirkar.
x2! Kom mér ótrúlega á óvart!
Hvað gerist, nákvæmlega? Hvað er það í tannkremi sem gerir þig high? :wtf
Taugaendarnir í geirvörtunum örvast þegar þeir komast í snertingu við hvíttunarefnin í tannkreminu. Prófaðu bara.
Hehe, ég held ekki. Forvitnilegt dæmi, er ennþá ekki viss hvort ég eigi að trúa þessu. :svekktur
Ég á bágt með að kaupa þetta. Hljómar svipað og að setja munntóbak undir forhúðina :lol:

Re: Bleiki demanturinn

Sent: Mið 09. Maí 2012 17:08
af Joi_BASSi!
svona er samfélagið í dag. fíkniefni eiga að vera cool en mér dettur fátt minna cool er að hafa tannkrem á geirvörtunum eða tóbak í vörinni.

Re: ---

Sent: Mið 09. Maí 2012 19:25
af GuðjónR
AciD_RaiN skrifaði: Hljómar svipað og að setja munntóbak undir forhúðina :lol:
Ekki segja mér að þú hafir prófað það :face

Re: ---

Sent: Mið 09. Maí 2012 19:25
af tdog
AciD_RaiN skrifaði: Ég á bágt með að kaupa þetta. Hljómar svipað og að setja munntóbak undir forhúðina :lol:
Ótrúlegt en satt þá virkar það bara þrusu vel, geri það oft ef ég má ekki vera með í vörinni í tímum.

Re: Bleiki demanturinn

Sent: Fim 10. Maí 2012 08:17
af vesley
tóbak undir forhúðina ?
ætli eitthver prufi ekki bara tannkremið þar líka; )

tdog vilt þú ekki prufa það líka ?