Síða 4 af 5
Re: Skoðanakönnun um reglu númer 16.
Sent: Sun 01. Maí 2011 23:30
af coldcut
Gúrú skrifaði:Ég er ekki stoltur af fallega tungumálinu mínu, ég óska þess að ég hefði fæðst á Íslandi sem talar frönsku, spænsku eða þýsku, en það er bara ég.
LANDRÁÐAMAÐUR!

Re: Skoðanakönnun um reglu númer 16.
Sent: Mán 02. Maí 2011 00:17
af kubbur
Jim skrifaði:Afnám þessarar reglu yrði skref aftur á bak. Því miður er íslenskan að þynnast út og almenn íslenskukunnátta hefur aldrei verið verri en í dag. Þetta er íslenskt spjallborð, á Íslandi tölum við íslensku. Þeir fáu útlendingar sem að flykkjast hingað til lands ættu að gera sitt allra besta til að læra tungumálið og kynnast menningunni, annars geta þeir alveg eins verið heima hjá sér... eða á barnalandi.
þetta kallast eðlileg þróun
Re: Skoðanakönnun um reglu númer 16.
Sent: Mán 02. Maí 2011 00:18
af Zpand3x
Skárra að einhverjir nokkrir þræðir séu á ensku en að þurfa að lesa þessa bjöguðu google translate íslensku. Hún stingur í augun og ég fæ höfuðverk á því að lesa hana.
burt með regluna
Re: Skoðanakönnun um reglu númer 16.
Sent: Mán 02. Maí 2011 00:35
af steinarorri
Ég segi burt með regluna til að auðvelda þeim sem vilja taka þátt í umræðum á Vaktinni það en ég legg til að í staðinn verði sett regla sem segir: "Efni og innlegg skulu vera aðgengileg sem flestum notendum. Sé þessari reglu ekki hlýtt kann innlegginu að vera eytt." Ástæðan fyrir þeirri reglu væri til að koma í veg fyrir að þræðir væru á tungumálum sem hinn almenni Vaktari skilur ekki t.d. pólsku o.fl.
Mín tvö sent

Re: Skoðanakönnun um reglu númer 16.
Sent: Mán 02. Maí 2011 02:41
af rapport
Mín skoðun er s.s. sú að fyrst kemur stjórnarskráin, svo landslög, svo reglugerðir og svo reglur vaktarinnar...
Þar sem stjórnarskráin leyfir ekki svona mismunun þá getur Vaktin ekki gert það heldur.
En ef einhver færi að skrifa hingað inn á ensku "all day long" þá verð ég að játa að það er minna aðlaðandi en pjúra íslensk Vakt.
En er ekki betra að taka bara á þessu EF þetta verður vandamál?
Á annars að fara banna ALLT sem hugsanlega mögulega gæti gerts og okkur finnst pirrandi?
Re: Skoðanakönnun um reglu númer 16.
Sent: Mán 02. Maí 2011 04:14
af Danni V8
Persónulega finnst mér ekkert að því að leyfa útlendingum sem búa hérna og kunna ekki íslensku að auglýsa hlutina sína til sölu og reyna að fá leyst úr vandamálum/fyrispurnum sínum er varða tölvur ef þess þarf, en þá bara á ensku eða eins mikill íslensku og þeir kunna.
En ég vil ekki sjá önnur tungumál töluð í almennu spjalli hérna, eins og þráðum í Koníakstofunni eða umræðu um nýtt skjákort. Ef ég vildi það gæti ég alveg eins farið á erlendar spjallsíður og tekið þátt í umræðunni þar.
Re: Skoðanakönnun um reglu númer 16.
Sent: Mán 02. Maí 2011 11:55
af einarhr
Hér er nýr notandi sem skrifar á ensku og svo sem ekkert mikið athugavert við auglýsinguna nema að hún brýtur nokkrar reglur spjallborðsins og þá er ég ekki að tala um reglu 16.
Ef þessi regla verður afnumin verður þá ekki að setja allar reglur upp á Ensku?
Re: Skoðanakönnun um reglu númer 16.
Sent: Mán 02. Maí 2011 11:59
af Benzmann
vill því miður ekki gefa upp mína skoðun á þessu máli, vegna hræðslu við því að verða permabanned...
so i aint touching this one...
Re: Skoðanakönnun um reglu númer 16.
Sent: Mán 02. Maí 2011 12:39
af Moldvarpan
Ég hélt að þetta væri aðallega nörda síða. Mér finnst það í lagi ef það er verið eingöngu að tala um ensku í söludálknum, ef það er löggð smá vinna í auglýsinguna í ljósi þess að nöfn og upplýsingar á vélbúnaði er yfirleitt beint úr enskunni.
Eigum við ekki að útbúa til bækling og dreifa honum í Leifstöðinni svo það sé ekki verið að mismuna neinum? *Kaldhæðni*
Re: Skoðanakönnun um reglu númer 16.
Sent: Mán 02. Maí 2011 12:43
af GuðjónR
Þegar ég sá notendanafnið og titilinn á þessu innleggi, sem btw. er brot á 7.gr. sölureglna þá hélt ég að um spam væri að ræða.
http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=11&t=38275" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Skoðanakönnun um reglu númer 16.
Sent: Þri 03. Maí 2011 23:05
af zdndz
gaman að þessu

Re: Skoðanakönnun um reglu númer 16.
Sent: Þri 03. Maí 2011 23:18
af SIKk
Ég samþykki þessa reglu, útlendingarni frá sama hvaða landi þeir koma eiga sín eigin tölvuforum þannig það þarf ekkert að fylla þetta forum með útlendingum...

Re: Skoðanakönnun um reglu númer 16.
Sent: Þri 03. Maí 2011 23:48
af coldcut
Jæja orðinn síðasti séns að kjósa!
Það er mjótt á munum þannig að greiðið ykkar atkvæði áður en könnuninni verður lokað á morgun

Re: Skoðanakönnun um reglu númer 16.
Sent: Mið 04. Maí 2011 03:13
af Legolas
Sammála að sjálfsögðu >>> Það eru til nóg af spjallsíðum á netinu á ensku <<<
KristinnK skrifaði:Ég er hlynntur þessari reglu. Þetta er íslensk síða, og ég vil að hún sé á íslensku. Það eru til nóg af spjallsíðum á netinu á ensku fyrir þá sem sækjast eftir því.
Re: Skoðanakönnun um reglu númer 16.
Sent: Mið 04. Maí 2011 03:32
af skarih
Ég er ósammála, það er ekki til nóg af spjallsíðum á netiunu á Íslandi sem er með intelectual umræðu eins og hér svo ég sletti smá.
Ég sé ekkert að því að fólk sem hefur eitthvað til málana að leggja og jafnvel að selja tölvubúnað eða kaupa tali ensku, það þarf ekkert að setja samasem merki á milli þess að vera útlendingur á Íslandi og að vera einhver Trolli..
og eiginlega finst mér þessi regla fordómafull, ég sé eiginlega ekki allveg tilgangin þar sem að örugglega allir hérna hangi á erlendum spjallborðum og kunna flest allir ensku ( það er mun auðveldara fyrir okkur að skilja enskuna en þau að skilja og tjá sig á Íslensku) þá sérstaklega ef fólk er hérna í stuttan tíma vegna náms eða vinnu. Það er allveg hægt að þýða þessar reglur yfir á ensku og ég jafnvel býð mig framm í að gera það, þú getur allveg ætlast til að fólk fari að reglunum hvort að það séu útlendingar eða Íslendingar.
Ég held að það sé fyrra að það eigi allt eftir að "fyllast" af útlenskum póstum hérna inni og eignlega segir margt um þann sem heldur því fram.
Það er kannski í lagi að taka það fram í reglum að það sé ætlast til þess að fólk tali Íslensku hér ef það getur svona til viðmiðunar, en það þarf ekki að vera vera. En ef að fólk fer eftir örðum reglum þá ætti ekki að stöðva það að tjá sig á ensku.
Er btw í hláturskrampa að reyna að skrifa þennan há-alvarlega póst, afþví að læknirinn í Voyager er hrkalega fyndinn gaur..
Re: Skoðanakönnun um reglu númer 16.
Sent: Mið 04. Maí 2011 09:02
af FriðrikH
Sammála síðasta ræðumanni, viljum við t.d. útiloka skiptinema í háskólanum frá þessu spjalli? Þeir eru oftar en ekki í námi hér á ensku.
Þessi hræðsla við að allt fyllist hér af enskum þráðum ef ekki verða settar upp reglur um þetta minna mig svolítið á aðdragandann að EES samningnum þegar viss hluti þjóðarinnar hafði miklar áhuggjur af því að ef Ísland gengi í EES þá mundi landið fyllast af Portúgölum sem mundu streyma til þessarar paradísar í norðurhöfum....... Ég varð aldrei var við þá í miklu magni.
Re: Skoðanakönnun um reglu númer 16.
Sent: Mið 04. Maí 2011 09:36
af topas
Ef þessi regla stendur er þá bannað að segja "browser" eða er það undantekning sem stjórnendur ákveða?
Það er til Islenskt orð fyrir browser, á þá ekki að nota það?
Má nota BSOD? Má nota PSU?
Verður enska bönnuð eða munu stjórnendur ákveða hvaða orð er í lagi að nota og taka ákvörðun jafnóðum og þræðir berast??? Mun skap stjórnenda hafa eitthvað að segja og jafnvel hver segir það?
Væri þessi þráður bannaður vegna þess að ég hefði átt að segja "má nota enska orðið yfir vafra"?
Af hverju er þráðum ekki læst þegar psu er notað? Er ekki alveg hægt að skrifa aflgjafi?
Toppar það ekki samt allt að vera að tala um reglu sem bannar ensku og segjast hafa "moddað" regluna???
Re: Skoðanakönnun um reglu númer 16.
Sent: Mið 04. Maí 2011 09:41
af Halli13
topas skrifaði:Ef þessi regla stendur er þá bannað að segja "browser" eða er það undantekning sem stjórnendur ákveða?

Geturu ekki snúið aðeins meira útúr?
Er verið að tala um að allur posturinn er á ensku ekki eitt og eitt orð.
Re: Skoðanakönnun um reglu númer 16.
Sent: Mið 04. Maí 2011 09:44
af topas
Halli13 skrifaði:topas skrifaði:Ef þessi regla stendur er þá bannað að segja "browser" eða er það undantekning sem stjórnendur ákveða?
Það er til Islenskt orð fyrir browser, á þá ekki að nota það?
Má nota BSOD? Má nota PSU?
Verður enska bönnuð eða munu stjórnendur ákveða hvaða orð er í lagi að nota og taka ákvörðun jafnóðum og þræðir berast??? Mun skap stjórnenda hafa eitthvað að segja og jafnvel hver segir það?
Væri þessi þráður bannaður vegna þess að ég hefði átt að segja "má nota enska orðið yfir vafra"?
Af hverju er þráðum ekki læst þegar psu er notað? Er ekki alveg hægt að skrifa aflgjafi?
Toppar það ekki samt allt að vera að tala um reglu sem bannar ensku og segjast hafa "moddað" regluna???
Geturu ekki snúið aðeins meira útúr?
Er verið að tala um að allur posturinn er á ensku ekki eitt og eitt orð.
Það er nákvæmlega það sem ég er að spurja um, má nota ensk orð? Verða þau orð fyrirfram ákveðin eða tekin ákvörðun jafnóðum og þræðir berast? Má vera heil setning á ensku inní íslenskum þræði eða bara eitt orð í hverri setningu?
Hvar verða mörkin?
Re: Skoðanakönnun um reglu númer 16.
Sent: Mið 04. Maí 2011 09:45
af beggi90
topas skrifaði:Ef þessi regla stendur er þá bannað að segja "browser" eða er það undantekning sem stjórnendur ákveða?
Það er til Islenskt orð fyrir browser, á þá ekki að nota það?
Má nota BSOD? Má nota PSU?
Verður enska bönnuð eða munu stjórnendur ákveða hvaða orð er í lagi að nota og taka ákvörðun jafnóðum og þræðir berast??? Mun skap stjórnenda hafa eitthvað að segja og jafnvel hver segir það?
Væri þessi þráður bannaður vegna þess að ég hefði átt að segja "má nota enska orðið yfir vafra"?
Af hverju er þráðum ekki læst þegar psu er notað? Er ekki alveg hægt að skrifa aflgjafi?
Toppar það ekki samt allt að vera að tala um reglu sem bannar ensku og segjast hafa "moddað" regluna???
Óþarfi að missa sig í ýkjum og vitleysu.
Held þú gerir þér fulla grein fyrir því að hér muni styttingar yfir tölvuhluti og einstaka ensk orð aldrei verða bönnuð.
Ég skildi þetta sem heilu þræðina á ensku, sem kannski er óþarfi að banna mín skoðun hefur komið fyrr í þræðinum og ég nenni ekki að tala í hringi.
Re: Skoðanakönnun um reglu númer 16.
Sent: Mið 04. Maí 2011 09:48
af topas
beggi90 skrifaði:topas skrifaði:Ef þessi regla stendur er þá bannað að segja "browser" eða er það undantekning sem stjórnendur ákveða?
Það er til Islenskt orð fyrir browser, á þá ekki að nota það?
Má nota BSOD? Má nota PSU?
Verður enska bönnuð eða munu stjórnendur ákveða hvaða orð er í lagi að nota og taka ákvörðun jafnóðum og þræðir berast??? Mun skap stjórnenda hafa eitthvað að segja og jafnvel hver segir það?
Væri þessi þráður bannaður vegna þess að ég hefði átt að segja "má nota enska orðið yfir vafra"?
Af hverju er þráðum ekki læst þegar psu er notað? Er ekki alveg hægt að skrifa aflgjafi?
Toppar það ekki samt allt að vera að tala um reglu sem bannar ensku og segjast hafa "moddað" regluna???
Óþarfi að missa sig í ýkjum og vitleysu.
Held þú gerir þér fulla grein fyrir því að hér muni styttingar yfir tölvuhluti og einstaka ensk orð aldrei verða bönnuð.
Ég skildi þetta sem heilu þræðina á ensku, sem kannski er óþarfi að banna mín skoðun hefur komið fyrr í þræðinum og ég nenni ekki að tala í hringi.
Miðað við hversu hrikalega vel er farið eftir reglunum hér þá held ég þessir hlutir ættu að vera á hreinu til að forðast miskilning og að notandi telji eitthvað í lagi sem stjórnandi telur bannað.
Viðbót:
Núna er td. þráður á forsíðunni með fyrirsögninni "Móðurborð, CPU, GPU, RAM, HDD". 5 orð, 1 af þeim íslenskt. Mér þykir þetta í góðu lagi en myndi þetta falla undir reglubrot?
Ég er ekkert að ýkja, þetta er bara svona, og mér finnst að þetta eigi að vera á hreinu, ekki vera spurning um dagsform stjórnenda.
Re: Skoðanakönnun um reglu númer 16.
Sent: Mið 04. Maí 2011 10:13
af FriðrikH
Mér finnst þetta einmitt góð spurning frá topas. Ein af rökunum fyrir því að hafa þessa reglu var sú að það ef það væri byrjað að tala ensku á spjallborðum eins og þessu þá væri það "slippery slope" sem hefði neikvæð áhrif á tungumálið okkar sem mundi þá "skemmast". Slettur hafa miklu meiri áhrif á íslenskuna heldur en einhver sem talar bara alveg annað tungumál. Slettur og tökuorð eru einmitt það sem eru að "skemma" tungumálið okkar, ekki fólk sem talar erlend mál.
Ef að tilgangurinn með þessari reglu er að vernda íslenska tungu þá er mun nærtækara að taka fast á slettum í stað þess að banna bara þá sem senda inn þræði sem eru 100% útlenskir.
Re: Skoðanakönnun um reglu númer 16.
Sent: Mið 04. Maí 2011 10:17
af dori
FriðrikH skrifaði:Mér finnst þetta einmitt góð spurning frá topas. Ein af rökunum fyrir því að hafa þessa reglu var sú að það ef það væri byrjað að tala ensku á spjallborðum eins og þessu þá væri það "slippery slope" sem hefði neikvæð áhrif á tungumálið okkar sem mundi þá "skemmast". Slettur hafa miklu meiri áhrif á íslenskuna heldur en einhver sem talar bara alveg annað tungumál. Slettur og tökuorð eru einmitt það sem eru að "skemma" tungumálið okkar, ekki fólk sem talar erlend mál.
Ef að tilgangurinn með þessari reglu er að vernda íslenska tungu þá er mun nærtækara að taka fast á slettum í stað þess að banna bara þá sem senda inn þræði sem eru 100% útlenskir.
Þið eruð merkilega vitlausir. Vissuð þið það?
Re: Skoðanakönnun um reglu númer 16.
Sent: Mið 04. Maí 2011 10:22
af topas
dori skrifaði:FriðrikH skrifaði:Mér finnst þetta einmitt góð spurning frá topas. Ein af rökunum fyrir því að hafa þessa reglu var sú að það ef það væri byrjað að tala ensku á spjallborðum eins og þessu þá væri það "slippery slope" sem hefði neikvæð áhrif á tungumálið okkar sem mundi þá "skemmast". Slettur hafa miklu meiri áhrif á íslenskuna heldur en einhver sem talar bara alveg annað tungumál. Slettur og tökuorð eru einmitt það sem eru að "skemma" tungumálið okkar, ekki fólk sem talar erlend mál.
Ef að tilgangurinn með þessari reglu er að vernda íslenska tungu þá er mun nærtækara að taka fast á slettum í stað þess að banna bara þá sem senda inn þræði sem eru 100% útlenskir.
Þið eruð merkilega vitlausir. Vissuð þið það?
Jamm, við vissum það
En getur þú svarað spurningunni hvort þráðurinn með fyrirsögninni "Móðurborð, CPU, GPU, RAM, HDD" væri reglubrot eður ei?
Re: Skoðanakönnun um reglu númer 16.
Sent: Mið 04. Maí 2011 10:37
af Kristján
Móðurborð, CPU, GPU, RAM, HDD...
ööö þetta er eitt íslenskt orð og 4 skammstafanir....
Central processing unit
Graphics processing unit
Random-access memory
Hard disk drive
þetta eru ensk orð.
en já þessu regla er fáranleg og gott svar hjá topas, hvar verða mörkin?