Síða 4 af 7

Re: Er Síminn byrjaður að kappa torrent eina ferðina enn!?

Sent: Sun 13. Feb 2011 22:52
af tdog
GuðjónR skrifaði: Nei auðvitað meikar hún ekki sense...frekar en hin skilgreiningin. Þeir seldu mér þetta svona, sé einhver að brjóta eitthvað þá eru það þeir að brjóta einin reglur. Það var engum hótað.
Hættu nú að snúa útúr.

Þeir segja allt að, er það svo erfitt að skilja? Þú getur þá bara fundið fjarskiptafyrirtæki sem tryggir þér alltaf þann hraða sem þú villt, gangi þér vel.

Hvað ertu að tala um hótanir?

Re: Er Síminn byrjaður að kappa torrent eina ferðina enn!?

Sent: Sun 13. Feb 2011 23:03
af Daz
Þeir gætu selt okkur tengingar sem væru ALLTAF 16 mb, en þá væri verðið ÞÓ nokkuð mikið hærra. Þá þyrfti vélbúnaðurinn, lagnirnar og utanlandsgáttin að styðja 16mb traffík frá öllum kúnnum 24/7. Sem er bara ekki gerlegt ef þeir vilja bjóða verð sem við viljum borga.

edit: lagningar?

Re: Er Síminn byrjaður að kappa torrent eina ferðina enn!?

Sent: Sun 13. Feb 2011 23:08
af einarhr
Var aðeins að prófa hraðan til Reykjavíkur og Keflavíkur frá Halmstad Svíþjóð (ca 180 km frá Köben).
RVK
Mynd
KEF
Mynd

er svona ömurlegt samband á milli RVK og KEF?

Re: Er Síminn byrjaður að kappa torrent eina ferðina enn!?

Sent: Sun 13. Feb 2011 23:14
af dori
Þeir segja reyndar allt að af því að símalínur höndla ekki alltaf alla bandvíddina sem þeirra kerfi bjóða uppá (fjarlægð frá símstöð etc.). Að beita því "ákvæði" til að réttlæta svona mikla takmörkun á tengingu til útlanda er fyrir neðan belti að mínu mati.

Reyndar er þessi einstaklingsþjónsta eins langt frá því að hafa SLA og þú getur ímyndað þér. Að lesa yfir þetta... 7 dagar án nettengingar samfellt til þess að fá hluta af áskriftargjaldinu felld niður þann mánuðinn :-k

Re: Er Síminn byrjaður að kappa torrent eina ferðina enn!?

Sent: Sun 13. Feb 2011 23:43
af GuðjónR
tdog vinnurðu hjá símanum? eða ertu bara plain stupid?
Þarf ég að mata þig með teskeið á rökunum til þess að þú skiljir?

Re: Er Síminn byrjaður að kappa torrent eina ferðina enn!?

Sent: Sun 13. Feb 2011 23:45
af gardar
GuðjónR skrifaði:tdog vinnurðu hjá símanum? eða ertu bara plain stupid?
Þarf ég að mata þig með teskeið á rökunum til þess að þú skiljir?

Dear god.
Geturðu ekki skilið að síminn(eða hver sem er) gæti aldrei staðið við orðin "guaranteed hraði 16mbit"

Meira að segja depill getur ekki lofað því, þótt hann myndi gjarnan vilja

Re: Er Síminn byrjaður að kappa torrent eina ferðina enn!?

Sent: Sun 13. Feb 2011 23:47
af Arkidas
GuðjónR skrifaði:Well...þegar ég var að dl í gær með hraðanum 200Kbs, þá var varla hægt að horfa á sjónvarpið (adsl-tv) það pixlaðist svo.
Stundum gerist það þegar net-tengingin er að blasta í kringum 1,4Mbs - 1,6Mbs að sjónvarpið pixlsast, en á 0,2Mbs kommon, það er bara fáránlegt.
Álag á netinu á ekki að bitna á mér, þeir selja mér þessa bandvídd og ég vil fá það sem ég er að borga fyrir.
8360 fyrir adsl og 3000 fyrir símalínuna = 11k fyrir þetta crap net?
Ætti að vera með 1Gb ljós fyrir þennan pening.

Já og 5660 fyrir TV sem er ónothæft út af kappi?
Vá hvað tengingin þín er dýr. Hve hröð er hún?

EDIT: Hve hröð á hún að vera?

Re: Er Síminn byrjaður að kappa torrent eina ferðina enn!?

Sent: Sun 13. Feb 2011 23:49
af GuðjónR
16Mbs. en hún mælis 1/10 af því eða í kringum 160Kbs
Þessum snillingum hér að ofan finnst það bara eðlileg frávik.
Feginn að hafa ekki þegið hýsingu hjá þér Garðar, ef þetta er þankagangurinn.

Re: Er Síminn byrjaður að kappa torrent eina ferðina enn!?

Sent: Sun 13. Feb 2011 23:57
af gardar
GuðjónR skrifaði:16Mbs. en hún mælis 1/10 af því eða í kringum 160Kbs
Þessum snillingum hér að ofan finnst það bara eðlileg frávik.
Feginn að hafa ekki þegið hýsingu hjá þér Garðar, ef þetta er þankagangurinn.
Þú ert að misskilja Guðjón minn, auðvitað vil ég að allir fái blússandi hraðar nettengingar... Heldurðu að ég hafi ekki pirrast út í það sjálfur bæði í vinnunni og heima að fá ekki alltaf fullan hraða á öllu?
Ég er einfaldlega að tala um tæknilegar staðreyndir, sem verður því miður ekki komist hjá...

Ég hef engra hagsmuna að gæta í þessu máli, enda ekki tengdur símanum á nokkurn hátt... Nema sem viðskiptavinur.

Re: Er Síminn byrjaður að kappa torrent eina ferðina enn!?

Sent: Mán 14. Feb 2011 00:00
af GuðjónR
En fyrr má nú rota en dauðrota
Allaveganna þá er þetta síðustu klukkutímarnir mínir hérna hjá Símanum.
Eftir það er ég farinn með allt frá þeim.
Get ekki sagt að það sé eftirsjá.

Man hvernig þetta var þegar þeir byrjuðu að cappa á fullu, síðan voru settar 7 daga regur, og síðan 30 daga sem voru ennþá fáránlegri.
Loksins ákvaðiu þeir að leyfa fólki að fá það sem fólk var að borga fyrir. Núna er hinsvegar einhverjir bakþankar komnir í þá og ég bara nenni ekki að standa í þessu.
Hringdu.is ....yeahhh i'm on my way.

Re: Er Síminn byrjaður að kappa torrent eina ferðina enn!?

Sent: Mán 14. Feb 2011 00:03
af gardar
Það er bara vonandi að vandamálið hafi þá legið í cappi hjá símanum... En ekki slæmri tengingu út á kjalarnes eða innanhúslögnum eða öðru slíku. :)

Re: Er Síminn byrjaður að kappa torrent eina ferðina enn!?

Sent: Mán 14. Feb 2011 00:09
af einarhr
Verður ekki bara mótmæla og fá þessum loðnu skilmálum breytt?

Er kúnni hjá Telia í Svíþjóð og auglýsir Telia sínar tengingar á eftirfarandi hátt.

ADSL

1,5-2 Mb,Verð 339 sek
6-8 Mb,Verð 389 sek
12-24 Mb,Verð 439 sek

Ljósleiðari
8-10 Mb DL og UL,Verð 339 sek
50/100 Mb DL og 8/10 UL,Verð 379 sek
50/100 Mb DL og 50/100 UL,Verð 499 sek
1000 mb væntanlegt á þessu ári fyrir 999 sek sem gera um 16 þús ískr sem er nokkuð nett.

Þetta (allt að) kjaftæði er mjög víðsýnt, skil vel að það fái enginn 100% ADSL tengingu en að GujðónR fái ítrekað undir 50% af sinni bandbreid er ekki ásættanlegt.

Re: Er Síminn byrjaður að kappa torrent eina ferðina enn!?

Sent: Mán 14. Feb 2011 00:34
af Unnar
Hmm,

er með sama vandamál, er með 16mb hjá símanum.


Youtube er einnig oft alveg út úr kortinu en kikkar svo allt í einu inn.

Og það koma oft tímar þegar browserinn minn er ekki að loada neinum síðum.

Gerst meira upp á síðkastið, youtube og browserinn er oft undantekning, en torrent er regla.

Er núna að dl með nokkur hundruð peers, ekkert ul & er að dl á 150kbs... áðan var það 11kbs, hoppaði þaðan upp í 400kbs er núna búið að vera steady í 150.

Þetta er fáránlegt og mér finnst soldið eins og það sé verið að taka mig í bossann...

Og það er rétt sem einn segir hérna, það þýðir núll að hringja í þjónustuverið hjá þeim, þeir tékka á öllu fyrir mann og hjá þeim lítur allt eðlilega út, alltaf, allt 100% eins og það á að vera.

Er núna, eftir að hafa lesið þessa umræðu hér, að bíða einfaldlega eftir því að klukkan verður eitt, til þess eins að sjá hvernig hraðinn verður þá á torrentinu :)

Re: Er Síminn byrjaður að kappa torrent eina ferðina enn!?

Sent: Mán 14. Feb 2011 00:36
af Moldvarpan
Ef að þetta væri meira rokkandi upp og niður í hraða, þá myndi ég kaupa að þetta væri álag á gáttinni.
En þegar þetta er svo gott sem stable 200 kbs, þá er verið að cappa mann. Er síminn ekki bara búinn að minnka fjármagnið sem fer í gáttina? og þar af leiðandi þarf hann að cappa þegar mesta traffíkin er.

Ég er með
* Hraði allt að 16 Mb/s
* Gagnamagn 120 GB
* Hentar stórnotendum eða fjölskyldum með margar tölvur og mikla notkun, t.d. vafra um netið, Youtube, streymi, spilun leikja og niðurhal.
* Mánaðarverð: 7.690 kr.
Þetta er hátt verð sem þeir rukka fyrir cappaða 16mb tengingu á kvöldin finnst mér. Mér fannst í lagi að borga þetta fyrir tengingu sem var aldrei cöppuð,, en það er bara ekki lengur svoleiðis. Það hefur breyst á síðustu mánuðum en verðið jafn hátt.

Re: Er Síminn byrjaður að kappa torrent eina ferðina enn!?

Sent: Mán 14. Feb 2011 00:44
af tdog
GuðjónR skrifaði:tdog vinnurðu hjá símanum? eða ertu bara plain stupid?
Þarf ég að mata þig með teskeið á rökunum til þess að þú skiljir?
Nei ég vinn ekki hjá Símanum, en ég hef unnið hjá verktaka fyrir Mílu, Símann og Skipti.

Þarf ég að mata þig á því að þú gerir samning við Símann um allt að 16Mb á sekúndu? Síminn má þá þessvegna alveg cappa þig í 200Kbit, vegna þess að það er jú, undir 16Mb og þessvegna undir skilgreiningunni allt að.

Hefur þú ekki spáð í hvers vegna þetta cap er mögulega á? Nú til þess að við hin, sem torrentum ekki endilega getum fengið okkar innanlandsbandvídd, án þess að einhverjir hákar éti hana upp á torrent. Hvernig fyndist þér nú, ef að þú fengir bara alls enga bandbreidd vegna þess að nágrannar þínir á Kjalarnesinu væru bara alltaf sí downloadandi, fullnýtandi sinn 16Mb kvóta? Það segir sig sjálft að það geta ekki allir fengið 16Mb, alltaf.

Annars ættir þú að snú þér að einhverju öðru en mannlegum samskiptum, getir þú ekki sagt neitt málefnalegra en að fólk sé heimskt.

Re: Er Síminn byrjaður að kappa torrent eina ferðina enn!?

Sent: Mán 14. Feb 2011 00:44
af Unnar
Moldvarpan skrifaði: Þetta er hátt verð sem þeir rukka fyrir cappaða 16mb tengingu á kvöldin finnst mér. Mér fannst í lagi að borga þetta fyrir tengingu sem var aldrei cöppuð,, en það er bara ekki lengur svoleiðis. Það hefur breyst á síðustu mánuðum en verðið jafn hátt.
Reyndar, voru þeir að hækka verðið núna um síðustu mánaðarmót held ég alveg örruglega .... =D>

Re: Er Síminn byrjaður að kappa torrent eina ferðina enn!?

Sent: Mán 14. Feb 2011 01:33
af dodzy
einarhr skrifaði:Var aðeins að prófa hraðan til Reykjavíkur og Keflavíkur frá Halmstad Svíþjóð (ca 180 km frá Köben).
RVK

KEF


er svona ömurlegt samband á milli RVK og KEF?
þetta hefur líklegast eitthvað með routing að gera, ekki samband milli KEF og RVK.

Re: Er Síminn byrjaður að kappa torrent eina ferðina enn!?

Sent: Mán 14. Feb 2011 01:40
af appel
Það er ljósleiðarahringur í kringum landið, sem NATÓ lagði, og hann er takmarkaður. Held að það séu 5 "þræðir" í honum, 3 fyrir radarstöðvarnar og hinir 2 fyrir domestic notkun. Það gefur augaleið að bandvíddarlega séð er þetta alltof lítið, fjarskiptafyrirtækin berjast um bandvídd á þessum hring.

Sennilega er kominn tími til að leggja nýjan ljósleiðara kringum landið, en ekkert fjarskiptafyrirtækið vill greiða fyrir það, enda myndi slíkt kosta milljarða.

Re: Er Síminn byrjaður að kappa torrent eina ferðina enn!?

Sent: Mán 14. Feb 2011 01:50
af einarhr
appel skrifaði:Það er ljósleiðarahringur í kringum landið, sem NATÓ lagði, og hann er takmarkaður. Held að það séu 5 "þræðir" í honum, 3 fyrir radarstöðvarnar og hinir 2 fyrir domestic notkun. Það gefur augaleið að bandvíddarlega séð er þetta alltof lítið, fjarskiptafyrirtækin berjast um bandvídd á þessum hring.

Sennilega er kominn tími til að leggja nýjan ljósleiðara kringum landið, en ekkert fjarskiptafyrirtækið vill greiða fyrir það, enda myndi slíkt kosta milljarða.
"You have to spend money to make money"

en það á kanski ekki við núna þegar þeir meika bara monný með því að selja allt of mikið inn á kerfið sem þolir það ekki.

Re: Er Síminn byrjaður að kappa torrent eina ferðina enn!?

Sent: Mán 14. Feb 2011 01:53
af snaeji
Ég hef haldið því fram í mörg ár að Síminn sé að gera eh funky við tengingar hjá sér.

Hef alltaf haldið fullum hraða á torrent hjá mér og þegar hlutfall seed/leech er gott hef ég alltaf náð nánast fullum hraða.

Ég hef hinsvegar oft prófað sama torrent fæl á tengingu hjá símanum og á sama tíma þá er ég að ná kannski 30-90 % meiri hraða hjá vodafone

Re: Er Síminn byrjaður að kappa torrent eina ferðina enn!?

Sent: Mán 14. Feb 2011 01:59
af JReykdal
appel skrifaði:Það er ljósleiðarahringur í kringum landið, sem NATÓ lagði, og hann er takmarkaður. Held að það séu 5 "þræðir" í honum, 3 fyrir radarstöðvarnar og hinir 2 fyrir domestic notkun. Það gefur augaleið að bandvíddarlega séð er þetta alltof lítið, fjarskiptafyrirtækin berjast um bandvídd á þessum hring.

Sennilega er kominn tími til að leggja nýjan ljósleiðara kringum landið, en ekkert fjarskiptafyrirtækið vill greiða fyrir það, enda myndi slíkt kosta milljarða.
8 Þræðir, 3 voru fyrir Radarinn en þeir eru komnir til vodafone núna.

Re: Er Síminn byrjaður að kappa torrent eina ferðina enn!?

Sent: Mán 14. Feb 2011 02:06
af appel
einarhr skrifaði:
appel skrifaði:Það er ljósleiðarahringur í kringum landið, sem NATÓ lagði, og hann er takmarkaður. Held að það séu 5 "þræðir" í honum, 3 fyrir radarstöðvarnar og hinir 2 fyrir domestic notkun. Það gefur augaleið að bandvíddarlega séð er þetta alltof lítið, fjarskiptafyrirtækin berjast um bandvídd á þessum hring.

Sennilega er kominn tími til að leggja nýjan ljósleiðara kringum landið, en ekkert fjarskiptafyrirtækið vill greiða fyrir það, enda myndi slíkt kosta milljarða.
"You have to spend money to make money"

en það á kanski ekki við núna þegar þeir meika bara monný með því að selja allt of mikið inn á kerfið sem þolir það ekki.
Það er spurning hvort "allt að" 16mbit sé betra heldur en "pottþétt" 1mbit. En það er rétt, maður borgar fyrir xx hraða og býst við að fá xx hraða langoftast. Súri raunveruleikinn er að við erum á Íslandi þar sem allt er af skornum skammti, gjaldeyrir og netsamband.

Nethraði skiptir mig eiginlega ekki máli lengur, ekki eftir að þetta fór yfir 2mbit. Ef maður er ekki að downloada aggressívt þá sækir maður alveg frekar hratt erlendis frá í þau einstaka skiptir sem maður downloadar einhverju á torrent.

Allavega, bara mitt persónulega álit.

Re: Er Síminn byrjaður að kappa torrent eina ferðina enn!?

Sent: Mán 14. Feb 2011 02:08
af appel
JReykdal skrifaði:
appel skrifaði:Það er ljósleiðarahringur í kringum landið, sem NATÓ lagði, og hann er takmarkaður. Held að það séu 5 "þræðir" í honum, 3 fyrir radarstöðvarnar og hinir 2 fyrir domestic notkun. Það gefur augaleið að bandvíddarlega séð er þetta alltof lítið, fjarskiptafyrirtækin berjast um bandvídd á þessum hring.

Sennilega er kominn tími til að leggja nýjan ljósleiðara kringum landið, en ekkert fjarskiptafyrirtækið vill greiða fyrir það, enda myndi slíkt kosta milljarða.
8 Þræðir, 3 voru fyrir Radarinn en þeir eru komnir til vodafone núna.
Thanks.

Re: Er Síminn byrjaður að kappa torrent eina ferðina enn!?

Sent: Mán 14. Feb 2011 04:22
af Ingi90
Jæja drengir þarf aðeins að forvitnast

Alltí einu er tengingin mín að springa , 58 gíg af 60

Nú spilar bróðir minn WoW og þekki ég ekkert til í þeirri tröllavitleysu

Eru það bara erlendir serverar sem spilað er á þar ? Hvort það sé að dúndrast inn erlent niðurhal þar í gegn

Þarf allavega pottþétt að hringja í símann og stækka tenginguna , gengur lítið þegar 3x á heimili downloada eins og ég veit ekki hvað að vera með 60 gígin

Best að hoppa uppí 120 :lol:

Re: Er Síminn byrjaður að kappa torrent eina ferðina enn!?

Sent: Mán 14. Feb 2011 04:32
af Klaufi
Ingi90 skrifaði:Jæja drengir þarf aðeins að forvitnast

Alltí einu er tengingin mín að springa , 58 gíg af 60

Nú spilar bróðir minn WoW og þekki ég ekkert til í þeirri tröllavitleysu

Eru það bara erlendir serverar sem spilað er á þar ? Hvort það sé að dúndrast inn erlent niðurhal þar í gegn

Þarf allavega pottþétt að hringja í símann og stækka tenginguna , gengur lítið þegar 3x á heimili downloada eins og ég veit ekki hvað að vera með 60 gígin

Best að hoppa uppí 120 :lol:
Það er allt erlent í WoW já, en ég tók nú aldrei eftir því að það var að taka eitthvað niðurhal af viti, ekki nema það hafi verið að koma stór patch eða eitthvað álíka..
Langt síðan ég spilaði en get ekki séð að það ætti að hafa breyst eitthvað..
I think wow is about 30kbit down and about 4 kbit up in most heavy raid situations.

One of the titan mods will give you this data of data up/down. However it really depends on where you are to determine how much data you get. If you are in a 40 man raid it can be 30Mbyte/hour. If you in the middle of no where it can be 1-5Mbyte/hour.