Síða 4 af 4
Re: Afrek ársins
Sent: Sun 02. Jan 2011 18:22
af Arnarr
rapport skrifaði:Dazy crazy skrifaði:Smíðaði héðinsfjarðargöng, sé eftir því...
Ertu ekki að grínast?
Þetta verður þvílík innspýting fyrir ferðaþjónustuna á Norðurlandi að hægt sé að taka rúnt frá Akureyri, Dalvík, Ólafsfj, Siglufj, Sauðárkrók,
Blöndós...
+ Hannes Boy = skemmtilegasti bar sem ég haf farið á lengi + geggjaður matur (heyrði reyndar að það yrði ekki sami kokkur næsta sumar
.
Vatnasport á Siglufirði + Túristaferðir út á rúmsjó, köfun o.s.frv. = pottþétt framtíðin.
Held að þessi göng verði þess virði...
p.s. ekki nema það séu e-h annað sem þú sjáir eftir með göngin...
Meinaru samt ekki Blönd
uós ??? nei bara spyr?
Plús að ég sé ekki hvernig blönduós á að hagnast á þessum göngum, og gallinn við héðinsfjarðar göng er sá að gömlu göngin eru alveg sprungin útaf allari þessari umferð sem bættist við.
Re: Afrek ársins
Sent: Sun 02. Jan 2011 18:33
af Victordp
-Skipti lappanum fyrir borðtölvu
-GAMER!
-Lots of bagg.....
Re: Afrek ársins
Sent: Sun 02. Jan 2011 18:34
af rapport
Ef ég hefði ekki verið að flækjast milli stúdenta/nemendagarða undanfarin 6 ár þá hefði ég verið öll mín ár í 101 RvK.
Eina persónulega tengingin mín við Norðurland er að við hjónin ákváðum að gifta okkur þarna á Síldarævintýtinu.
Hún á þarna frænku sem er aðflutt og ég einhverja fjarskylda ættingja sem ég hef aldrei hitt.
Félagi minn úr Mosó sem hafði verið á Humarhúsinu var þarna kokkur, annars veit ég lítið hvað gerist þarna, líkar bara virkilega vel við staðinn og svæðið alltsaman.
Eins og ég sagði líka áðan... þá er þetta dýrt en m.v. að þetta mun líklega vera þarna um ókomna tíð þá efast ég ekki um að þetta muni borga sig.
Júmm, það passar... ekki gleyma snjóflóðavarnargarðinum í útreikningunum.
Þetta er dýrara held ég pr. haus á Siglufirði en Icesave pr. haus á Íslandi.
Re: Afrek ársins
Sent: Sun 02. Jan 2011 18:39
af bixer
hehe ég bý nú á siglufirði, mér finnst þessi göng vera of dýr til að vera "þess virði" en ég hugsa samt að þessi peningur hefði farið í eitthvað miklu heimskulegra ef þeir hefðu ekki verið notaðir í göngin
+ það að siglufjörður borgaði mun meira útsvar til ríkisins á síldarárunum en aðrir bæir
ég hefði samt viljað sjá þessa peninga vera notaða í eitthvað betra, það er samt mjög þægilegt að hafa þau
Re: Afrek ársins
Sent: Sun 02. Jan 2011 18:58
af Dazy crazy
@rapport
eina sem þessi göng bæta í samgöngum er að það er styttra fyrir hofsósinga og siglfirðinga að fara til Akureyrar og ólafsfirðinga og Dalvíkinga að fara suður. Á sumrin er lágheiðin fær og hana hefði verið hægt að malbika og halda opinni með mokstri í 150 ár fyrir þetta fjármagn minnir mig. 11 milljarðar eru ekkert fáir peningar. Til ólafsfjarðar og siglufjarðar eru einbreið göng í sitthvora áttina auk þess sem leiðin til Siglufjarðar héðan er ófær ef kemur smá snjór. Ég á líka eftir að sjá það að Héðinsfjarðargöng verði lokuð einhverntímann vegna snjóflóðahættu, það er bókað, féllu 2 snjóflóð við siglufjarðarmunnan þegar við vorum að vinna við þetta í vor. Í héðinsfirði getur komið ofboðslegur snjór líka
þetta er tekið í héðinsfirði. Þetta er fáránleg fjárfesting bara
Re: Afrek ársins
Sent: Sun 02. Jan 2011 19:55
af Saber
Kom "projectinu" á götuna, komst á bíladaga og til baka, meiraðsegja með bíl í eftirdragi smá hluta af leiðinni.
Fór aftur í skóla eftir 5 ára vinnu.
Náði að eiga ofan í mig að éta alla önnina og fyrir flestum reikningum.
Náði öllu á önninni og með eina 10u, þrátt fyrir 49% mætingu.
Náði að koma Q6600inum mínum í 3,6 GHz, eftir 2ja ára notkun, 12hr stable í Prime. Nú "SpeedSteppar" hann sig niður í stock clocks þegar hann er að chilla.
Eignaðist SSD og uppgötvaði að gamli 37GB Raptorinn var alls ekkert svo slæmur.
Litli bróðir eignaðist litla stelpu.
Re: Afrek ársins
Sent: Mán 03. Jan 2011 00:42
af Glazier
Var að hugsa um daginn og fannst ég ekki hafa gert neitt merkilegt á árinu en núna rétt í þessu fattaði ég að þetta ár er bara búið að vera nokkuð gott..
Þetta eru kannski ekki allt beint afrek..
-Ferðaðist um Vestfirði
-Smíðaði fleka með nokkrum öðrum félögum mínum og sygldum frá Viðey til Rvk, komum okkur þannig í djúpann skít, fórum þvert yfir alþjóðlega syglingaleið á óskráðum bát án leyfis og bla bla, en höfðum gaman af..
(Flekinn var smíðaður úr 4x 200L tunnum, nokkrum spítum og spottum, var hringt í lögguna og gert svaka mál úr þessu.. sluppum samt furðu vel, þurftum að mæta á 2 fundi)
-Kynntist helling af fólki á þessu ári.. örugglega miklu meira en ég mun nokkurtíman gera aftur
-Keppti í downhilli.. meira að segja fleyri keppnum en ég hafði sett markmiðið á
-Hjólaði niður Esjuna 2-3svar
En næsta ár verður klárlega ennþá betra..
Er með nokkur góð plön
Re: Afrek ársins
Sent: Mán 03. Jan 2011 01:16
af Eiiki
ég lærði að meta og elska cs:source, er núna kind off addicted... sem er fínt
Re: Afrek ársins
Sent: Mán 03. Jan 2011 01:26
af grimzzi5
-Spilaði á stærsta handboltamóti í heimi
-2sæti í skrekk
Re: Afrek ársins
Sent: Mán 03. Jan 2011 01:34
af zedro
Glazier skrifaði:-Smíðaði fleka með nokkrum öðrum félögum mínum og sygldum frá Viðey til Rvk, komum okkur þannig í djúpann skít, fórum þvert yfir alþjóðlega syglingaleið á óskráðum bát án leyfis og bla bla, en höfðum gaman af..
(Flekinn var smíðaður úr 4x 200L tunnum, nokkrum spítum og spottum, var hringt í lögguna og gert svaka mál úr þessu.. sluppum samt furðu vel, þurftum að mæta á 2 fundi)
Re: Afrek ársins
Sent: Mán 03. Jan 2011 04:06
af Frost
Zedro hefur allt of rétt fyrir sér. Þessi drengur á nýjan titil skilið, það finnst mér allavega
Re: Afrek ársins
Sent: Mán 03. Jan 2011 04:40
af zedro
Frost skrifaði:Zedro hefur allt of rétt fyrir sér. Þessi drengur á nýjan titil skilið, það finnst mér allavega
http://www.youtube.com/watch?v=k8F3UE9qFsg
Re: Afrek ársins
Sent: Mán 03. Jan 2011 04:42
af Frost
Haha epískt
Re: Afrek ársins
Sent: Mán 03. Jan 2011 04:50
af urban
hrmph, ég ætlaði að hafa það Kapteinn
Re: Afrek ársins
Sent: Mán 03. Jan 2011 05:39
af Glazier
Haha, þið eruð ágætir..
Þetta er atburður sem mun seint gleymast í mínu lífi (og þeirra sem voru með) okkur var hótað kærum og allskonar shitti.
Svo þegar við sigldum til baka út í Viðey þá sáum við þegar við vorum hálfnaðir yfir sundið þarna risa stórt gámaflutningaskip (heitir Dettifoss) koma siglandi.
Hefðum við verið svona 5 mín seinna á ferðinni þá væri ég ekki hér að segja frá þessu
Ætli þið hefðuð ekki heyrt e'ð smávegis í fréttunum um 5 gæja á fleka sem hurfu í gegnum skrúfuna á Dettifoss..
Edit: Læt fylgja eina litla og sæta mynd af Dettifoss með, tekin af google.
Re: Afrek ársins
Sent: Mán 03. Jan 2011 07:15
af Páll
hahah snilld!
Re: Afrek ársins
Sent: Mán 03. Jan 2011 11:59
af hauksinick
Ég varð í öðru sæti í bikarnum í körfu..
Töpuðum úrslitaleiknum með einu stigi
Re: Afrek ársins
Sent: Mán 03. Jan 2011 13:13
af Frantic
Snilldarafrek hérna.
Vildi að ég gæti sagt hafa gert eitthvað svona en ég get státað mig að því að hafa verið í flestum tegundum skóla í tveimur skólum.
Fyrst í dagskóla, svo í sumarskóla og svo kvöldskóla.
Reyndar þá tókst mér að hækka launin mín um 110%.
Re: Afrek ársins
Sent: Mán 03. Jan 2011 21:51
af rapport
JoiKulp skrifaði:Reyndar þá tókst mér að hækka launin mín um 110%.
Það er snilld m.v. að það ríkir kreppa í landinu...
Congrats