Síða 4 af 4

Re: Er að hugsa um að svíkja lit.

Sent: Fös 17. Apr 2009 15:53
af Sydney
Gúrú skrifaði:
Sydney skrifaði:Ef tölvan mín bilar kemst ég bara að því hvað er að og skipti hann út, og ef hluturinn er enn í ábyrgð, mér að alveg kostnaðarlausu.

Kæmi ekki á óvart ef Apple tekur einhvern 15 þúsund á tímann eða eitthvað á verkstæðinu...
Og hvað? Tölvan er löguð þér að kostnaðarlausu ef að hún er í ábyrgð sama hvort að hún er keypt hjá Apple eða ekki, og það að það sé þér kostnaðarlaust að skipta um hluti sjálfur þá er það augljóslega ódýrara en að ráða einhvern annan, og eins og þú sérð á verðum Apple eru þeir ekki að reyna að vera í samkeppni við önnur verkstæði þar sem að þeir hafa nóg að gera nú þegar og hafa engan tíma fyrir aukavinu og þar af leiðandi ætti enginn að versla við verkstæðið þeirra v. lagfæringar.. Hvað ertu að segja hérna?
Meðal annars þetta
Mynd

Svo finnst mér líka vera svo mikið frelsa að geta hvenær sem er opnað kassann og gert hvað sem ég vil.

Re: Er að hugsa um að svíkja lit.

Sent: Fös 17. Apr 2009 16:51
af ManiO
Sydney skrifaði: Meðal annars þetta
Mynd

Svo finnst mér líka vera svo mikið frelsa að geta hvenær sem er opnað kassann og gert hvað sem ég vil.

Það er EF eitthvað bilar. En að halda svæðinu í kringum tölvurnar hreinu er ÓÞOLANDI að hafa svona mikið snúrufargan, en á iMacinum er það ekki vesen.

En eins og þú segir þá er þetta spursmál um smekk og hvað maður þarf. Þannig að í raun er ekki hægt að segja að PC > Mac eða öfugt, jafnvel Linux > OS X > XP > Vista eða hvaða röð sem menn vilja setja þetta.