Síða 29 af 31

Re: Hvernig bíl eigiði ?

Sent: Fim 12. Jan 2017 17:52
af Fletch
keypti þennan seinasta sumar :8)
Screenshot 2021-01-26 181438.png
Screenshot 2021-01-26 181438.png (637.87 KiB) Skoðað 1498 sinnum

Re: Hvernig bíl eigiði ?

Sent: Fim 12. Jan 2017 18:07
af vesley
:hnuss
Fletch skrifaði:keypti þennan seinasta sumar :8)

Mynd
Uss! Þarf þessi ekki að kíkja í bón? :8)

Re: Hvernig bíl eigiði ?

Sent: Fim 12. Jan 2017 18:12
af Fletch
ekki spurning, vonlaust að halda þessu hreinu þegar allir eru á nagladekkjum :)

Re: Hvernig bíl eigiði ?

Sent: Fim 12. Jan 2017 18:38
af Póstkassi
Hérna er minn Mynd
Skoda Octavia 2014

Re: Hvernig bíl eigiði ?

Sent: Sun 15. Jan 2017 18:46
af dabbihall
minn :) VW GOLF GTE 2016

Mynd

Re: Hvernig bíl eigiði ?

Sent: Sun 15. Jan 2017 22:32
af Snikkari
Ég á Mazda 323 árgerð 2000, ekinn 108 þús km, eyðir 6,5L og slær ekki feilpúst.
Keypti hann á bland fyrir 200 þús kall.

Re: Hvernig bíl eigiði ?

Sent: Sun 28. Maí 2017 12:22
af pattzi
Keypti þennan 1 mars

besti bíll sem ég hef átt ótrúlega gott að keyra þetta

Mynd

Re: Hvernig bíl eigiði ?

Sent: Þri 18. Júl 2017 23:27
af HalistaX
19642648_10203430350996389_2896056052581816054_n.jpg
19642648_10203430350996389_2896056052581816054_n.jpg (97.2 KiB) Skoðað 5418 sinnum

Skoda Superb Elegance 2,8L V6. 2004 árgerð og 194 hestöfl.

Var sagt þegar ég var að kaupa hann að þetta væri kagginn sem Jón Gnarr keyrði um á í Bæjarstjórn. Að hann hafi viljað eitthvað grænt og fínt en samt notað. Veit ekki hvað er til í þessu, held að þetta hafi bara verið sölu trikk, either way, þá féll ég fyrir því(Sekur!).

Yndislegt að keyra þennann bíl samt sem áður. Hann er, samkvæmt internetinu, ca. 8,0 sekúndur uppí hundrað.

Þetta græna sem ég minntist á? Óh, hann er retrofittaður með Metan búnað svo hægt sé að skera mengunina í tvennt. Það er algjört drasl og borgar sig ekki, ekki þar sem Metan normal rúmmeterinn(nm3) kostar 150kr. Metanið var ekki stórt selling point á þessum bíl. Langaði bara í bíl sem rúmaði mig og fjóra farþega í stað mig og tveggja og hálfs farþega. Því, lets face it, þá er ég 196cm á hæð og 169 kíló samkvæmt síðustu vigtun, og með svoleiðis mann í bílstjora sætinu, þá getur ekki nokkur maður setið fyrir aftan mann í bil á við Golf, Octavia eða Impreza.

Langaði bara í svona bíl og það munaði rúmlega 300.000 á þessum og þeim næsta í röðinni, svo ég keypti mér Metan bíl.

Það sem heillaði mig mest við hann? Fótaplássið í farþegarými. Ég, the load of a man I am, 196cm hár, get stillt bílstjóra sætið fyrir mig og sest svo fyrir aftan það með meira en nóg pláss fyrir lappirnar. Það er vegna þess að Superb'inn er bæði 30 cm breiðari og 30 cm lengri en t.d. Octavian.

Superb hefur oft verið kenndur sem limmósía fólksbíla markaðsins.

Hann hefur samt aldrei verið til friðs í minni eigu. Allt frá hurða"húnum" uppí hita element(Heater Core) og sjálfskiptingu. En ég vonast til þess að geta kippt þessu öllu saman í lag og þá verði hann góður það sem eftir er! :D

EDIT: Gleymdi því mikilvægasta.... Það er leður á ÖLLU!!!

EDIT2: Gleymdi líka að minnast á það hvað hann eyðir. Hann er með 65 lítra tank og ég er heppinn ef ég fæ 250-300km innanbæjar, sem þýðir 20-25 L/100, hef samt náð á hann 650km í lang akstri, sem þýðir svona 10L/100, en þá var hann á 90 pretty much allann tímann. Því ef hann er í 5 gír og fer aðeins hærra eða lægra en 85-105, þá eyðir hann alveg svakalegu bensíni.

Áður en ég klessti hann, þið munið allir eftir því :oops: , þá gat ég náð um það bil 1000km með því að nota bæði Metan og Bensín. Og ég man ekki alveg hvað tankarnir taka marga nm3. Hlýtur samt að vera hellingur því þetta eru 3x60kgx55L sem ég er með í skottinu... Það kemst ekkert annað fyrir í skottinu...

En eftir að ég klessti hann skemmdist Metan búnaðurinn. Sem er svo sem fínt, þá hef ég legit ástæðu til þess að rífa tankana úr og annað hvort fá mér léttari, örtrefja kúta, eða bara sleppa þessu alfarið og eignast bíl með skotti. Sure, ég get lagt frítt í bænum með honum útaf Metaninu, en ég fer hvort eð er aldrei í bæinn....

Re: Hvernig bíl eigiði ?

Sent: Þri 31. Okt 2017 18:32
af pattzi
Þá er þessi kominn aftur eftir 6 ára frí frá mér keypti hann aftur 1 sept MyndMynd

Sent from my SM-A520F using Tapatalk

Re: Hvernig bíl eigiði ?

Sent: Mið 01. Nóv 2017 08:45
af B0b4F3tt
Keypti þennan í sumar. Kia Optima SW 2017. Frekar sáttur við hann :)

Re: Hvernig bíl eigiði ?

Sent: Mið 01. Nóv 2017 08:47
af Mr.wiencke
ég á BMW E90 2006 og Ford focus SVT 2004

Re: Hvernig bíl eigiði ?

Sent: Mið 01. Nóv 2017 09:19
af kjartanbj
Ég er á Skoda Superb 2018 módel 4x4 með Alcantara leður innréttingu dísil 2.0 150hp , eyðir engu og mjög skemmtilegur bíll

Re: Hvernig bíl eigiði ?

Sent: Fim 16. Nóv 2017 21:20
af HalistaX
kjartanbj skrifaði:Ég er á Skoda Superb 2018 módel 4x4 með Alcantara leður innréttingu dísil 2.0 150hp , eyðir engu og mjög skemmtilegur bíll
Ekki datt mér í hug að þú værir notandi hér... Kemur mjög, en samt skemmtilega, á óvart.

Ekki einn vafi um hver þú ert, enda bara einn maður sem mér dettur í hug sem gæti hafa nælt sér í dýrð á borð við Superb 2018!

Innilega til hamingju með kaggann, meistari! :D

Annars, því mig dreymir blauta drauma um að koma strætó batterýinu fyrir kattarnef, verslaði ég mér eitt stk bíl í dag.

Og bíllinn sem varð fyrir valinu var enginn annar en Jeep Grand Cherokee Laredo 4.0 2000(USA) 2002(ÍSL) argerð.

Eins og nýr og alveg hrein snöööld að keyra hann!

Átti að kosta 440(460 með bifreiðagjöldum ofl.)k but my prútting skills came to the rescue og fékk ég hann á 400(420)k sléttar!
23634579_10203920055638699_1264078105_n.jpg
23634579_10203920055638699_1264078105_n.jpg (66.82 KiB) Skoðað 5193 sinnum
Eina sem hrjáir hann er að það eru öööööörlitlir ryð blettir í lakki á húddinu, en ekkert sem spastískur sjálfskipaður bílaáhugamaður eins og ég getur ekki höndlað. Og svo virðist baklýsingin á gírstönginni, þú veist, P R N D 2 3 dúddarnir, vera eitthvað sein á sér. Ég meina, það kviknar á henni, bara þegar ég er búinn að vera að keyra í öðrum gír frá Smáralind uppí Hlíðar..... ](*,) :lol:

Re: Hvernig bíl eigiði ?

Sent: Fim 16. Nóv 2017 21:43
af Vaktari
Verslaði mér núna i lok sept Kia Ceed 2016 DÍSEL SSK
CarImage.jpg
CarImage.jpg (38.17 KiB) Skoðað 5184 sinnum
Verslaði mér núna i lok sept Kia Ceed 2016 DÍSEL SSK

Re: Hvernig bíl eigiði ?

Sent: Fim 16. Nóv 2017 23:14
af g0tlife
Audi Q7 Hybrid 2017

Mynd

Re: Hvernig bíl eigiði ?

Sent: Fös 17. Nóv 2017 09:48
af Jón Ragnar
Fékk þennan í ágúst eftir smá vesen.
VW Golf Variant R-line


Mynd

Re: Hvernig bíl eigiði ?

Sent: Fös 17. Nóv 2017 09:49
af Jón Ragnar
B0b4F3tt skrifaði:Keypti þennan í sumar. Kia Optima SW 2017. Frekar sáttur við hann :)

Þú hér ;)

Re: Hvernig bíl eigiði ?

Sent: Fös 17. Nóv 2017 12:45
af B0b4F3tt
Jón Ragnar skrifaði:
B0b4F3tt skrifaði:Keypti þennan í sumar. Kia Optima SW 2017. Frekar sáttur við hann :)

Þú hér ;)

Ég er allsstaðar ;)

Re: Hvernig bíl eigiði ?

Sent: Fös 17. Nóv 2017 12:58
af Halli25
B0b4F3tt skrifaði:
Jón Ragnar skrifaði:
B0b4F3tt skrifaði:Keypti þennan í sumar. Kia Optima SW 2017. Frekar sáttur við hann :)

Þú hér ;)

Ég er allsstaðar ;)
Er þetta plugin hybrid? var að spá í að uppfæra í þannig úr skoda octavia station, vill samt sjá drægið um 100 km svo maður nái alla vega 50km í raundrægi :)

Re: Hvernig bíl eigiði ?

Sent: Fös 17. Nóv 2017 19:48
af B0b4F3tt
Halli25 skrifaði:
B0b4F3tt skrifaði:
Jón Ragnar skrifaði:
B0b4F3tt skrifaði:Keypti þennan í sumar. Kia Optima SW 2017. Frekar sáttur við hann :)

Þú hér ;)

Ég er allsstaðar ;)
Er þetta plugin hybrid? var að spá í að uppfæra í þannig úr skoda octavia station, vill samt sjá drægið um 100 km svo maður nái alla vega 50km í raundrægi :)
Nei þetta er ekki plugin hybrid. Hann var ekki kominn þegar ég pantaði minn bíl. Einnig sýndist mér skottið í plugin bílnum vera einhverjum 200-300 lítrum minna og þegar maður er með 3 börn þá þarf maður allt skottplássið :)

Ég uppfærði sjálfur úr Skoda Octavia station 2014 módel og þetta er miklu skemmtilegri bíll þó svo að Skodinn sé mjög fínn. Eiginlega eina ástæðan fyrir því að ég uppfærði í Kiuna var út af ömurlegri framkomu hjá Heklu. Gat ekki hugsað mér að eiga meiri viðskipti við þá.

Re: Hvernig bíl eigiði ?

Sent: Fös 17. Nóv 2017 19:52
af demaNtur
Hef aldrei brosað jafn breitt og eftir ég keypti mér þetta tæki :megasmile
M51.jpg
M51.jpg (181.8 KiB) Skoðað 5067 sinnum
M55.jpg
M55.jpg (159.4 KiB) Skoðað 5067 sinnum

Re: Hvernig bíl eigiði ?

Sent: Fös 17. Nóv 2017 21:10
af vesi
demaNtur skrifaði:Hef aldrei brosað jafn breitt og eftir ég keypti mér þetta tæki :megasmile
Suddalega flott græja hjá þér, mjög mjög langt síðan að maður var smá "abbó", en tel mig hafa aldur og þroska til að samgleðjast með öðrum...en samt..

Ertu búinn að breyta einhverju, ertu til í að posta speccum.

Re: Hvernig bíl eigiði ?

Sent: Fös 17. Nóv 2017 22:00
af appel
Hef aldrei brosað jafn breitt síðan ég borgaði síðustu afborgunina á bílnum mínum c.a. 2003-2004.
Núna 2017, enn á sama bíl, nær brosið út að eyrum.

Toyotur lifa að eilífu! Hann er nýsmurður, og það er ekkert að honum nema að rúðuþurrkan farþegamegin er hætt að snúast, læt kíkja á það þegar hin hættir að snúast.

Re: Hvernig bíl eigiði ?

Sent: Lau 18. Nóv 2017 09:04
af stefhauk
Keypti mér þennann á þessu ári.

Mynd

Re: Hvernig bíl eigiði ?

Sent: Sun 19. Nóv 2017 06:23
af demaNtur
vesi skrifaði:
demaNtur skrifaði:Hef aldrei brosað jafn breitt og eftir ég keypti mér þetta tæki :megasmile
Suddalega flott græja hjá þér, mjög mjög langt síðan að maður var smá "abbó", en tel mig hafa aldur og þroska til að samgleðjast með öðrum...en samt..

Ertu búinn að breyta einhverju, ertu til í að posta speccum.
Takk fyrir það :sleezyjoe

Engar breytingar í rauninni á vél fyrir utan púst, meisterschaft heitir það, ótrúlega flott hljóð núna úr V10 mótornum.

Síðan bara útlitsbreytingar, lækkun, spacerar til að sparka felgunum aðeins lengra út, front lip og skott lip.