Síða 24 af 39
Re: Spurninga Þráðurinn
Sent: Þri 28. Ágú 2012 19:28
af Gúrú
Þessar tölur eru það mikið út í hött að annað hvort er eitthvað hak/óhak þar sem að öfugt á að vera í HD Tune stillingunum
eða þá að þetta er svona snarbilaður diskur.
Var þetta test framkvæmt á vinnutölvunni? Vonum bara að þetta sé P35 kubbasettið-að-ekki-styðja-UDMA-7 tengt en ekki diskurinn.
Re: Spurninga Þráðurinn
Sent: Þri 28. Ágú 2012 20:16
af rapport
Gúrú skrifaði:Þessar tölur eru það mikið út í hött að annað hvort er eitthvað hak/óhak þar sem að öfugt á að vera í HD Tune stillingunum
eða þá að þetta er svona snarbilaður diskur.
Var þetta test framkvæmt á vinnutölvunni? Vonum bara að þetta sé P35 kubbasettið-að-ekki-styðja-UDMA-7 tengt en ekki diskurinn.
Nei, var gert í heimavélinni...
Kíkti í manualinn með móðurborðinu "ASUS p5k-deluxe Wifi" og á forumið hjá ASUS.. alskonar vandamál sem hafa komið upp með þessi móðurborð og SATA tengin, en enginn virðist geta pinpointað hvað er að...
Þau eiga það til að verða slow eða vera bara slow frá upphafi... Grábölvað...
Re: Spurninga Þráðurinn
Sent: Fös 31. Ágú 2012 10:05
af KrissiP
Skjárinn á fartölvunni minni er ógeðslegur... Með hverju get ég þrifið hann?
Re: Spurninga Þráðurinn
Sent: Fös 31. Ágú 2012 10:21
af Tbot
KrissiP skrifaði:Skjárinn á fartölvunni minni er ógeðslegur... Með hverju get ég þrifið hann?
Flestar tölvuverslanir selja hreinsiefni og klúta.
Klúturinn þarf að vera úr efni sem ekki rispar.
Re: Spurninga Þráðurinn
Sent: Fös 31. Ágú 2012 10:27
af KrissiP
Virka fiber klútar sem eru notaðir á spegla?
Re: Spurninga Þráðurinn
Sent: Fös 31. Ágú 2012 10:35
af Tbot
minnir að flestir mæli með microfiber klútum. Held að speglaklúturinn sé bara venjulegur fiber klútur.
Re: Spurninga Þráðurinn
Sent: Fös 31. Ágú 2012 10:38
af g0tlife
Er að fara fá ljósleiðara hjá símanum. Mæliði með einhverum ráder ? Eða er sá sem maður fær frá þeim alveg góður
Re: Spurninga Þráðurinn
Sent: Fös 31. Ágú 2012 11:50
af Moquai
g0tlife skrifaði:Er að fara fá ljósleiðara hjá símanum. Mæliði með einhverum ráder ? Eða er sá sem maður fær frá þeim alveg góður
Afhverju var mér sagt frá fulltrúa hjá símanum að þeir myndu koma með 250mb/s ljósleiðara um mitt sumar en núna er komið haust og ekkert að gerast?
Re: Spurninga Þráðurinn
Sent: Fös 31. Ágú 2012 12:41
af Gúrú
g0tlife þú átt við ljósnet er það ekki? Eða var Síminn að byrja með ljósleiðara.
Re: Spurninga Þráðurinn
Sent: Fös 31. Ágú 2012 12:47
af chaplin
Gúrú skrifaði:g0tlife þú átt við ljósnet er það ekki? Eða var Síminn að byrja með ljósleiðara.
Síminn er með Ljósnetið - OR er með Ljósleiðara.
Re: Spurninga Þráðurinn
Sent: Lau 01. Sep 2012 10:41
af Victordp
jonbk skrifaði:Victordp skrifaði:Tók eftir
þessum síma í elko blaðinu í dag er einhver Android síma sem að kemst nálægt þessum spec og price wise ?
ég veit ekki afhverju en ég myndi frekar fá mér htc-inn
http://www.elko.is/elko/samanburdur/Def ... owxml=true" onclick="window.open(this.href);return false;
Þessi linkur virkar ekki en aðalástæðan afh mig langaði í hann er útaf ICS.
Re: Spurninga Þráðurinn
Sent: Sun 02. Sep 2012 00:54
af g0tlife
Gúrú skrifaði:g0tlife þú átt við ljósnet er það ekki? Eða var Síminn að byrja með ljósleiðara.
Ahh my bad þetta ruglast alltaf hjá mér. Hef aldrei pælt í þessu því maður vissi að þetta var ekkert að koma. En núna er stutt í þetta svo ég spyr bara sömu spurningu aftur.
Ætti maður að fá sér annann router eða er sá sem fylgir með frá símanum nógu góður ? (Er gamer)
Re: Spurninga Þráðurinn
Sent: Sun 02. Sep 2012 09:24
af jonbk
Hvernig í fjáranum opnar maður svona hulstur ?
http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f ... ur#p449480" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Spurninga Þráðurinn
Sent: Mán 03. Sep 2012 16:28
af jonbk
anyone ? fann smá rauf sem er væntanlega til að opna það en næ bara að opna það smá, bara aðra lengri hliðina
Re: Spurninga Þráðurinn
Sent: Mán 10. Sep 2012 22:49
af vargurinn
skiptir gæðin á netkorti einhverju máli ? tók bara netkortið úr gömlu tölvunni, er það kannski betra að fjárfesta í einu nýju ?
Re: Spurninga Þráðurinn
Sent: Mán 10. Sep 2012 23:04
af Daz
vargurinn skrifaði:skiptir gæðin á netkorti einhverju máli ? tók bara netkortið úr gömlu tölvunni, er það kannski betra að fjárfesta í einu nýju ?
Er ekki innbyggt netkort í 101% af öllum móðurborðum?
Stutta svarið er samt "skiptir engu".
Re: Spurninga Þráðurinn
Sent: Mán 10. Sep 2012 23:10
af AntiTrust
Daz skrifaði:vargurinn skrifaði:skiptir gæðin á netkorti einhverju máli ? tók bara netkortið úr gömlu tölvunni, er það kannski betra að fjárfesta í einu nýju ?
Er ekki innbyggt netkort í 101% af öllum móðurborðum?
Stutta svarið er samt "skiptir engu".
Munar samt auðvitað um það ef það er 100Mbit eða 1Gbit - ef viðkomandi hefur e-ð að vera við slíkann hraða.
Re: Spurninga Þráðurinn
Sent: Sun 16. Sep 2012 21:58
af Yawnk
Er eitthvað vit í því að fá sér viftustýringu, því ég er bara með 3 pin viftur, en móðurborðið er allt 4 pin, væri alveg til í að geta stjórnað þeim.
Sá þessa og bráðnaði
http://tolvutaekni.is/product_info.php? ... 529ffc77b7" onclick="window.open(this.href);return false;
Hún er svo flott, fyrir 7000 kall, snertiskjár og læti, er þetta góð vara, passar í 5.25 drif, er það þá s.s geisladrifsstærð?
Eru einhverjar aðrar ódýrari ?
Re: Spurninga Þráðurinn
Sent: Mán 17. Sep 2012 23:14
af Yawnk
Kemst einhver annar inná
http://www.kisildalur.is" onclick="window.open(this.href);return false; ?
Re: Spurninga Þráðurinn
Sent: Mán 17. Sep 2012 23:18
af Kjáni
Nops fæ þetta
Warning: mysql_connect(): Lost connection to MySQL server at 'reading initial communication packet', system error: 113 in /var/www/html/bin/class.sql.php on line 10
Lost connection to MySQL server at 'reading initial communication packet', system error: 113
Re: Spurninga Þráðurinn
Sent: Mán 17. Sep 2012 23:19
af vargurinn
Daz skrifaði:vargurinn skrifaði:skiptir gæðin á netkorti einhverju máli ? tók bara netkortið úr gömlu tölvunni, er það kannski betra að fjárfesta í einu nýju ?
Er ekki innbyggt netkort í 101% af öllum móðurborðum?
Stutta svarið er samt "skiptir engu".
ég er með þetta
http://start.is/product_info.php?cPath= ... ts_id=3486" onclick="window.open(this.href);return false; og wireless virkaði ekki þangað til ég skrúfaði netkortið í .
Re: Spurninga Þráðurinn
Sent: Lau 22. Sep 2012 19:27
af Yawnk
Má ég auglýsa sófasett til sölu á Vaktinni??
* Önnur spurning : Hversu gamall þarf maður að vera til að vera löglega skráður eigandi bíls?
Re: Spurninga Þráðurinn
Sent: Lau 22. Sep 2012 20:47
af tdog
Yawnk skrifaði:Má ég auglýsa sófasett til sölu á Vaktinni??
* Önnur spurning : Hversu gamall þarf maður að vera til að vera löglega skráður eigandi bíls?
Menn hafa nú auglýst bíla hérna án áreitis.
Re: Spurninga Þráðurinn
Sent: Lau 22. Sep 2012 22:46
af AndriKarl
Yawnk skrifaði:Má ég auglýsa sófasett til sölu á Vaktinni??
* Önnur spurning : Hversu gamall þarf maður að vera til að vera löglega skráður eigandi bíls?
18 ára, ef yngri þarf sérstakt leyfi frá sýslumanni
Re: Spurninga Þráðurinn
Sent: Sun 23. Sep 2012 21:12
af Yawnk
http://tolvutaekni.is/product_info.php?products_id=1949" onclick="window.open(this.href);return false;
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=8036" onclick="window.open(this.href);return false;
Er eitthver munur á þessum kortum annað en vifturnar/útlit? er það þess virði að fara í MSI kortið?
Getur eitthver útskýrt Sli fyrir mér?
Ég á annað 560 Ti SOC(Gigabyte) kort, gæti ég notað þessi bæði sem ég linkaði að ofan og bara skellt þeim í tölvuna, og það myndi virka í Sli? hvað þarf ég að gera til þess að það virki? Hvernig virkar þessi Sli kapall sem kom með móðurborðinu? Þarf það að vera sömu tegund af korti? s.s mitt fyrra kort er Gigabyte, þarf Sli kortið að vera Gigabyte líka? Hvað ef eitt kortið er 1GB og hitt er 2GB? gerir annað kortið sig þá 1GB líka? Þarf virkilega aðstoð með þetta
Móðurborði er Z77X-D3H og ég er með Thermaltake 730W.