Síða 3 af 3

Sent: Mið 18. Jan 2006 00:08
af mjamja
Birkir skrifaði:Þetta er kannski svipað og sú staðreynd að þú getur drepið þig með því að drekka of mikið vatn.
Neh ekki alveg það sama, það tengist meira söltum og svoleiðis stöffi

Sent: Mið 18. Jan 2006 09:29
af Rusty
mjamja skrifaði:
Birkir skrifaði:Þetta er kannski svipað og sú staðreynd að þú getur drepið þig með því að drekka of mikið vatn.
Neh ekki alveg það sama, það tengist meira söltum og svoleiðis stöffi
Held að hann meini að það þurfi álíka mikla heimsku.

Sent: Mið 18. Jan 2006 14:29
af @Arinn@
Fletch hvaða vatnskæling er þetta sem þú ert með ?

Sent: Mið 18. Jan 2006 17:04
af Fletch
@Arinn@ skrifaði:Fletch hvaða vatnskæling er þetta sem þú ert með ?
dælan er eheim 1048
blokkin á örranum Swiftech Storm
á VGA er DangerDen Z-chip blokk
nota ekki reserve tank heldur T-línu fyrir fill/bleed
Radiatorinn er BlackIce Xtreme

Fletch

Sent: Mið 18. Jan 2006 21:35
af kristjanm
Held það sé allt fullt af nitri í loftinu, jafnvel meira en af súrefni.. man samt ekki í hvaða bók ég las það og ekki séns að ég nenni að leita :)

Sent: Fim 19. Jan 2006 08:28
af gnarr
78% af andrúmsloftinu er nitur.

Sent: Fim 19. Jan 2006 16:56
af DoRi-
halldor skrifaði:
DoRi- skrifaði:
halldor skrifaði:
DoRi- skrifaði:gera bara eins og tommi gerði og láta fljótandi gas á örrann

(ef þið eruð það extreme að gera það ALLS EKKI anda guðonum að ykkur, það er ekkert nema óþægilegt, fyrir utan það þá áttu í hætta á að deyja )
Fer allt eftir tegund gassins, ef þetta er t.d. helíum deyrðu ekki nema þú verðir fyrir súrefnisskorti.
Svo hef ég reyndar heyrt að búnaður fyrir slíka kælingu hlaupi á fleiri hundruðum þúsunda.
mig minnir að þetta hafi verið No2 man það samt ekki
Nitur er númer 7 í lotukerfinu og þar með ekki eðallofttegund. Ef gasið er ekki eðallofttegund getur það bundist efnasambandi við eitthvað inní þér og svona og gæti verið hættulegt.
enda var þettaekki best lífsreynsla í heimi, var að taka humar úr hraðfrysti (ca -196°c) og andaði þessu og mikið að mér , og átti á tímabili erfitt með að anda :roll:

Sent: Fim 19. Jan 2006 21:45
af @Arinn@
@Arinn@ skrifaði:Hvenær kemur þessi græja út ?
Veit það enginn ?

Sent: Mán 23. Jan 2006 18:51
af zedro
@Arinn@ skrifaði:
@Arinn@ skrifaði:Hvenær kemur þessi græja út ?
Veit það enginn ?
Já það væri gaman að vita það, anyone.

En eitt smá off topic.

Fletch hvort finnst þér PhaseChange eða Vatnskæling betri?
Er einhver mikill munur kælingu og hávaða???

Sent: Mán 23. Jan 2006 23:17
af Fletch
@Arinn@ skrifaði:
@Arinn@ skrifaði:Hvenær kemur þessi græja út ?
Veit það enginn ?
Miðað við það sem ég hef lesið er hún að detta inn, feb jafnvel
Zedro skrifaði:Fletch hvort finnst þér PhaseChange eða Vatnskæling betri?
Er einhver mikill munur kælingu og hávaða???
PhaseChange er ein öflugasta kæling sem þú getur fengið (fyrir utan LN2 og aðrar solleis æfingar) Ég hafði mjög gaman af mínu VapoChill LS, eina ástæðan að ég seldi það að eftir að ég fékk mér X2 örgjörva fannst mér ég varla þurfa meira CPU power, plús maður fær leið á að eltast við benchmarks

Það er bæði til háværar og láværar phasechange og vatnskælingar. LS'in er frekar hávær(SE og XE vapo'in er t.d. mun lágværari), samt ekkert svona viftuhljóð, það heyrist í compressor'num en það truflaði mig ekki neitt, á desibel mælikvarðanum er Vapochill LS frekar lágvært, "öðruvísi" hávaði en maður á að venjast frá tölvu
Enda varla hægt að búast við öðru en smá noise frá kælingu sem getur haldið Prescott í full load í -30°C :twisted:

Fletch