Síða 3 af 4
Sent: Mið 23. Nóv 2005 18:16
af gnarr
jú. kaplar sem senda stafrænt græða líka á þessu. með gullhúðum tengjum kemst kanski 99.9% af gögnunum í gegn í fyrstu tilraun, meðan að með ál tengjum kemst 95% í gegn í fyrstu tilraun. þetta þýðir það að maður græðir kanski 5% hraða bara á tengjunum.
(þessar tölur eru bara bull hjá mér.. ég veit ekkert hverjar raunverulegar tölur eru)
Sent: Mið 23. Nóv 2005 18:33
af Hörde
Keypti mér X-fi XtremeMusic um daginn, og það er mikill munur á því og Audigy1 sem ég var með fyrir þó þessi "crystalizer" sé reyndar helvítis djók. Og ef þið notið headphone í leikjum, þá er þrívíddareffektinn miklu betri í X-fi en Audigy1 og 2.
Sent: Mið 23. Nóv 2005 18:59
af hilmar_jonsson
gnarr skrifaði:jú. kaplar sem senda stafrænt græða líka á þessu. með gullhúðum tengjum kemst kanski 99.9% af gögnunum í gegn í fyrstu tilraun, meðan að með ál tengjum kemst 95% í gegn í fyrstu tilraun. þetta þýðir það að maður græðir kanski 5% hraða bara á tengjunum.
(þessar tölur eru bara bull hjá mér.. ég veit ekkert hverjar raunverulegar tölur eru)
Ef einhvern langar að prufa þetta sjálfur þá mæli ég bara með að nota tvær tölvur með Tx base network og tvær 100m Cat 5e snúrur, annars vegar með RJ-45 kopar og hins vegar RJ-45 gull. Það þarf ekki annað en að pinga á milli 5-10 sinnum til að sjá muninn hvítt á svörtu.
Þess má samt geta að bæði kopar og silfur leiða betur en gull. Tengin eru bara gullhúðuð vegna þess að bæði koparinn og silfrið tærist.
Sent: Mið 23. Nóv 2005 22:16
af DoRi-
ég stelfni á X-Fi Fatil1ty einhvern tímann bráðlega
Sent: Mið 23. Nóv 2005 22:37
af gnarr
hilmar_jonsson skrifaði:gnarr skrifaði:jú. kaplar sem senda stafrænt græða líka á þessu. með gullhúðum tengjum kemst kanski 99.9% af gögnunum í gegn í fyrstu tilraun, meðan að með ál tengjum kemst 95% í gegn í fyrstu tilraun. þetta þýðir það að maður græðir kanski 5% hraða bara á tengjunum.
(þessar tölur eru bara bull hjá mér.. ég veit ekkert hverjar raunverulegar tölur eru)
Ef einhvern langar að prufa þetta sjálfur þá mæli ég bara með að nota tvær tölvur með Tx base network og tvær 100m Cat 5e snúrur, annars vegar með RJ-45 kopar og hins vegar RJ-45 gull. Það þarf ekki annað en að pinga á milli 5-10 sinnum til að sjá muninn hvítt á svörtu.
Þess má samt geta að bæði kopar og silfur leiða betur en gull. Tengin eru bara gullhúðuð vegna þess að bæði koparinn og silfrið tærist.
Alltaf lærir maður eitthvað nýtt
Sent: Mið 23. Nóv 2005 23:29
af hilmar_jonsson
Demantur er með mesta leiðni skv.
þessu.
Sent: Mið 23. Nóv 2005 23:32
af hilmar_jonsson
Pæling bara hvað maður myndi græða á því, ég held að maður græði lítið sem ekkert á og þar að auki er (kannski ekki fræðilega en samt) ómögulegt að slípa demant þannig að hann verði hentugur í þetta verk.
Sent: Mið 23. Nóv 2005 23:33
af Veit Ekki
hilmar_jonsson skrifaði:Pæling bara hvað maður myndi græða á því, ég held að maður græði lítið sem ekkert á og þar að auki er (kannski ekki fræðilega en samt) ómögulegt að slípa demant þannig að hann verði hentugur í þetta verk.
Demantur er strekasta efni í heimi og því þarf annan demant til að slípa demant.
Sent: Fim 24. Nóv 2005 00:35
af ICM
Hörde skrifaði:Keypti mér X-fi XtremeMusic um daginn, og það er mikill munur á því og Audigy1 sem ég var með fyrir þó þessi "crystalizer" sé reyndar helvítis djók. Og ef þið notið headphone í leikjum, þá er þrívíddareffektinn miklu betri í X-fi en Audigy1 og 2.
Þú verður að passa þig að hafa ekki kveikt á EAX effects og þetta 7.1 up-mix rusl meðan þú ert með crystalizer í gangi. Af óútskýranlegri ástæðu er kveikt á því by default og það hljómar hræðilega. Lestu einhver review, það elska allir crystalizer nema pro gaurar en þeir geta líka slökt á því.
Sent: Fim 24. Nóv 2005 03:10
af Vilezhout
það er hægt að framleiða demanta
hvað er að stoppa menn í að byrja að framleiða t.d. form einsog plötur þótt það væri auðvitað fáranlega dýrt auk þess að framleiðendur þyrftu sennilega að fjárfesta í nýjum og mun dýrari búnaði til þess
Sent: Fim 24. Nóv 2005 04:51
af ICM
hmm já þú vilt að það verði framleitt GÍFURLEGA stór vél til að þjappa saman nóg efni í demants leiðara
Þó það sé hægt að framleiða demanta þá er það ekki svona einfalt.
Sent: Fim 24. Nóv 2005 09:18
af gnarr
IceCaveman skrifaði:það elska allir crystalizer nema pro gaurar en þeir geta líka slökt á því.
Correction.. Pro hljóð gaurar elska þetta ábyggilega mest af öllum, en þeir vilja ekki hafa kveikt á þessu meðan þeir eru að vinna með tónlist.
halldor skrifaði:(note, öll kælikrem eru með X% miklu silfri í
)
Nei, það eru næstum því engin kælikrem með alvöru silfri í. Arctic Silver er hinsvegar 80-84% silfur, og svo eru örfá önnur sem eru líka með einhverju smá silfri í.
Sent: Fim 24. Nóv 2005 09:57
af Xyron
Veit Ekki skrifaði:hilmar_jonsson skrifaði:Pæling bara hvað maður myndi græða á því, ég held að maður græði lítið sem ekkert á og þar að auki er (kannski ekki fræðilega en samt) ómögulegt að slípa demant þannig að hann verði hentugur í þetta verk.
Demantur er strekasta efni í heimi og því þarf annan demant til að slípa demant.
Ekki alveg rétt hjá þér þar sem oftast nær er notað samblöndu af laserum og demants "sandpappír" til að slíppa þá til
svo má benda á það að það fengu tveir menn nóbelsverðlaunin í efnafræði árið 1996 fyrir að finna upp kolvetnissamband sem er með helmingi sterkari efnabindingu í sér heldur en demantar efnið er kallað Carbon 60 eða "Buckyballs", er 10 sinnum léttara en stál og samt sem áður 250 sinnum léttara...
Talað um það eigi að nota þetta í flugvélar, skotheld vesti & farartæki, svo á þetta að vera einn besti leiðarinn fyrir rafmagn.. sem gæti komið ýtt allri tækni lengra t.d. sem örgjafaleiðarar
Demantar eru samt ennþá náttúrulega sterkastir.. veit samt ekkert með hversu langt á leið rannsóknir á þessu efni eru komnar
Sá þátt í sjónvarpinu fyrir einhverju síðan þar sem ofurhitað var demant með svona "blowtorch" og síðan látinn detta ofan í súrefni í vökvaformi, og þar sem demantar eru gerðir úr kolvetni þá var hitamissmunurinn nóg til að mynda hvarf sem breyti öllum demantinum í CO2..
Kannski maður gefi konuni sinni Buckyballs hring í staðin fyrir demant
Sent: Fim 24. Nóv 2005 10:13
af Xyron
Hef ekkert rekist á verið á þessu, og held að það sé ekkert komið fram.. er náttúrulega ennþá bara verið að rannsaka þetta.. þetta verkefni er samt með mjög stórar fjárhæðir í rannsóknunarstyrk m.a. frá bna hernum og flughernum.. svo það ætti að flýta aðeins fyrir þessu
Sent: Fim 24. Nóv 2005 11:14
af urban
Xyron skrifaði: er 10 sinnum léttara en stál og samt sem áður 250 sinnum léttara...
öhhh.... ???
Sent: Fim 24. Nóv 2005 11:58
af bluntman
halldor skrifaði:Átti örugglega við 10x sterkara og 250x léttara... Eða hvað?
Ég myndi giska á 10x léttara og 250x sterkara.
Sent: Fim 24. Nóv 2005 14:05
af Xyron
Heh, já alveg rétt hjá ykkur.. tók ekki eftir þessu hjá mér
átti að vera allt að 250x sterkara og 10 léttara..
Sent: Fös 02. Des 2005 12:52
af Vilezhout
IceCaveman skrifaði:hmm já þú vilt að það verði framleitt GÍFURLEGA stór vél til að þjappa saman nóg efni í demants leiðara
Þó það sé hægt að framleiða demanta þá er það ekki svona einfalt.
þetta er ekki flókið ferli
þetta eru bara gífurlega þykkar stálblokkir sem þrýsta á kolefni
Sent: Fös 02. Des 2005 13:04
af Stebbi
Als ekki flókið að framleiða demanta, og þeir eru ekki dýrir heldur þ.e.a.s iðnaðardemantar.