Síða 3 af 3
Sent: Mán 10. Okt 2005 14:00
af Veit Ekki
Pandemic skrifaði:axyne skrifaði:finnst að yfir 1.000 pósta eigi maður rétt á því að ráða sínu eigin undirtitli.
Ekki biðja um það!!, það endaði ílla hjá mér
Þú fékkst allavega annan titil.
Sent: Mið 12. Okt 2005 23:23
af Birkir
Ef það á að setja eitthvað svona spes titla dæmi þá finnst mér 2000 póstar lágmark!
Sent: Fim 20. Okt 2005 14:28
af goldfinger
nei þúsund er fínt
Sent: Fös 21. Okt 2005 00:04
af gnarr
það eru einhverjir 3 eða eitthvað komnir yfir 1000 sem eru ekki stjórnendur..
annars er mér nokkuð sama um þetta.
Sent: Fös 21. Okt 2005 07:51
af DoRi-
ég væri til í þúsund pósta minimun
Sent: Fös 21. Okt 2005 09:25
af Stutturdreki
DoRi- skrifaði:ég væri til í þúsund pósta minimun
Ekki ég!
Fyrir utan að ég er ekki að fatta hvað þetta er svakalega eftirsóknarvert, þá finnst mér að það ætti að vera gæði umfram magn sem ræður hvort fólk fær þetta.
Svo, nema einstaklingar geti breytt sjálfir, þá á þetta eftir að valda óþarfa álagi á stjórnendur því það er bara tímaspursmál hvenær einhver(jir) sem skiptir um skoðun á klst. fresti fær 'rétt' til að fá custom titil.
Sent: Fös 21. Okt 2005 09:48
af gnarr
Ég held að það sé bara fínt að við breytum þessu hjá fólki sem biður um þetta og á það skilið.
Sent: Fös 21. Okt 2005 12:41
af CraZy
gnarr skrifaði:það eru einhverjir 3 eða eitthvað komnir yfir 1000 sem eru ekki stjórnendur..
annars er mér nokkuð sama um þetta.
tja eiga þeir sem eru komnir yfir 1000 það ekki skilið
en annars ef þetta væri svona þá ætti að miðast við 2k
en einsog á td. lost-forum þá ræður maður því allveg sjálfur bara við nyskráningu
Sent: Fös 21. Okt 2005 13:16
af Stutturdreki
Gáfulegast væri, IMHO, að tengja þetta við td. fjölda pósta á mánuði. Þá væri þetta svona forréttindi fyrir þá sem eru mjög activir, en ekki bara þá sem eru búnir að vera að í mörg ár..
Sent: Fös 21. Okt 2005 13:26
af gnarr
að tengja þetta að einhverju leiti við fjölda pósta yrði líklega bara til þess að fólk færi að skíta hverju sem er á spjallið. Ég vill frekar hafa þetta bara alveg ó-pósta tengt.
Sent: Fös 21. Okt 2005 13:46
af Veit Ekki
gnarr skrifaði:að tengja þetta að einhverju leiti við fjölda pósta yrði líklega bara til þess að fólk færi að skíta hverju sem er á spjallið. Ég vill frekar hafa þetta bara alveg ó-pósta tengt.
Held að það væri sniðugast að hafa þetta þannig að stjórnendur ráði hverjir fái sinn eigin titil. Þá eftir innihald og þannig eins og gnarr segir.
Allavega að geta þá valið um nokkur heiti.
Sent: Fös 21. Okt 2005 13:48
af Stutturdreki
Heh.. sva niðurstaðan er að hafa þetta bara óbreytt?
Sent: Fös 21. Okt 2005 14:54
af CraZy
noo :-/ en einsog Mitsuki segir; höldum keppni!
(hóst)
Sent: Fös 21. Okt 2005 16:05
af djjason
gnarr skrifaði:að tengja þetta að einhverju leiti við fjölda pósta yrði líklega bara til þess að fólk færi að skíta hverju sem er á spjallið. Ég vill frekar hafa þetta bara alveg ó-pósta tengt.
Mjög sammála þessu.....ef menn færu að drita hverju sem er hingað þá myndi það draga verulega úr gæðum vaktarinnar.
Sent: Fim 05. Jan 2006 05:13
af urban
jæja.... ákvað nú bara að endur vekja þennan þráð í staðin fyrir að stofna nýjan um þetta....
en hérna nú er ég að pæla í einu....
ég kem MJÖG !! reglulega hérna inn og á öllum tímum sólarhrings...
og það sem ég er að pæla er að er engin sjálfvirk afritunartaka komin í gagnið hérna ??
það sem kom mér af stað til að hugsa um þetta er það að núna er klukkan rúmlega 5 og það þýðir það að Hhugi.is er niðri vegna sjálfvirkar afritunar töku... en ég hef aldrei séð að það komi eitthvað svoleiðist hérna...
ég er nú bara að pæla í þessu þar sem að það væri alve ghrikalegt ef þetta kæmi fyrir aftur það sem kom fyrir hérna "um dagin" (man ekki nákvæmlega hvenar það var)