Síða 3 af 19

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Fös 26. Feb 2021 22:57
af zetor
mjolkurdreytill skrifaði:Mig langar að trúa því að hann sé yfir 5 miðað við hvað allt nötraði hérna.

4,7 eru fyrstu tölur samt.
þetta er allavega stærsta talan á alert maps í dag

http://hraun.vedur.is/ja/alert/2021/feb/26/alert.mag

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Fös 26. Feb 2021 22:58
af GuðjónR
Drunurnar eru svo háværar að þær minna mig á þrumur sem koma við eldingar.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Fös 26. Feb 2021 23:02
af jonfr1900
Síðasti jarðskjálftinn náði yfir skjáinn hjá mér og ég er í ~190 km fjarlægð frá upptökum jarðskjálftans.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Fös 26. Feb 2021 23:20
af jonsig
Svona er að borga ekki nóg í þjóðkirkjuna.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Fös 26. Feb 2021 23:25
af mjolkurdreytill
Fyrstu tölur voru 4,6 og svo sagður 4,8 og núna á síðu veðurstofunnar er hann sagður 4,9
vedur.is skrifaði:4,9 26.feb. 22:38:43 Yfirfarinn 3,1 km SV af Keili
Feitletrun er mín.

P.S. Fyndið að skoða orkuna sem er að losna í dag samanborið við í gær. 10 skjálftar yfir 4 í dag föstudag en engir í gær fimmtudag.

Mynd

P.P.S.

Mynd

Skjálftarnir í dag 26.feb sem eru 3,5 að stærð og yfir.

Það vantar örnefni á myndina en þið ættuð að sjá hvaða fjall er Keilir, í Norð Austri.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Fös 26. Feb 2021 23:59
af jonfr1900
Jarðvísindadeild Háskóla Íslands er búin að gefa út líkleg gossvæði og líklegt hraun rennsli út frá þeim líkönum.

Telja lík­legustu gossvæðin við Trölla­dyngju og að hraun flæði um mitt Reykja­nesið (Vísir.is)

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Lau 27. Feb 2021 08:22
af mjolkurdreytill
Þetta eru búnir að vera áhugaverðir 24 tímar.

Vaknaði við skjálftann núna í morgun. 5,2 segir veðurstofan rn skjálftinn er óyfirfarinn. Finnst líklegt að talan hækki frekar en lækki.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Lau 27. Feb 2021 09:21
af Hizzman
jonfr1900 skrifaði:Jarðvísindadeild Háskóla Íslands er búin að gefa út líkleg gossvæði og líklegt hraun rennsli út frá þeim líkönum.

Telja lík­legustu gossvæðin við Trölla­dyngju og að hraun flæði um mitt Reykja­nesið (Vísir.is)
vá, vonadi ekki. það væri alveg skelfilegt að missa Bláa Lónið og að fá hraun yfir Reykjanesbrautina akkúrat þegar covid er búið..

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Lau 27. Feb 2021 09:27
af mjolkurdreytill
Mynd

Bláa lónið ætti að sleppa. Reykjanesbraut ekki svo mikið.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Lau 27. Feb 2021 10:17
af Hizzman
Einhver illa staðsett sprunga sem opnast gæti tæmt lónið!

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Lau 27. Feb 2021 11:51
af GuðjónR
Hizzman skrifaði:Einhver illa staðsett sprunga sem opnast gæti tæmt lónið!
Ekki myndi ég gráta það.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Lau 27. Feb 2021 13:14
af rapport
Úff, þetta er ekkert spennandi. Maður vonar bara að sem minnst verði úr þessu.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Lau 27. Feb 2021 13:15
af JVJV
GuðjónR skrifaði:
Hizzman skrifaði:Einhver illa staðsett sprunga sem opnast gæti tæmt lónið!
Ekki myndi ég gráta það.
Örugglega enginn að búast við því að þú grátir.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Lau 27. Feb 2021 13:24
af himminn
mjolkurdreytill skrifaði:Mynd

Bláa lónið ætti að sleppa. Reykjanesbraut ekki svo mikið.
Það mætti alveg skoða lausnir eins og að sleppa vatni yfir hraunið til að kæla og hægja á flæði til að bjarga brautinni ef til þess kæmi. Það var gert í Eyjum á sínum tíma, dælt úr sjónum og sprautað á hraunið til bjarga húsum.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Lau 27. Feb 2021 16:57
af mjolkurdreytill
Mynd

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Lau 27. Feb 2021 17:25
af Revenant
himminn skrifaði:Það mætti alveg skoða lausnir eins og að sleppa vatni yfir hraunið til að kæla og hægja á flæði til að bjarga brautinni ef til þess kæmi. Það var gert í Eyjum á sínum tíma, dælt úr sjónum og sprautað á hraunið til bjarga húsum.
Það verður fyrst að gera umhverfismat sem kannar áhrif framkvæmdarinnar á lífríki, áhrif á grunnvatn, sjónræn áhrif o.fl.
Síðan þarf umhverfismatið að fara í umsagnarferli með öllu því sem tilheyrir. Síðan má auðvitað kæra umhverfismatið. :guy

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Lau 27. Feb 2021 17:54
af jonfr1900
Það mun ekkert stöðva hraun að fara yfir Reykjanesbraut ef það rennur þá leið.

Það er núna aðeins minni jarðskjálftavirkni á þessu svæði eins og var í gær og fyrradag. Þessi minnkun á jarðskjálftum byrjaði um klukkan 14:00 sýnist mér og mun vara í einhverja klukkutíma áður en virknin fer að aukast aftur ef þessi virkni hagar sér eins og hún verið að gera síðan á Miðvikudaginn.

Það er ennþá mikil hætta á stórum jarðskjálfta nærri höfuðborgarsvæðinu. Það er jarðskjálfti sem er milli Mw6,0 til Mw6,5 að stærð.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Lau 27. Feb 2021 18:27
af appel
jonfr1900 skrifaði:Það mun ekkert stöðva hraun að fara yfir Reykjanesbraut ef það rennur þá leið.

Jújú, hefuru ekki horft á myndina Volcano?

Væri ekki sniðugt að kalla út slökkviliðið á keflavíkurflugvelli einnig og dæla upp sjó og sprauta á hraunið til að kæla það? svo má auðvitað grafa skurði og gera svona veggi.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Lau 27. Feb 2021 21:31
af jonfr1900
Það vill gleymast í þessum jarðskjálftum sem eru núna í gangi að þessi atburðarrás er búin að vera í gangi síðan 26-Janúar-2020. Allan þann tíma síðan hafa verið jarðskjálftar þarna svo til samfleytt. Það hafa ekki komið margir dagar án nokkrar jarðskjálftavirkni.Í fyrra komu fram nokkrir jarðskjálftar með stærðina Mw4,6 til Mw5,0 og því ljóst að jarðskjálftahrinan sem er í gangi núna tengist beint kvikusöfnunni við Grindavík.

Dýpi jarðskjálftanna sem eru núna er mest um 8 km sem segir mér að kvikan er ennþá á því dýpi og ekki farin að leita upp en það gæti hugsanlega breyst og þá mjög líklega með frekar stórum jarðskjálfta á því svæði þar sem núna hefur verið mesta jarðskjálftavirknin.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Lau 27. Feb 2021 21:37
af himminn
appel skrifaði:
jonfr1900 skrifaði:Það mun ekkert stöðva hraun að fara yfir Reykjanesbraut ef það rennur þá leið.

Það er núna aðeins minni jarðskjálftavirkni á þessu svæði eins og var í gær og fyrradag. Þessi minnkun á jarðskjálftum byrjaði um klukkan 14:00 sýnist mér og mun vara í einhverja klukkutíma áður en virknin fer að aukast aftur ef þessi virkni hagar sér eins og hún verið að gera síðan á Miðvikudaginn.

Það er ennþá mikil hætta á stórum jarðskjálfta nærri höfuðborgarsvæðinu. Það er jarðskjálfti sem er milli Mw6,0 til Mw6,5 að stærð.
Jújú, hefuru ekki horft á myndina Volcano?

Væri ekki sniðugt að kalla út slökkviliðið á keflavíkurflugvelli einnig og dæla upp sjó og sprauta á hraunið til að kæla það? svo má auðvitað grafa skurði og gera svona veggi.
Spálíkan frá háskólanum sýnir að þeir óttist mest að gos eigi sér stað miðlægt á Reykjanesinu og nokkuð langt frá brautinni. Á myndinni frá jonfr1900 eru þetta einhverjir lokataumar af hraunrennsli sem fara yfir brautina. Sömuleiðis segja fræðingar að það séu litlar líkur á einhverju hamfaragosi og þá ætti að vera nægur tími til að huga að einhverskonar viðbúnaði.
Held að það að hraun renni yfir brautina sé svipað mikið "worst case" og að það byrji hreinlega að gjósa á miðjum vegi.

Miðað við mikilvægi fyrir þúsundir íbúa á Reykjanesi og aðgengi að flugvellinum er ekkert fáránlegt að ráðast í framkvæmdir ef til þess kemur.

Hérna er mynd frá Eyjagosinu. Finnst þetta alls ekkert galin hugmynd.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Lau 27. Feb 2021 21:53
af jonfr1900
Hérna er mynd sem ég fann á Twitter og hægt er að sjá upprunalegt innlegg hérna.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Lau 27. Feb 2021 21:55
af mjolkurdreytill
Gosið í Heimaey er um það bil eina tilfellið þar sem tekist hefur að stöðva hraunstraum með því að kæla það með vatni. Í því tilfelli var hraunið sem myndaðist svokallað apalhraun sem er miklu seigara og ferðast ekki eins auðveldlega.

HItt afbrigðið kallast helluhraun og er ekki eins seigt og getur ferðast mun lengra en apalhraun. Ástæðan fyrir því að það getur ferðast svona langt er sú að hraunið flæðir ekki á yfirborðinu, það flæðir neðanjarðar í gegnum sjálft sig. Að ætla að stöðva slíkan straum með því að sprauta á það vatni er gagnslausara en menn skyldu ætla.

Dæmigerðu Havaí hraunin sem fólk sér oft myndbönd af eru helluhraun. Þau leggja oft undir sig byggð á Havaí og þar er ekki gerð nein tilraun til þess að stöðva þau með vatni, af fenginni reynslu.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Lau 27. Feb 2021 22:51
af appel
Hvað með að sprengja svæðið upp þar sem hraunið ferðast svona neðanjarðar. Hef séð svona göng, hella, á reykjanesinu.. margoft farið inn í svona. Oftast er þetta ekki mjög djúpt niðri í jörðunni. Auðveldlega hægt að sprengja upp og svo fá Tommy Lee Jones til að stýra restinni.

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Lau 27. Feb 2021 22:55
af hfwf
Myndu K-blokkir ekki vísa hrauninu burt , yrði svo að það mundi gjósa?

Re: Jarðskjálftar...

Sent: Lau 27. Feb 2021 23:17
af mjolkurdreytill