Síða 3 af 4

Re: TS RTX 3080

Sent: Þri 20. Okt 2020 20:12
af jonsig
Gassi skrifaði:Finnst rosa leitt að sjá vaktara taka manninn af lífi fyrir að reyna næla ser i sma auka pening, þetta er EKKI FÁANLEGT og sennilega ekkert í bráð, og það besta i boði í dag, ef ég ætti pening til að kasta í þetta þá myndi ég gera það! Supply/demand mér finnst rosalega skrítið hvernig vaktarar taka þessu hefði haldið að flestir meðalgreindir menn skildu conceptið, á meðan hann kemur með nytt kort í lagi og í ábyrgð er þetta honest buisness, hann er ekki að svindla á neinum.

Tækifærissinni, og hvað með það? Hann má verðleggja þetta eins og hann vill, my honest opinion!
Líkja þessu við lífsnauðsynleg lyf og siðblindu? Absúrd!
Jealousy? I THINK SO.

Gangi þer vel með soluna vinur

Þetta er með því heimskulegra sem ég hef lesið í langan tíma.
En þetta virðist alltaf veiða inn einhver "læk" haltu áfram dyggðaskreytinu =D>

En ef þig vantar fleirri dæmi um scalpera, þá kæmi mér ekkert að óvart að þessi væri að hugsa um að hamstra grímur og sótthreinsispritt til að selja lífhræddu fólki á bland :evillaugh

Re: TS RTX 3080

Sent: Þri 20. Okt 2020 21:20
af Arctic
steinar993 skrifaði:
Það að þú sentir mynd af kassa sannar ekki að þú sért með skjákortið. ég keypti 1070 ti um daginn af manni hér á vaktinni og hann bauðst til að gefa mér kassann því ég kom með brandara um að selja 1070 ti í þessum kassa á ebay.

Edit: kassinn var s.s. 3080 frá kísildal.[/quote
ég er með kort og kvittun ef þú hefur áhuga á að kaupa kortið bara bjóða og ef ég samþykki þá getum við hist á hofuðborgarsvæðinu og gért beina sölu

Re: TS RTX 3080

Sent: Þri 20. Okt 2020 21:29
af k0fuz
jonsig skrifaði:Þetta er með því heimskulegra sem ég hef lesið í langan tíma.
En þetta virðist alltaf veiða inn einhver "læk" haltu áfram dyggðaskreytinu =D>
Haltu áfram að grafa [-o< þú skilur ekki einu sinni framboð og eftirspurnar lögmálið :D

Re: TS RTX 3080

Sent: Þri 20. Okt 2020 21:42
af jonsig
k0fuz skrifaði:
jonsig skrifaði:Þetta er með því heimskulegra sem ég hef lesið í langan tíma.
En þetta virðist alltaf veiða inn einhver "læk" haltu áfram dyggðaskreytinu =D>
Haltu áfram að grafa [-o< þú skilur ekki einu sinni framboð og eftirspurnar lögmálið :D
Skilur þú það ? Svona eitthvað fyrir utan hvernig það er orðað ?

Re: TS RTX 3080

Sent: Þri 20. Okt 2020 23:03
af nonesenze
Það a ekki að hvetja svona viðskipti. Sama hvað fólki langar í þetta á að sniðganga svona. Annars verður meira og meira af þessu. Alveg eins business sem er búið að eyðileggja normal verð a tónleikum og fleiru. Mæli með að bjóða max fullt verð útúr búð og ekki krónu meira

Re: TS RTX 3080

Sent: Mið 21. Okt 2020 00:19
af steinar993
Arctic skrifaði:
steinar993 skrifaði:
Það að þú sentir mynd af kassa sannar ekki að þú sért með skjákortið. ég keypti 1070 ti um daginn af manni hér á vaktinni og hann bauðst til að gefa mér kassann því ég kom með brandara um að selja 1070 ti í þessum kassa á ebay.

Edit: kassinn var s.s. 3080 frá kísildal.[/quote
ég er með kort og kvittun ef þú hefur áhuga á að kaupa kortið bara bjóða og ef ég samþykki þá getum við hist á hofuðborgarsvæðinu og gért beina sölu
HAHA okei og hvað er að því að pósta mynd af kortinu sjálfu?

Re: TS RTX 3080

Sent: Mið 21. Okt 2020 08:51
af BugsyB
svona i anda þessa póst þá býð ég 80k

Re: TS RTX 3080

Sent: Mið 21. Okt 2020 10:06
af Hauxon
jonsig skrifaði:
Semboy skrifaði:ég sé ekkert að þessu marr :( Ég mundi gera það sama. Ég er sáttur með mina vonbrigðu 2080ti
"I.."
Þetta eru týpan sem myndi selja þér insulín á 5x verði ef það væri skortur á því og svæfi vært eftir það.
Þetta er bara prinsipp mál hjá mönnum að halda vaktinni sem griðarstað frá svona liði.
Maður myndi nú varla telja "skort" á skjákorti til neyðarástands :lol: ...en sammála með þráðinn, frekar glatað.

Re: TS RTX 3080

Sent: Mið 21. Okt 2020 10:10
af jonsig
Hauxon skrifaði:
jonsig skrifaði:
Semboy skrifaði:ég sé ekkert að þessu marr :( Ég mundi gera það sama. Ég er sáttur með mina vonbrigðu 2080ti
"I.."
Þetta eru týpan sem myndi selja þér insulín á 5x verði ef það væri skortur á því og svæfi vært eftir það.
Þetta er bara prinsipp mál hjá mönnum að halda vaktinni sem griðarstað frá svona liði.
Maður myndi nú varla telja "skort" á skjákorti til neyðarástands :lol: ...en sammála með þráðinn, frekar glatað.
Flestir gera sér nú grein fyrir að það er fólk með allskonar raskanir þarna úti sem hægt er að nýta sér, fólk með áráttur getur upplifað allan fjandan sem lífs nauðsyn. Mér finnst líklegt að efnameira fólk sé nú þegar búið að redda sér korti fyrir löngu gegnum aðra scalpera á ebay.

Re: TS RTX 3080

Sent: Mið 21. Okt 2020 11:02
af GullMoli
Almáttugur..

Þið þurfið aðeins að anda léttar.

Mér finnst allt í góðu að vera á varðbergi þegar það kemur að óeðlilegri verðlagningu, og láta vita að verðið sé of hátt. Búið.
Þráðarhöfundur, sem og aðrir, sjá það og meta svo framhaldið. Kannski lækkar hann verðið, eða ekki, og mögulegir kaupendur eru upplýstir um stöðuna.

Þetta er ekki nauðsynjavara, það ÞARF enginn þetta skjákort. Skil ekki alveg hugsunarháttinn sem leiðir fólk í að bera þetta saman við klósettpappír eða annað sambærilegt.

Kannski er hann að njóta þess að nota það en er til í að losa sig við það ef einhver býður þetta verð, annars ekki, ég veit ekki. Honum er amk alveg frjálst að halda þessu verði, það vita allir hvað þessi kort kosta út í búð. Ef það vill svo ólíklega til að einhver kaupi kortið þá er það einhver sem hefur greinilega þannig pening á lausu og er til í að borga fyrir það að fá það núna.

Re: TS RTX 3080

Sent: Mið 21. Okt 2020 11:20
af Labtec
Þessi þráður er samt ekki eins skemtilegur og gæjinn sem vildi 240+ þús fyrir 2080 Ti og afhenda seinna þegar 3000 linan væntanlega kemur

Re: TS RTX 3080

Sent: Mið 21. Okt 2020 14:14
af Skrekkur
Bland reikningurinn er frekar nýr líka (13. okt) ... og þetta er textinn í auglýsingunni
"RTX 3080 til sölu 250.000+ kaupandi hittir mig personulega ekkert leggja inna rkn og senda uta land bull aðeins persónuleg viðskifti"

Get ekki sagt að neitt þetta sé sérlega hughreystandi þó svo að ég væri tilbúinn að borga svona háa upphæð til að fá nota bene ódýrustu útgáfuna af þessu korti 1-2 mánuðum fyrr en ella.

Re: TS RTX 3080

Sent: Mið 21. Okt 2020 14:35
af KanDoo
Er ekki kominn tími á að banna þennan jon gaur? Alltaf með leiðindi :pjuke :pjuke

Re: TS RTX 3080

Sent: Mið 21. Okt 2020 14:40
af Tbot
KanDoo skrifaði:Er ekki kominn tími á að banna þennan jon gaur? Alltaf með leiðindi :pjuke :pjuke
50 póstar á 11 árum á móti 3000 á 12 árum.

Ert ekki mjög virkur á þessu spjallborði í gegnum árum en vilt að aðrir séu bannaðir sem pósta meira!

Re: TS RTX 3080

Sent: Mið 21. Okt 2020 15:05
af DaRKSTaR
segja mína skoðun á þessu,, gaurinn er á fresh account bæði hér og bland, hann segir á bland bara cash, engar millifærslur eða neitt svoleiðis, bara hittast face to face.

ég er 100% á því að hann hafi ekkert kort til að selja, sé bara að reina að lokka einhvern með seðlabúnt til að hitta sig út í móa þarna við vogar til að ræna hann, hann hefur ekki svomikið sýnt mynd af kortinu og sönnun að hann sé með það og mynd af nótunni þó svo hann myndi þurrka út nafnið, virkar á mig sem scam.

margir að leika sér að því víða um heiminn að auglýsa kort og scamma liðið.

Re: TS RTX 3080

Sent: Mið 21. Okt 2020 16:01
af jonsig
KanDoo skrifaði:Er ekki kominn tími á að banna þennan jon gaur? Alltaf með leiðindi :pjuke :pjuke
Eftir öll þessi ár á vaktinni hefur hann ekki lært "dont feed the troll :)" í þessu tilviki er scalper fórnarlambið og þá fær hann ælupest :megasmile

Re: TS RTX 3080

Sent: Fim 22. Okt 2020 01:16
af Mossi__
DaRKSTaR skrifaði: þarna við vogar
Vó vó vó... Af hverju við Voga?

Við Suðurnesjamenn erum ekkert allir hyski.

:guy :guy :guy


@Kandoo:
JónSig er mjög neðarlega á listanum um þá sem ættu að banna.

Og mér finnst einmitt gott við Vaktina hvað fólk er duglegt að passa upp á scams og úthýsa scammers.

Re: TS RTX 3080

Sent: Fim 22. Okt 2020 09:28
af dabbihall
þessi þráður er að sanna hvers virði vaktin er í kaupum og sölum á notuðum búnaði á netinu. kemst enginn upp með neitt kjaftæði og menn leitast við að benda á það sem mætti betur fara í kaup/sölu þráðum og menn komast ekki upp með neitt bull. Ef menn ætla að stunda scalping þá er þetta ekki staðurinn. myndi ekki banna menn fyrir það, frekar láta þá finna að svona virkar ekki hérna svo þetta endi ekki eins og bland.

Re: TS RTX 3080

Sent: Fim 22. Okt 2020 10:07
af Zakkimann
Varðandi þetta mál þá finnst mér allt í lagi þegar að menn eru að selja kort á hvaða verði sem að þeir vilja. Eitt kort er ekki að fara drepa neinn en þetta væri vandamál ef að menn væru að kaupa upp mörg kort til þess að selja þau á rugl verði. Eina sem að skiptir mig máli hérna er að ef einhver auglýsir vöru hérna á mjög háu verði sé komið í veg fyrir það að þeir sem að eru óupplýstir um raunverð vörunnar séu látnir vita hvaða verð er eðlilegt.
Ég fatta það alveg að margir séu ósáttir með þessa hegðun en besta leiðin til þess að bregðast við er með því að sýna fólki hvað eðlilegt verð er og sýna aðrar hagstæðari leiðir til þess að kaupa vöruna. Þannig getum við eflað heilbrygðara samfélag á Vaktinni og komið í veg fyrir upphituð kjarnorðastríð.

Re: TS RTX 3080

Sent: Fös 23. Okt 2020 13:31
af Arctic
bump en til og kvittun fylgir kaupum

Re: TS RTX 3080

Sent: Fös 23. Okt 2020 13:36
af Mossi__
Ég var búinn að gera þér tilboð sem var aldrei ansað.

75.000 og ég sæki.

Re: TS RTX 3080

Sent: Fös 23. Okt 2020 14:06
af jonsig
Mossi__ skrifaði:
@Kandoo:
JónSig er mjög neðarlega á listanum um þá sem ættu að banna.

Og mér finnst einmitt gott við Vaktina hvað fólk er duglegt að passa upp á scams og úthýsa scammers.
Fyrir utan hvað það yrði leiðinlegt hérna á vaktinni ef það væri ekki fyrir mig til að hræra í mannskapnum :evillaugh
Svo hver saknar ekki user: hakkarin

Re: TS RTX 3080

Sent: Fös 23. Okt 2020 19:25
af svanur08
Þvílikt væl út af einu skjákorti, eruði ekki fullorðnir menn? róa sig sko.

Re: TS RTX 3080

Sent: Fös 23. Okt 2020 22:25
af Nariur
Mossi__ skrifaði:Ég var búinn að gera þér tilboð sem var aldrei ansað.

75.000 og ég sæki.
Neineinei. Ég var búinn að yfirbjóða þig. 101.000.
Ég fékk samt heldur ekkert svar.

Re: TS RTX 3080

Sent: Fös 23. Okt 2020 23:00
af J1nX
Fyndið líka hvað hann hefði auðveldlega getað komið í veg fyrir flestöll kommentin hérna með því að taka bara mynd af skjákortinu og kvittuninni til að sýna fram á að þetta sé legit.