Síða 3 af 3

Sent: Sun 09. Jan 2005 16:48
af Hörde
Bara að benda á að prescott er mjög gráðugur á orku, og 360w er í lægri kantinum. Ef þú myndir pósta hversu mörg ömp eru á hverri línu (það stendur á psu-inum sjálfum, þeas +5v +12v +3.3v os.frv.) þá myndi það hjálpa gríðarlega upp á að komast að því hvort þetta sé psu vandamál.

Sent: Sun 09. Jan 2005 17:39
af skipio
360W er alveg nóg.

Sent: Sun 09. Jan 2005 17:48
af hahallur
Er kannski bara 360w peak power á honum ?

Sent: Sun 09. Jan 2005 18:14
af Hörde
Það eru ekki vöttin sem skipta máli. Hann gæti þess vegna verið með 1000w psu, en það myndi ekki skipta neinu máli ef það væru bara 10 ömp á einhverri línunni. Ég er með 400w psu sem er með 35 ömp á 5v línunni og 22 ömp á 3.3v línunni. Gallinn er sá að hann er bara með 15 ömp á 12v línunni, sem powerar bæði skjákortið og örgjörvann. Kannastu við 4 pinna vírinn sem fer úr psu-inum í móðurborðið? Það er einmitt 12v lína.

Skv. þessari mynd eru það +3.3v og hugsanlega +12v línurnar sem eru ekki að skaffa nógu mikla orku. Ef +3.3v línan er í 3.14v idle, þá má guð vita hvað það fer langt niður í leikjum þar sem agp-portið notar +3.3v línuna.

Mynd

Þess vegna vil ég vita hversu mörg amper eru á hverri línu.

Sent: Sun 09. Jan 2005 18:51
af joihei
35A á 5V, 28A á 3,3V og 17A á 12V

annars er ég orðinn nokkuð viss um að þetta sé aflgjafinn vegna þess að ég fór með tölvuna í annað hús og þar var tölvan tengd við 300W og gekk frá 19:00og þangað til 13:00 næsta dag.

þá er spurningin hvaða PSU á maður að fá sér :?:

Sent: Sun 09. Jan 2005 19:34
af Hörde
joihei skrifaði:35A á 5V, 28A á 3,3V og 17A á 12V

annars er ég orðinn nokkuð viss um að þetta sé aflgjafinn vegna þess að ég fór með tölvuna í annað hús og þar var tölvan tengd við 300W og gekk frá 19:00og þangað til 13:00 næsta dag.

þá er spurningin hvaða PSU á maður að fá sér :?:
Voru þetta allt plús tölur? Samkvæmt þessu ætti aflgjafinn að vera 470w.

Alla vega, ef PSU-inn var eini munurinn, þá er það væntanlega vandamálið. En áður en þú kaupir nýjan, þá væri sjálfsagt þess virði að prófa þinn aftur. Kannski var hann bara illa tengdur (sem hefur gerst).

Edit: Ef þú þarft nýjan PSU, sjáðu bara til þess að +12v línan hafi ekki of fá amper. Hér er ágætis grein fyrir þig: http://www.bleedinedge.com/guides/psu_s ... ct_01.html

og hér er spjallborð tileinkað aflgjöfum: http://forums.extremeoverclocking.com/f ... .php?f=231

Sent: Fim 13. Jan 2005 15:41
af joihei
Þetta er aflgjafinn minn.

Sent: Fim 13. Jan 2005 15:49
af hahallur
Það er bara 360w peak power á honum er það ekki ?

Sent: Fim 13. Jan 2005 19:33
af gnarr
er 1.3 vcore ekki alltof lítið á prescott? ég hélt að það væri allaveganna 1.4

Sent: Sun 16. Jan 2005 20:55
af Ice master
ég myndi gá hvað voltin væri i cpu en ertu að yffirklukka eitthvað ? en ef þetta heldur bara áfram að gerast þá mundi ég fara með vélina i viðgerð :wink: hafdu engar áhyggjur vinur þetta mun lagast hjá þér \:D/

Sent: Sun 16. Jan 2005 22:39
af joihei
Ég er ekki með neitt overclockað.

Sent: Sun 16. Jan 2005 23:11
af Ice master
en fardu bara með hana i viðgerð þá kostar 3000 þús kall cirka :)

Sent: Mán 17. Jan 2005 07:34
af kristjanm
Ice master skrifaði:en fardu bara með hana i viðgerð þá kostar 3000 þús kall cirka :)
Nei, hann má alveg búast við að fá reikning yfir 10 þúsund.

Tölvuviðgerðir eru rándýrar ef þú vissir það ekki.

joihei: Taktu örgjörvaheatsinkið af og settu það aftur á með einhverju góðu hitaleiðandi kremi, athugaðu hvort að það virkar ekki.

Sent: Mán 17. Jan 2005 07:58
af gnarr
athugaðu hver spennan á örgjörfanum á að vera! ég er næstum 100% viss um að 1.3v er alltof lítið!

Sent: Mán 17. Jan 2005 14:03
af Ice master
já það fer lika eftir þvi hvað sem er að :wink:

Sent: Mán 17. Jan 2005 14:13
af Hörde
gnarr skrifaði:athugaðu hver spennan á örgjörfanum á að vera! ég er næstum 100% viss um að 1.3v er alltof lítið!
Bæði Northwood og Prescott eiga það til að falla örlítið undir álagi, en ef hann er 1.3v idle, þá er það kannski rétt hjá þér.

Sent: Mán 17. Jan 2005 14:45
af gnarr
ég veit að northwood á ða vera á 1.5-1.55v og ég held að það sé rétt hja mér að prescott eigi að vera á 1.4-1.45v

Sent: Mán 17. Jan 2005 14:52
af Hörde
gnarr skrifaði:ég veit að northwood á ða vera á 1.5-1.55v og ég held að það sé rétt hja mér að prescott eigi að vera á 1.4-1.45v
Já, ég meinti það. Prescott á að vera 1.4v, en ef hann fellur í 1.3v undir álagi, þá "ætti" það að vera í lagi. En ef hann gerir það í idle, þá þýðir það að hann sé ekki að fá næga orku, eða að einhverjir aðrir hlutir í tölvunni séu ekki að fá nóga orku heldur.

Það að tölvan hafi gengið vel með öðrum aflgjafa ýtir undir það.

Sent: Mán 17. Jan 2005 15:14
af gnarr
það gæti líka verið að þetta séu afleiðingar fikts, og að hann sé hreinlega bara stilltur á 1.3 í bios.

Sent: Mið 19. Jan 2005 17:59
af Ice master
nádiru að fixxa þessu ?

Sent: Sun 23. Jan 2005 11:16
af joihei
Ég fór með psuið í búðina þar sem ég keipti það.
Eftir nokkra daga létu þeir vita og sögðu að psuið væri allt í lagi.
Ég fékk psuið aftur á fimmtudaginn og ég tengdi það og viti menn tölvan hefur ennþá ekki drepið á sér eins og hún gerði.
T.d. í gær var hún í gangi í 14klst og 45min.
ÉG veit ekkert hvað var að :oops:

Sent: Sun 23. Jan 2005 11:50
af CraZy
hafa ekki bara einhverjar tengingar verið lausar?

Sent: Fim 10. Feb 2005 15:23
af Gestir
Ein spurning hérna beint á ykkur ....

ég var að fá mér Intel... 3.04 prescott.. voða fín græa og allt það .. en þetta hitnar ekkert smáræði.. ég er með coolermaster viftu úr att.is sem hann sagði að þeirt notuðu alltaf við 3.0 ghz örrana... en ég er ekkert að gera neitt heldur bara mallar vélin IDLE en ég notaði SiSoft Sandra 2005 og mér sýnist vélin vera í 60° !!!!!!

er það ekki insane ?? AMD inn minn gamli (2500XP) var mest í um 52° þá eftir talsverða keyrslu ...

hmm.. help me please.....

Sent: Fim 10. Feb 2005 20:10
af OverClocker
joihei skrifaði:Ég fór með psuið í búðina þar sem ég keipti það.
Eftir nokkra daga létu þeir vita og sögðu að psuið væri allt í lagi.
Ég fékk psuið aftur á fimmtudaginn og ég tengdi það og viti menn tölvan hefur ennþá ekki drepið á sér eins og hún gerði.
T.d. í gær var hún í gangi í 14klst og 45min.
ÉG veit ekkert hvað var að :oops:
Létu þeir þig borga skoðunargjald?
Var ekki einhver gömul saga um að Tölvulistinn skipti gölluðum vörum út og segði að þær væru í lagi og rukkuðu skoðunargjald?

Sent: Fös 11. Feb 2005 19:00
af joihei
Ég borgaði ekkert skoðunar gjald.
Bara sendingargjald (ég á ekki heima í Reykjavík)
Svo var þetta ekki tölvulistinn heldur var þetta att.