Síða 3 af 3

Re: Laptop.is - Fartölvuleitarvélin

Sent: Fös 01. Apr 2016 02:05
af ZiRiuS
Glæsileg vefsíða!

Ég tók samt eftir því að það vantar Microsoft sem framleiðenda. Ég veit að tæknilega eru þeir bara með spjaldtölvur en þú ert með Asus og Lenovo sem eru tæknilega með spjaldtðlvur líka.

Re: Laptop.is - Fartölvuleitarvélin

Sent: Fös 01. Apr 2016 07:45
af Klemmi
dori skrifaði:Smá ruglingur þarna í footernum.
DJOli skrifaði:það stendur © 2016 laptops.is neðst í vinstra horninu ;)
Þakka kærlega fyrir ábendinguna, búinn að lagfæra :D
ZiRiuS skrifaði:Ég tók samt eftir því að það vantar Microsoft sem framleiðenda. Ég veit að tæknilega eru þeir bara með spjaldtölvur en þú ert með Asus og Lenovo sem eru tæknilega með spjaldtðlvur líka.
Það er ekki útaf neinum fordómum í mér, framleiðendurnir uppfærast sjálfkrafa út frá því hverjir eiga tölvur sem eru skráðar undir fartölvuflokkana hjá verslunum :) Eins og er, þá er líklega engin Microsoft fartölva/spjaldtölva skráð þar :o
chaplin skrifaði:Þú hefur annars sparað mér nokkrar klukkustundir Mighty K, herbergisfélagi minn bað mig um að finna nýja fartölvu fyrir sig, "bruh.. farðu á laptop.is og þar sérðu allt sem þú þarft".
Snilld, það gleður mig :D Er sjálfur búinn að losna við smá hassle frá mínum vinum :) Og jafn vel þó maður hjálpi þeim, þá er maður mikið fljótari að finna hentuga vél núna ;)

Re: Laptop.is - Fartölvuleitarvélin

Sent: Fös 01. Apr 2016 10:09
af brynjarbergs
Ég tók mér það bessaleyfi að deila síðunni á Facebook, mörgum til ómældrar gleði, en fékk líka eina athugasemd sem ég kem með hér orðrétt:
Hvaða höfðingi gerði þetta? Ágætt samt að minifya og compressa javascriptinu í eina skrá

Re: Laptop.is - Fartölvuleitarvélin

Sent: Fös 01. Apr 2016 10:16
af Moldvarpan
Þetta er frábær síða hjá þér Klemmi.

Eina gagnrýnin sem ég hef, er útlitsleg, og það er með takkana/filterana.
Ég hef ekki skoðað þetta í öðru en windows umhverfi, en mér þykja takkarnir/filter-arnir vera frekar stórir.

Ef það væri hægt að scale-a þetta aðeins niður, þá myndi mér þykja síðan fullkomin ;)

Re: Laptop.is - Fartölvuleitarvélin

Sent: Fös 01. Apr 2016 10:51
af Klemmi
brynjarbergs skrifaði:Ég tók mér það bessaleyfi að deila síðunni á Facebook, mörgum til ómældrar gleði, en fékk líka eina athugasemd sem ég kem með hér orðrétt:
Hvaða höfðingi gerði þetta? Ágætt samt að minifya og compressa javascriptinu í eina skrá
Já, ég veit af því en hef ekki sett það í forgang enn sem komið er :D Valid punktur samt engu að síður og þakka fyrir hann :)
Moldvarpan skrifaði:Þetta er frábær síða hjá þér Klemmi.

Eina gagnrýnin sem ég hef, er útlitsleg, og það er með takkana/filterana.
Ég hef ekki skoðað þetta í öðru en windows umhverfi, en mér þykja takkarnir/filter-arnir vera frekar stórir.

Ef það væri hægt að scale-a þetta aðeins niður, þá myndi mér þykja síðan fullkomin ;)
Takk kærlega fyrir það, þetta er verk í vinnslu og ég mun halda áfram að þróa viðmótið, reyna að gera það stílhreinna og ekki alveg jafn klunnalegt :P

Re: Laptop.is - Fartölvuleitarvélin

Sent: Fös 01. Apr 2016 11:05
af KermitTheFrog
Þetta er sennilega eitthvað Boostrap dæmi, en ef ég skrolla ekki löturhægt í gegnum síðuna þá hoppar "navbarinn" efst upp og niður á síðunni. Ekkert major, en eittvað sem mætti skoða.

Re: Laptop.is - Fartölvuleitarvélin

Sent: Fim 07. Apr 2016 14:54
af svanur
Mjög flott síða hjálpar manni velja réttu fartölvuna. Hvenær er næsta fartölvuútsala hjá tölvuverslunum ?

Er spá í fartölvu fyrir 29 júlí áður en Windows 10 hættir vera frítt. Hvaða tegund ber varast, bilanatíðni, batterísending o.s.frv. Verðbil 150-230þús.

The free upgrade is a full version of Windows (not a trial or introductory version) and is available until July 29, 2016. Once you upgrade, you’ll have Windows 10 for free on that device.

Re: Laptop.is - Fartölvuleitarvélin

Sent: Fim 07. Apr 2016 15:45
af lukkuláki
Sé að Nýherji er ekki í þessu aka. netverslun.is á ekki að bæta þeim inn í ?

Re: Laptop.is - Fartölvuleitarvélin

Sent: Fim 07. Apr 2016 15:52
af ZoRzEr
Æðisleg síða, frábært að hafa þetta svona samandregið á einni síðu.

Tók eftir því að sumar Apple vélar eru merktar með 2560x1600 eða jafnvel 3840x2160 upplausn en eru kannski bara 1440x900 (Macbook Air 13" sem dæmi). Tek eftir því að upplýsingarnar á heimasíðunni er kannski ekkert minnsta á upplausn skjásins á vélinni heldur bara hvaða upplausn vélin styður via HDMI / DP.

Re: Laptop.is - Fartölvuleitarvélin

Sent: Fim 07. Apr 2016 16:14
af vesley
svanur skrifaði:Mjög flott síða hjálpar manni velja réttu fartölvuna. Hvenær er næsta fartölvuútsala hjá tölvuverslunum ?

Er spá í fartölvu fyrir 29 júlí áður en Windows 10 hættir vera frítt. Hvaða tegund ber varast, bilanatíðni, batterísending o.s.frv. Verðbil 150-230þús.

The free upgrade is a full version of Windows (not a trial or introductory version) and is available until July 29, 2016. Once you upgrade, you’ll have Windows 10 for free on that device.

Svo gott sem allar nýjar fartölvur í dag koma með Windows 10 uppsettu og þarftu þá ekki að hafa áhyggjur af þessarri tilteknu dagsetningu.

Re: Laptop.is - Fartölvuleitarvélin

Sent: Fim 07. Apr 2016 21:00
af Klemmi
lukkuláki skrifaði:Sé að Nýherji er ekki í þessu aka. netverslun.is á ekki að bæta þeim inn í ?
Þú segir mér fréttir. Þeir voru inni en eru greinilega búnir að breyta netversluninni sinni, svo að linkarnir á fartölvusíðuna eru breyttir, sem og allir product linkar :)

Ég er að lenda í smá basli með að scrape-a nýju síðuna hjá þeim, en það hlýtur að takast.
ZoRzEr skrifaði:Æðisleg síða, frábært að hafa þetta svona samandregið á einni síðu.

Tók eftir því að sumar Apple vélar eru merktar með 2560x1600 eða jafnvel 3840x2160 upplausn en eru kannski bara 1440x900 (Macbook Air 13" sem dæmi). Tek eftir því að upplýsingarnar á heimasíðunni er kannski ekkert minnsta á upplausn skjásins á vélinni heldur bara hvaða upplausn vélin styður via HDMI / DP.
Góður punktur, lagfæri það þegar ég er búinn að leysa stóra Nýherja málið :)

***Edit:
Ætti að vera komið, lætur mig endilega vita ef þú sérð frekari villur :D

Re: Laptop.is - Fartölvuleitarvélin

Sent: Fim 07. Apr 2016 21:12
af bthj
Klemmi, ég er starfsmaður TM Software og hef tekið þátt í að koma netverslun.is í nýtt umhverfi - uppfærsla sem vonandi mælist vel fyrir en jafnframt leiðinlegt að brjóta tenginguna við laptop.is

Nýja netverslun.is býður upp á forritunarviðmót - JSON API - og spurning hvort þú vilt nýta þér það til að leysa málið? Ef þú vilt nánari upplýsingar, sendu mér þá endilega línu á bthj@t.is :)

/Björn

Re: Laptop.is - Fartölvuleitarvélin

Sent: Fim 07. Apr 2016 21:32
af Klemmi
bthj skrifaði:Klemmi, ég er starfsmaður TM Software og hef tekið þátt í að koma netverslun.is í nýtt umhverfi - uppfærsla sem vonandi mælist vel fyrir en jafnframt leiðinlegt að brjóta tenginguna við laptop.is

Nýja netverslun.is býður upp á forritunarviðmót - JSON API - og spurning hvort þú vilt nýta þér það til að leysa málið? Ef þú vilt nánari upplýsingar, sendu mér þá endilega línu á bthj@t.is :)

/Björn
Þakka skjót svör, er búinn að skutla á þig pósti :)

Re: Laptop.is - Fartölvuleitarvélin

Sent: Lau 09. Apr 2016 17:13
af Klemmi
lukkuláki skrifaði:Sé að Nýherji er ekki í þessu aka. netverslun.is á ekki að bæta þeim inn í ?
Nýherji er nú aftur kominn inn, þakka Birni hjá TM Software æðislega fyrir upplýsingarnar og aðganginn að vefverslunar API-num þeirra :)

Re: Laptop.is - Fartölvuleitarvélin

Sent: Lau 09. Apr 2016 19:05
af vesi
Klemmi skrifaði:
lukkuláki skrifaði:Sé að Nýherji er ekki í þessu aka. netverslun.is á ekki að bæta þeim inn í ?
Nýherji er nú aftur kominn inn, þakka Birni hjá TM Software æðislega fyrir upplýsingarnar og aðganginn að vefverslunar API-num þeirra :)

Gamann að sjá hvað menn eru tilbúnnir í að vera með,veita aðgang í staðinn fyrir að loka fyrir allt og vera með leiðindi

vel gert báðir 2 :happy

Re: Laptop.is - Fartölvuleitarvélin

Sent: Mið 13. Apr 2016 01:47
af Tigereye
Snilldar siða :) mjög þægileg í notkun

Re: Laptop.is - Fartölvuleitarvélin

Sent: Mið 13. Apr 2016 10:24
af rapport
Hvenær fáum við svo að sjá "paddar.is" fyrir spjaldtolvurnar?

Re: Laptop.is - Fartölvuleitarvélin

Sent: Mið 13. Apr 2016 11:44
af Dropi
Snilld! Þetta hefur mig vantað í nokkur ár...

Re: Laptop.is - Fartölvuleitarvélin

Sent: Mið 13. Apr 2016 12:18
af Klemmi
rapport skrifaði:Hvenær fáum við svo að sjá "paddar.is" fyrir spjaldtolvurnar?
Tjah, ég hef sjálfur minni áhuga á þeim, svo það er spurning hvort ég komi því í verk :oops:

Re: Laptop.is - Fartölvuleitarvélin

Sent: Mið 25. Maí 2016 11:48
af lukkuláki
Vantar Dreamware fartölvurnar ... start.is

Re: Laptop.is - Fartölvuleitarvélin

Sent: Mið 25. Maí 2016 13:35
af Klemmi
lukkuláki skrifaði:Vantar Dreamware fartölvurnar ... start.is
Þakka ábendinguna :D Scraperinn hefur ekki náð sambandi við síðuna þeirra í gær, er að keyra hann aftur og þá ættu þær að detta inn aftur :)

*Bætt við*
Komið :D

Re: Laptop.is - Fartölvuleitarvélin

Sent: Mið 15. Jún 2016 11:01
af vesi
Mikið er ég ánægður með laptop.is, búin að spara mér mikin tíma og flettingar.
Nú er ég hinnsvegar að skoða spjaldtölvur, Og það væri GEGGJAÐ ef að fá svipaðan vef í loftið, eða bara eins.
Væri eflaust fínt "side" project fyrir einhvern.

Kv. Vesi